Fagnar því að Snorri opinberi áformin

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir hug­mynd Snorra Mássonar, vara­for­manns Mið­flokks­ins, um að Ísland skoði það að segja sig úr EES-sam­starf­inu skað­lega og óábyrga. Hún fagnar því að stjórn­mála­menn segi hvað þeir raun­veru­lega hugsa.

Fagnar því að Snorri opinberi áformin
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir Utan­rík­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi vill að Mið­flokk­ur­inn skýri hvernig Íslandi væri betur borgið utan EES-sam­starfs­ins. Mynd: Golli

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist fagna hug­mynd Snorra Mássonar, vara­for­manns Mið­flokks­ins, um að Ísland segi sig úr Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES).

Snorri sagði á Alþingi í gær að hann vildi nýta heim­ildir í EES-samn­ingnum til að hindra fólks­flutn­inga til lands­ins. „Ef það virkar ekki, ef við hrein­lega missum stjórn á eigin lýð­fræði­legu örlögum, þá tel ég að hags­munum okkar sé aug­ljós­lega betur borgið utan sam­starfs­ins ef þetta heldur svona áfram mikið lengur,“ bætti hann við.

Þórdís Kolbrún, sem var utan­rík­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn, brást við ræðu Snorra í færslu á Facebook síðu sinni í gær.

„Tor­tryggni Mið­flokks­ins í garð hug­mynda­fræði um frelsi og alþjóð­legs sam­starfs gat kannski ekki endað öðru­vísi en með hug­myndum um að Ísland segði sig frá Evrópska efna­hags­svæð­inu og hætti í EES,“ skrif­aði Þórdís Kolbrún. „Ég tel hug­mynd­ina skað­lega og óábyrga. Samt fagna ég henni. Það er hollt fyrir lýð­ræðið að val­kostir séu skýrir og stjórn­mála­menn segi það sem þeir eru raun­veru­lega að hugsa. Þá gefst tæki­færi til dýpri umræðu um fram­tíð Íslands.“

„Það er hollt fyrir lýð­ræðið að val­kostir séu skýrir“

EES-samn­ing­ur­inn gekk í gildi árið 1994 og hefur Ísland síðan, ásamt EFTA-ríkj­unum Noregi og Liechtenstein, haft aðgang að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins og fjór­frels­inu svo­kall­aða, sem snýr að frjálsu flæði fólks, vöru, þjón­ustu og fjár­magns innan svæð­is­ins.

„Næsta verk­efni Mið­flokks­ins er að útskýra hvernig Íslandi væri betur borgið í efna­hags­legu, menn­ing­ar­legu, örygg­is­legu og póli­tísku til­liti ef við setjum aðgengi að okkar langstærsta mark­aði í upp­nám og fórnum frelsi okkar til þess að ferð­ast, mennta okkur, skapa og starfa hind­r­ana­laust í þeim ríkjum sem standa okkur næst,“ skrif­aði Þórdís Kolbrún að lokum. „Ég bíð spennt.“

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Már J'onsson er enn ungur og á ótalmargt ólært. Hann virðist ekki gera sér næga grein fyrir hve samstarf með öðrum ríkjum er mikilvæg. Að fórna hagstæðum viðskiptaamningi fyrir eitthvað mjög óljóst er vægast sagt ekki til þess fallið að vera nokkurs virði.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Nú er ég alls ekki Sjálfstæðismaður en ég sé einhverja mannlega hlið hjá Þórdísi sem að ég ber virðingu fyrir.
    3
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Þórdís besti þingmaður D
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár