Varaformaður Miðflokksins vill skoða úrsögn úr EES

Hags­munum Íslands er betur borgið utan EES-sam­starfs­ins ef við „missum stjórn á eigin lýð­fræði­legu örlögum“ að mati Snorra Mássonar, vara­for­manns Mið­flokks­ins. Þing­maður Við­reisnar segir Íslend­ingar missa við það rétt sinn til búsetu í Evrópu og að „hræðsla Mið­flokks­ins“ gangi gegn íslenskum hags­munum.

Varaformaður Miðflokksins vill skoða úrsögn úr EES
Stoppa flæði Snorri seg­ist vilja stoppa frjálst flæði frá EES-ríkj­unum til Íslands. Takist það ekki innan marka EES-samn­ings­ins, sé það aug­ljóst að hags­munum Íslands sé betur borgið utan sam­starfs­ins. Mynd: Golli

Hags­munum Íslands er betur borgið utan EES-svæð­is­ins ef útlend­ingum fjölgar hraðar en Íslend­ingum. Þetta er mat Snorra Mássonar, vara­for­manns Mið­flokks­ins.

Snorri stofn­aði til sér­stakrar umræðu á Alþingi í dag um skýrslu starfs­hóps um þróun í útgáfu dval­ar­leyfa og mis­ræmi við önnur Norð­ur­lönd. Í fram­sögu sinni ræddi hann nið­ur­stöður skýrsl­unnar um hvaðan inn­flytj­endur komi til Íslands og sagð­ist vilja loka nær alfarið á þau sem koma utan EES-svæð­is­ins.

„[T]el ég að hags­munum okkar sé aug­ljós­lega betur borgið utan sam­starfs­ins ef þetta heldur svona áfram mikið lengur“

„Svo er EES-sam­starfið sem ráð­herr­ann neitar því miður að taka til umræðu í sam­bandi við inn­flytj­enda­málin,“ sagði Snorri. „Það er auð­vitað stóra breytan í inn­flytj­enda­málum hér að hér eru opin landa­mæri fyrir 450 millj­ónir manna. Ég segi í því sam­bandi að ef útlend­ingum heldur áfram að fjölga á Íslandi tvö­falt hraðar en Íslend­ingum þá tel ég í fyrsta lagi að við þurfum að beita okkar neyð­ar­heim­ild­unum innan EES-samn­ings­ins til að taka stjórn á fólks­flutn­ingum hingað til lands. Við höfum þær heim­ildir, við gætum það. Ef það virkar ekki, ef við hrein­lega missum stjórn á eigin lýð­fræði­legu örlögum, þá tel ég að hags­munum okkar sé aug­ljós­lega betur borgið utan sam­starfs­ins ef þetta heldur svona áfram mikið lengur.“

Íslendingar missi réttinn til búsetu í Evrópu

Gagn­rýn­innSigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, gagn­rýnir vara­for­mann Mið­flokks­ins fyrir að segja að hags­munum Íslands sé betur borgið utan EES-sam­starfs­ins í fram­tíð­inni.

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, gerði orð Snorra að umfjöll­un­ar­efni í Facebook-færslu að loknum umræð­unum á Alþingi. „Snorri Másson tal­aði skýrt um það í dag á Alþingi að honum finn­ist koma til greina að ganga úr EES sam­starf­inu,“ skrifar Sigmar. „Hann sagði það berum orðum. Það er nokkuð aug­ljóst að vara­for­maður Mið­flokks­ins áttar sig ekki á að EES sam­starfið bygg­ist á gagn­kvæmni. Tug­þús­undir Íslend­inga vinna, læra og njóta rétt­inda í Evrópu á grund­velli þessa sam­starfs sem í raun er und­ir­staða þeirrar vel­ferðar sem við búum við í dag. Það gildir líka um kjós­endur Mið­flokks­ins.“

„Hann sagði það berum orðum“

Sigmar segir ljóst að íslensk fyr­ir­tæki myndu missa starfs­fólk í tug­þús­unda­tali við úrsögn úr EES og ríki og sveit­ar­fé­lög sömu­leiðis þús­undir starfs­manna úr vel­ferð­ar­þjón­ustu. „Tug­þús­undir Íslend­inga, líka kjós­endur Mið­flokks­ins, misstu rétt­indi sín í Evrópu til búsetu og atvinnu. Þar með talið þús­undir Íslend­inga sem búa á Spáni og víðar. Þetta er van­hugs­aður og vara­samur mál­flutn­ingur og ekk­ert annað en aðför að atvinnu­lífi og vel­ferð þjóð­ar­innar. Ef við lokum á aðra, þá loka aðrir á okkur. Hræðsla Mið­flokks­ins við fjór­frelsið sem EES sam­starfið tryggir er and­stætt íslenskum hags­munum,“ skrifar Sigmar að lokum.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Guð forði okkur frá því að þessi flokkur komist til valda.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli Snorri væri jafn mikill karl í krapinu ef að það þyrfti að verja stöðuna gagnvart appelsínugula undrinu í vestri, eða ætli hann myndi gera í buxurnar og segja ekki neitt. Skrítið að stjórnar andstaðan tali ekki um glæpamenn í Washington eftir að þeir settu tollana. Það er auðvelt að spila sig stóran þegar orðum fylgir engin ábyrgð.
    3
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Íslendingar missi réttinn til búsetu í Evrópu"
    Ekki alveg rétt - en það verður ekki eins auðvelt. En ferðalög verða stirðari, stífari passa-og tollskoðun, jafnvel krafist áritunar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár