„Ég fæ þann heiður og lúxus að fá að vera aumingi í sex mánuði“

Rit­höf­und­ur­inn Stefán Máni Sig­þórs­son segir að „smá aum­ingja­skapur“ muni koma honum áleiðis í skrifum nýrra bóka. Hann hlaut lista­manna­laun í sex mán­uði í úthlutun gær­dags­ins. Stefán Máni hefur verið gagn­rýn­inn á lista­manna­laun og segir afköst þurfa að skipta máli.

„Ég fæ þann heiður og lúxus að fá að vera aumingi í sex mánuði“
Stefán Máni Segist ætla að vera „rosa­lega dug­legur aum­ingi.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Rit­höf­und­ur­inn Stefán Máni Sig­þórs­son segir mjög gleði­legt að hafa kom­ist á lista­manna­laun við úthlut­un­ina sem birt­ist í gær. „Á meðan þetta er í boði og ég get sótt um þá sæki ég um yfir­leitt og það er gleði­legt að fá. Mér finnst það sann­gjarnt svo sem,“ segir hann.  

Síðustu ár hefur rit­höf­und­ur­inn verið gagn­rýn­inn á lista­manna­laun. Hann var til að mynda gestur í Spurs­málum í októ­ber þar sem hann tal­aði um klíku­skap og sagð­ist hafa „góða sjálfs­virð­ingu“ þar sem hann væri ekki alltaf á lista­manna­launum eða „spen­anum“ svo­kall­aða.

Stefán Máni segir gagn­rýn­ina snú­ast um úthlut­un­ina. „Það sem ég hef verið gagn­rýn­inn á er hvernig er úthlutað og ég er ekk­ert einn um að gagn­rýna það,“ segir hann og bætir við að það eigi ekki alltaf að vera sama fólkið sem fái úthlutað. 

Afköst skipta máli

Hann segir að það þurfi …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listamannalaun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár