Lilja vill fleiri sjóði listamannalauna og verulega hækkun

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur lagt til veru­lega fjölgun mán­að­ar­legra starfs­launa lista­manna­launa, úr 1.600 í 2.850.

Lilja vill fleiri sjóði listamannalauna og verulega hækkun
Ráð­herr­ann Lilja vill að starfs­launum fjölgi úr 1.600 í 2.850. Það eru sam­tals 1.250 mán­að­ar­laun fyrir lista­menn en gjarnan fá stakir lista­menn fleiri en einn mánuð árlega svo gera má ráð fyrir að fjöldi laun­þega verði tals­vert minni. Mynd: Golli

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir menn­ing­ar­mála­ráð­herra leggur til að fram­lag rík­is­ins til lista­manna­laun hækki veru­lega á næstu árum, um 124 millj­ónir á næsta ári og 700 millj­ónir króna árið 2028. 

Þetta kemur fram í frum­varps­drögum hennar sem nú eru í sam­ráðs­gátt. 

Frum­varpið miðar að því að „stofna þrjá nýja launa­sjóði og fjölga þeim mán­að­ar­legu starfs­launum sem koma til úthlut­unar“. Það er lagt fram í sam­ræmi við stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að „styrkja fag­lega starfs­launa- og verk­efna­sjóði lista­manna með sér­stakri áherslu á að starfs­launin tryggi betur afkomu þeirra sem starfa í listum eða við skap­andi greinar.“

Í skýr­ingu með frum­varp­inu kemur fram að fjöldi starfs­launa hafi hald­ist óbreyttur síðan gild­andi lög tóku gildi árið 2009. 

„Starfs­launa­mán­uðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.850 á tíma­bil­inu og þremur nýjum sjóðum bætt við kerfið; Launa­sjóði kvik­mynda­höf­unda, Vexti sjóði 35 ára og yngri og Vegsemd sjóði lista­manna 67 ára og eldri.“

Breyt­ing­arnar verða inn­leiddar í skrefum á árunum 2025-2028 og er ráð­gert að kostn­aður verði eft­ir­far­andi:

2025: 124 millj. kr.
2026: 280 millj. kr.
2027: 490 millj. kr.
2028: 700 millj. kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Vantar fleiri trúða til að spila með pólitíkinni á kosnað skattborgara? Verður helst að vera sjálfbært. Listamenn verða að vera óháðir frjálsir gerða sinna en ekki undir hælnum á íslenskum stjórnmálaflokkum sem flestir flokkast undir skipulögð glæpasamtök við nánari skoðun. Listamenn og fjölmiðlar verða undir hælnum á sauðspilltu ríkisvaldinu á Íslandi og hvorugir trúverðugir eða marktækir
    0
  • Axel Axelsson skrifaði
    valdræningjastjórnin að kaupa sér heilaþvott fyrir alifuglaræktina . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listamannalaun

MenningListamannalaun

Alls hljóta 251 ein­stak­lingar lista­manna­laun á næsta ári

Listi yfir þá sem fá úthlutað lista­manna­launum fyrir árið 2025 hefur verið birtur. Í heild er um að ræða 251 ein­stak­ling og verða launin 560.000 krónur á mán­uði. Alls sóttu 1.339 um launin, þar af 1.223 ein­stak­lingar og 116 sviðs­lista­hópar. Samkvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins voru 1.720 mán­að­ar­laun úr átta launa­sjóðum til úthlut­unar. Þeir sjóðir voru: Hönnuða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda, tón­skálda,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár