Fleiri listamenn við níu götur í Reykjavík fá laun en á allri landsbyggðinni

Töluvert ójafn­vægi er á úthlutun lista­manna­launa, séu þau skoðuð eftir búsetu laun­þega. Launin, sem eru tölu­vert lægri en reglu­leg laun full­vinn­andi fólks, renna í flestum til­vikum til íbúa í Vesturbæ og miðbæ Reykja­víkur. Menn­ing­ar­mála­ráð­herra segir nið­ur­stöð­una ekki óvænta þó hún slái hann ekki vel.

Við níu götur í Reykja­vík búa fleiri lista­menn sem fengu úthlutað lista­manna­launum fyrir næsta ár en á öllu land­inu fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið. Þetta sýnir grein­ing Heim­ild­ar­innar á úthlut­un­inni og byggir á skrán­ingu í þjóð­skrá.

Að minnsta kosti eitt dæmi er þó um rit­höf­und sem býr sann­ar­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en hefur lög­heim­il­is­skrán­ingu á Suð­ur­landi. Rúmlega 80 pró­sent þeirra lista­manna sem fá greidd lista­manna­laun eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og þar af 219 í Reykja­vík. Sex pró­sent laun­þeg­anna eru skráðir erlendis í þjóð­skrá.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Já mér finnst þetta skrítinn fréttaflutningur og eitthvað ómálefnalegt. Fólkið sem sækir um býr flest í Reykjavík svo eðlilega fær það flesta styrkina.. Og kannski eðlilega býr það á höfuðborgasvæðinu þar sem það mögulega getur haft atvinnu þegar það er ekki á listamannalaunum..
    0
  • Hallveig Rúnarsdóttir skrifaði
    Og hver voru hlutföllin af umsækjendum eftir búsetu? verður ekki að horfa á þetta út frá því? það er nú bara þannig að þeir sem vilja geta lifað af t.d. tónlist eða sviðslistum sem eru mjög stór hluti þiggjenda starfslauna listamanna þurfa að búa þar sem stærstur hluti gesta býr, því það er nánast hvergi annarsstaðar nægilegur fjöldi verkefna til að fylla upp í starfsárið. Þetta er alveg hreint ótrúlega skrýtinn fréttaflutningur.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Á hvaða leið er Heimildin ?
    3
  • Svala Jónsdóttir skrifaði
    Listamannalaun eru ekki byggðastyrkur. Þau á að veita út frá gæðum listarinnar, ekki búsetu.
    4
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er verið að reyna að gera kjördæmapot úr þessu?
    3
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Æ, mér finnst að frekar mætti spyrja um framlag þessa fólks en hvar það býr.
    5
  • Margrét Jónsdóttir skrifaði
    Hvaða götur eru þetta?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listamannalaun

MenningListamannalaun

Alls hljóta 251 ein­stak­lingar lista­manna­laun á næsta ári

Listi yfir þá sem fá úthlutað lista­manna­launum fyrir árið 2025 hefur verið birtur. Í heild er um að ræða 251 ein­stak­ling og verða launin 560.000 krónur á mán­uði. Alls sóttu 1.339 um launin, þar af 1.223 ein­stak­lingar og 116 sviðs­lista­hópar. Samkvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins voru 1.720 mán­að­ar­laun úr átta launa­sjóðum til úthlut­unar. Þeir sjóðir voru: Hönnuða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda, tón­skálda,...

Mest lesið undanfarið ár