Morgunblaðið og ráðuneytið í harðri deilu út frá ólíkum gögnum

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið og Morg­un­blaðið takast á. Ráðu­neytið hefur sakað fjöl­mið­il­inn um „vís­vit­andi“ rangan frétta­flutn­ing en mið­ill­inn hefur setið fast við sinn keip.

Morgunblaðið og ráðuneytið í harðri deilu út frá ólíkum gögnum
Farið yfir gögn Guð­mundur Ingi Krist­ins­son ráð­herra ásamt Ágústi Ólafi Ágústs­syni, aðstoð­ar­manni sínum, á Alþingi á mánu­dag, sama dag og umdeild yfir­lýs­ing var send frá ráðu­neyti hans. Mynd: Golli

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, og Morg­un­blaðið, hafa skipst á opin­berum ávít­unum síð­ustu daga vegna umræðu og umfjall­ana um vímu­efna­notkun barna.

Nýjasta vend­ingin í mál­inu er að Morg­un­blaðið birtir aðra frétt í dag þar sem kemur fram að gagn­rýni ráð­herr­ans um „léleg og vill­andi vinnu­brögð“ sé röng og „stand­ist ekk­ert af því skoðun“.

Málið á sér lengri sögu en sprakk út eftir til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands frá ráðu­neyti Guð­mundar Inga.

Ásökunum vísvitandi rangar og villandi upplýsingar

Í fyrra­dag sendi mennta og barna­mála­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu þar sem frétta­flutn­ingur Morg­un­blaðs­ins um Guðmund Inga var gagn­rýndur. Sagðist ráðu­neytið líta málið alvar­legum augum og telja „mið­il­inn vera af þeim sökum vís­vit­andi að veita rangar og vill­andi upp­lýs­ingar“. 

Í frétt mbl.is þremur dögum fyrr var vitnað í orð sem Guð­mundur Ingi lét falla á Alþingi sama dag um að ekki væru merki um aukna vímu­efna­neyslu barna á árunum 2023-25. 

Í frétt­inni var sagt að full­yrð­ing ráð­herra gengi í ber­högg við skýrslu Barna- og fjöl­skyldu­stofu um sam­an­burð á fjölda til­kynn­inga til barna­vernd­ar­þjón­ustu árin 2022-24. Í þeirri skýrslu er tekið fram að til­kynn­ingum um neyslu barna á vímu­efnum og öðrum skað­legum efnum árin 2023-2024 hefði fjölgað um 60 pró­sent. 

Það sem Guð­mundur Ingi vís­aði í máli sínu til stuðn­ings voru þó önnur gögn, Íslenska æsku­lýðs­rann­sóknin. Í henni kemur fram, líkt og ráð­herra sagði, að ung­linga­drykkja virð­ist ekki vera að aukast. Ekki var minnst á þessa heim­ild ráð­herr­ans í frétt Morg­un­blaðs­ins.

Ráðherra vísaði í önnur gögn en mbl.is

Morg­un­blaðið vísar til eins mæli­kvarða, til­kynn­inga til barna­verndar, til að leiða að því líkur að neysla barna á vímu­efnum hafi auk­ist á síð­ustu árum. Guð­mundur Ingi til ann­ars, Íslensku æsku­lýðs­rann­sókn­ar­innar. Ráðu­neyt­inu og Morg­un­blað­inu ber svo ekki saman um það hvorum mæli­kvarð­anum sé frekar mark á tak­andi til að mæla hvort aukn­ing hafi orðið í vímu­efna­neyslu ung­menna. Ráðu­neytið gengur svo langt að full­yrða að sín heim­ild spegli raun­veru­leik­ann að fullu, að það sé „rangt á grund­velli fyr­ir­liggj­andi gagna“ að vímu­efna­neysla barna hafi auk­ist.

Íslenska æsku­lýðs­rann­sóknin er, sam­kvæmt mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu, ítar­leg­asta rann­sóknin sem fram­kvæmd er á vímu­efna­neyslu ung­menna hér­lendis. Bendir ráðu­neytið á í til­kynn­ingu að töl­fræðin um til­kynn­ingar til barna­verndar séu ekki töl­fræði um almenna vímu­efna­neyslu ung­menna.

„Mik­il­vægt er að rang­færslur um svo stórt sam­fé­lags­mál séu leið­réttar til varnar upp­lýs­inga­óreiðu og ef hnekkja á töl­fræði, að bera þá saman töl­fræði um sama hlut­inn. Fjöldi til­kynn­inga til barna­verndar er ekki mæli­kvarði fyrir almenna vímu­efna­neyslu ung­menna heldur töl­fræði yfir fjölda alvar­leg­ustu mál­anna sem upp koma vegna fíkni­vanda ung­menna og ber að til­kynna,“ segir ráðu­neytið.

Er þar haldið fram að ekki sé hægt að vita hvort aukn­ingin í til­kynn­ingum til barna­verndar sé vegna vit­und­ar­vakn­ingar um til­kynn­inga­skyldu eða aukn­ingar á fjölda mála. „Það er hins vegar ekki mæli­kvarði á almennri neyslu ung­menna á vímu­efnum og ekki það sem var til umræðu.“

Er Íslenska æskulýðsrannsóknin lýsandi?

Bæði Morg­un­blaðið og ráðu­neytið greina því rétt frá heim­ildum sínum, en deilan snýr þá að umfjöllun beggja aðila hvor um annan og svo áreið­an­leika eða rétt­mæti heim­ild­anna, það er að segja hvort álykta megi um raun­veru­leik­ann út frá annarri heim­ild­inni frekar en hinni.

Í svari sínu við við­brögðum ráðu­neyt­is­ins sagði mbl.is að hvergi í skýrslu Barna- og fjöl­skyldu­stofu kæmi fram að aðeins alvar­leg­ustu til­fellin væru til­kynnt. „Enda um að ræða fjölgun allra til­kynn­inga um vímu­efna­neyslu barna. Getur ráðu­neytið því ekki full­yrt að þetta eigi aðeins við um alvar­leg­ustu til­fellin.“

Þá hefur einnig verið bent á það að það gæti verið að ung­menni í áhættu­hópi séu ólík­legri til að hafa svarað spurn­inga­listum Íslensku æsku­lýðs­rann­sókn­ar­innar. Þó má gera ráð fyrir að það gildi jafnt um fyrri svör og þau nýrri, þannig að þróun grein­ist engu að síður með rétt­mætum hætti.

Á Facebook-síðu rann­sókn­ar­innar birt­ist þó í gær færsla þar sem þessum efa­semdum í hennar garð var svarað.

Þar sagði að vissu­lega væri könnun lögð fyrir grunn­skóla­börn á skóla­tíma lík­legri til að van­meta frekar en ofmeta algengi áfeng­is­neyslu og ann­arrar áhættu­hegð­unar. „Þar sem hóp­ur­inn sem helst sýnir áhættu­hegðun er lík­legri til að vera fjar­ver­andi á fyr­ir­lagn­ar­degi. Þetta er vel þekkt skekkja í spurn­inga­lista­könn­unum á borð við ÍÆ.“

Þetta hefði þó ekki þannig áhrif að veru­leg aukn­ing í áhættu­hegðun yfir tíma væri dulin. „Til þess þyrfti skekkjan að vera að breyt­ast mikið og hratt yfir tíma. Veruleg aukn­ing í áfeng­is­notkun eða annarri vímu­efna­notkun meðal barna á ung­linga­stigi myndi koma skýrt fram í nið­ur­stöðum grunn­skóla­könn­unar ÍÆ.“

Ásakanir um ósannindi

Í ræðu sinni á Alþingi á fimmtu­dag um stöðu barna, sem Morg­un­blaðið fjall­aði um undir fyr­ir­sögn­inni „Ráðherra segir frétt­irnar ekki sannar“, byrj­aði Guð­mundur Ingi á því að vitna til Íslensku æsku­lýðs­rann­sókn­ar­innar og vitn­aði þar áður til nýrra gagna um vímu­efna­notkun barna. Ræðan er um 650 orð. Í upp­hafi hennar setur hann fyr­ir­vara um að til­kynn­ingum til barna­verndar hafi fjölgað almennt, en undir lok hennar segir hann: „Ekki eru merki um aukna neyslu á árunum 2023–2025, þvert á ýmsar fréttir.“

Því má túlka orð ráð­herr­ans þannig að hann vísi til til­tek­inna gagna, en hafni áreið­an­leika þess að byggja á fjölda barna­vernd­ar­til­kynn­inga, um leið og hann telur spurn­inga­könnun áreið­an­lega. Í yfir­lýs­ingu hans síðar meir kemur skýrt fram að hann hafni því að vímu­efna­neysla hafi auk­ist. Morg­un­blaðið lítur hins vegar fram hjá nið­ur­stöðum Íslensku æsku­lýðs­rann­sókn­ar­innar í frétt sinni um að ráð­herr­ann segi frétt­irnar „ekki sannar“. 

Þrátt fyrir stað­hæf­ingu ráðu­neyt­is­ins um að Morg­un­blaðið hafi „gefið til kynna“ að ráð­herr­ann „hafi sagt ósatt“, er ljóst að ekki kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins að ráð­herr­ann hafi „sagt ósatt“, þótt afneitun hans á fyrri fréttum sé stillt fram af Morg­un­blað­inu án til­vís­unar í heim­ild ráð­herr­ans sem gengur gegn annarri heim­ild blaðs­ins.

Sömu­leiðis vitnar ráð­herra ekki til heim­ildar Morg­un­blaðs­ins þegar hann gefur út yfir­lýs­ingu sem fjallar þó um vinnu­brögð mið­ils­ins.

Ráðu­neytið sakar Morg­un­blaðið um að „vís­vit­andi veita rangar og vill­andi upp­lýs­ingar“, en engar sann­anir eru fyrir þeirri ásökun eða ásetn­ingi, aðrar en útli­staðar fyrri umfjall­anir blaðs­ins um ráð­herr­ann sem hann telur ósann­gjarnar. Þá er ljóst að Morg­un­blaðið veitti ekki bein­línis „rangar upp­lýs­ingar“ en láð­ist að nefna ástæður ráð­herr­ans til að varpa efa­semdum á að fréttir end­ur­spegli raun­veru­leik­ann, eða að raun­veru­leik­inn sé „þvert á ýmsar fréttir“.

Út frá því geta frá­sagnir beggja aðila flokk­ast sem vill­andi eða ósann­gjarnar út frá ein­stökum atriðum, en í hnot­skurn vitna aðil­arnir til mis­mun­andi heim­ilda og und­an­skilja eftir atvikum heim­ildir hins aðil­ans í opin­beru orða­skaki sínu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár