Af konum og álfum

Af konum og álfum
Fríða Ísberg
Bók

Huldu­konan

Höfundur Fríða Ísberg
Benedikt bókaútgáfa
290 blaðsíður
Niðurstaða:

Hrífandi fjölskyldusaga sem skrifuð er af mikilli fimi og glettni sem fer að missa marks eftir því sem fantasía verður meira ráðandi í frásögninni.

Gefðu umsögn

„Þetta var stór­kost­leg­asta ráð­gáta sem bæj­ar­búar höfðu staðið frammi fyrir í manna minnum. Eft­ir­sóttur pip­ar­sveinn, aldrei við kven­mann kenndur, birt­ist einn dag­inn með móð­ur­laust barn.“ (bls. 18)

Huldu­konan, ný skáld­saga Fríðu Ísberg, hverf­ist um þessa ráð­gátu –hver huldu­konan, barns­móðir Sigvalda Matth­í­as­sonar, sé. Samhliða spurn­ing­unni sem liggur henni til grund­vallar gerir bókin að umfjöll­un­ar­efni sínu fjórar kyn­slóðir Lohr-fjöl­skyld­unnar sem hefur alið mann­inn í afskekktri byggð á Vest­fjörðum.

Sigvaldi er fyrsti dreng­ur­inn til að fæð­ast í fjöl­skyld­unni í fleiri ára­tugi og velur að búa einn í nið­ur­níddu ætt­ar­óð­al­inu í eyði­vík­inni Dýr­leif­ar­vík. Þegar hann birt­ist einn dag­inn með stúlku­barn fara kon­urnar í fjöl­skyld­unni á stúf­ana til að reyna að kom­ast að því hver móðir barns­ins sé eig­in­lega. Samhliða leit­inni eru sögur nokk­urra kyn­slóða fjöl­skyld­unnar sagðar, allt frá því um önd­verða 20. öld þegar blóm­legt líf var í vík­inni. Sögur af ástum og örlögum Lohr-fjöl­skyld­unnar eru raktar; furðu­legum draum­förum og jafn­vel fjöl­skyldu­með­limum sem hurfu …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár