Gert að greiða miskabætur fyrir Facebook-ummæli

Karl­manni hef­ur ver­ið gert að greiða fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga sín­um 250 þús­und krón­ur í miska­bæt­ur fyr­ir um­mæli sem hann rit­aði um hana á Face­book. Við mat þeirra var lit­ið til út­breiðslu þeirra á sam­fé­lags­miðl­in­um.

Gert að greiða miskabætur fyrir Facebook-ummæli

Samkvæmt dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þarf Jónsi Björnsson að greiða fyrrverandi viðskiptafélaga sínum 250.000 krónur í miskabætur fyrir að hafa haldið því fram í ummælum á Facebook að hún hefði falsað undirritun sína. 

Við mat miskabótanna var „litið til útbreiðslu ummælanna sem stefnandi birti á Facebook-síðu sinni á spænsku og merkti þar spænskumælandi einstaklinga sem munu vera búsettir hérlendis,“ að því er segir í dómnum. 

Viðskiptafélaginn fyrrverandi, Tamila Gámez Garcell, hafði  stefnt Jónsa fyrir talsvert fleiri ummæli sem hún vildi að yrðu dæmd dauð og ómerk en hún hélt því fram að þau fælu í sér stórfelldar ærumeiðingar og aðdróttanir. Þar á meðal voru Facebook-færsla, ummæli á miðlinum og smáskilaboð sem hann hafði sent eiginmanni hennar sumarið 2023.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að flest ummælanna hefðu þó rúmast innan tjáningarfrelsis Jónsa og var því ekki fallist á ómerkingu þeirra. Þá var Tamilu gert að greiða Jónsa 900 þúsund krónur í málskostnað.

Ráku saman veitingastað

Jónsi og Tamila höfðu ásamt þriðja aðila staðið að rekstri veitingastaðarins PK2 á Laugarvegi. Áttu þau í deilum um reksturinn og síðar um söluna á rekstrinum. 

Eftir sölu PK2 stofnaði Tamila annan veitingastað, en í tengslum við það ritaði Jónsi stöðufærslu á Facebook þar sem hann sagði Tamilu hafa stolið og svikið í rekstri PK2 og hafnaði því að hann stæði með henni að opnun nýja staðarins.

„Þessi einstaklingur sem sagðist vera vinkona mín og starfsfélagi, hefur, á meðan ég fór í ferðalag um helgina, selt staðinn, stolið frá mér fjármunum og falsað undirritun mína, á meðal margra annarra hluta sem ég er viss um að munu koma fram í dagsljósið,“ skrifaði Jónsi í ummæli undir færsluna.

Upprunalegu ummælin voru rituð á spænsku og er hér íslensk þýðing þeirra eins og þau koma fram í dómnum. 

Þá sendi Jónsi eiginmanni Tamilu smáskilaboð þar sem hann sagði hana ljúga að honum, að hann ætlaði að stefna henni fyrir svik og skattundanskot og að eiginmaðurinn ætti að vita af nokkurm persónulegum og viðkvæmum málefnum. Tamila hélt því fram að smáskilaboðin hefðu smánað hana og bakað henni og fjölskyldu hennar mikinn skaða, en dómurinn féllst ekki á ómerkingu þeirra.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár