Dick Cheney látinn: Maður áhrifa, árása og áfalla

Umdeildi vara­for­set­inn Dick Cheney er lát­inn. Hann stóð að stríðum í Afganistan og Írak eftir hryðju­verka­árás­irnar 11. sept­em­ber, en sner­ist gegn Repúblik­unum vegna Donalds Trump.

Dick Cheney látinn: Maður áhrifa, árása og áfalla
Fallinn frá Dick Cheney á fram­boðs­fundi í Ohio árið 2004. Mynd: Shutterstock

Dick Cheney, sem af mörgum er tal­inn valda­mesti vara­for­seti í sögu Banda­ríkj­anna sem hægri hönd George W. Bush í kringum hhryðju­verka­árás­irnar 11. sept­em­ber 2001 og stríðin í Afganistan og Írak sem fylgdu í kjöl­farið, lést á mánu­dag. Hann var 84 ára.

Cheney mót­aði áhrifa­mikið hlut­verk í þessu hefð­bundna og fremur valda­lausa emb­ætti og var mik­ill áhrifa­valdur á bak við tjöldin þegar Bush steypti Banda­ríkj­unum út í hið svo­kall­aða „stríð gegn hryðju­verkum“, með skugga­legum und­ir­tóni ólög­legra hand­taka, pynt­inga og Guant­anamo-fanga­búð­anna.

Hann var hat­aður af mörgum á vinstri vængnum en tók óvænta stefnu­breyt­ingu undir lok ævi sinnar þegar hann lagð­ist gegn kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump fyrir end­ur­komu í Hvíta húsið árið 2024.

Liz Cheney, dóttir Cheneys og fyrr­ver­andi þing­maður frá Wyoming, sagði að faðir hennar, sem var harður repúblikani, hefði kosið demókrat­íska mót­fram­bjóð­anda Trumps, Kamölu Harris.

Cheney, sem einnig var fyrr­ver­andi þing­maður og varn­ar­mála­ráð­herra, „lést af völdum fylgi­kvilla lungna­bólgu og hjarta- og æða­sjúk­dóma“, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá fjöl­skyld­unni.

Sem 46. vara­for­seti gegndi Cheney emb­ætt­inu í tvö kjör­tíma­bil á árunum 2001 til 2009.

Starfið veldur metn­að­ar­fullum stjórn­mála­mönnum oft von­brigðum en Machiavellískir hæfi­leikar Cheneys veittu honum tölu­verð völd.

Hann þrýsti í gegn hug­mynd um valda­mikið fram­kvæmda­vald og taldi að for­set­inn ætti að geta starfað nán­ast óheftur af þing­mönnum eða dóm­stólum, sér­stak­lega á stríðs­tímum.

Þetta var nálgun sem leiddi til þess að Bush lenti í hern­að­ar­fenjum í Afganistan og Írak og olli miklum deilum um áhrif hans á borg­ara­leg rétt­indi.

Bush hyllti í dag fyrr­ver­andi vara­for­seta sinn sem „einn af bestu opin­beru starfs­mönnum sinnar kyn­slóðar“ og „þann sem ég þurfti á að halda“ þegar hann var í Hvíta hús­inu.

Cheney var „föð­ur­lands­vinur sem sýndi heil­indi, mikla greind og alvöru í hverju emb­ætti sem hann gegndi“, bætti Bush við.

Karoline Leavitt, tals­kona Hvíta húss­ins, vott­aði enga samúð þegar hún var spurð um and­lát Cheneys á þriðju­dag.

Trump „er með­vit­aður um and­lát fyrr­ver­andi vara­for­set­ans“, sagði hún á blaða­manna­fundi og benti á að fánar Hvíta húss­ins hefðu verið dregnir í hálfa stöng „í sam­ræmi við lög“.

Nýtt íhald

Cheney fædd­ist í Lincoln í Nebraska 30. jan­úar 1941 en ólst að mestu upp í hinu strjál­býla vest­ur­ríki Wyoming.

Hann stund­aði nám við Yale-háskóla en hætti í aust­ur­strand­ar­skól­anum virta og lauk að lokum prófi í stjórn­mála­fræði heima í Wyoming-háskóla.

Hann sat í tíu ár á þingi sem full­trúi Wyoming áður en hann var skip­aður varn­ar­mála­ráð­herra af George H.W. Bush árið 1989.

Cheney stýrði Pentagon í Persaflóa­stríð­inu 1990–91, þar sem banda­lag undir for­ystu Banda­ríkj­anna rak íra­skar her­sveitir frá Kúveit.

Sem vara­for­seti færði Cheney ný-íhalds­hug­mynda­fræði sína inn í Hvíta húsið og gegndi stærra hlut­verki við að taka mik­il­vægar stefnu­mót­andi ákvarð­anir en margir for­verar hans í emb­ætt­inu.

Cheney var einn af helstu hvata­mönn­unum að baki ákvörð­un­inni um að ráð­ast inn í Írak í kjöl­far árása hryðju­verka­sam­tak­anna Al-Kaída á New York og Washington 11. sept­em­ber 2001.

Óná­kvæmar full­yrð­ingar hans um að Saddam Hussein byggi yfir ger­eyð­ing­ar­vopnum ýttu undir stríðs­á­róð­ur­inn fyrir inn­rás Banda­ríkj­anna árið 2003.

Cheney, sem var tal­inn lærifaðir Bush í utan­rík­is­málum, var áfram tryggur fyrr­ver­andi yfir­manni sínum og harður verj­andi stefnu­mála Bush-tíma­bils­ins.

Í við­tali árið 2015 sagði Cheney að hann sæi ekki eftir inn­rásinni í Írak árið 2003 og þakk­aði svoköll­uðum „auknu yfir­heyrslu­að­ferðum“ fyrir árang­ur­inn í leit að Osama bin Laden, leið­toga Al-Kaída, sem var drep­inn af banda­rískum her­sveitum árið 2011.

Þrátt fyrir að kjósa að halda sig utan sviðs­ljóss­ins var Cheney áfram milli tann­anna á fólki.

Eitt sinn fleygði hann blóts­yrði í öld­unga­deild­ar­þing­mann demókrata á gólfi öld­unga­deild­ar­innar og skaut óvart vin sinn Harry Whittington í and­litið í veiði­ferð.

Starfsævi hans ein­kennd­ist af röð heilsu­far­s­vanda­mála – hann fékk fimm hjarta­á­föll á árunum 1978 til 2010, þar á meðal eitt árið 2000, árið sem hann og Bush voru kjörnir í Hvíta húsið.

Hann fór í fjór­falda hjá­veitu­að­gerð og fékk gangráð ígræddan árið 2001, sem síðar var skipt út.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Farið hefur fé betra!
    1
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    International law didn't exist for Cheney because he enjoyed total impunity! Same as Trump even though Cheney hated Trump!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár