Kvörtuðu undan neyð og komust í álnir

Land­eig­endur við Selja­lands­foss lýstu neyð­ar­á­standi og þörf á gjald­töku. Nokkrum árum síðar birt­ist 270 millj­óna króna hagn­aður á einu ári og fjár­festar lað­ast að.

Kvörtuðu undan neyð og komust í álnir
Selja­lands­foss Kostn­að­ur­inn var aðeins rúm­lega fjórð­ungur af tekj­unum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Land­eig­endur við Selja­lands­foss högn­uð­ust um 270 millj­ónir króna á rekstri sínum fyrir skatta í fyrra, sem felst fyrst og fremst í inn­heimtu bíla­stæða­gjalda. Land­eig­endur hófu að inn­heimta gjald af komum ferða­manna að foss­inum árið 2017 undir þeim for­merkjum að svæðið væri að „fara í rúst“. Nú er gjald­takan orðin að gull­námu fyrir land­eig­endur sem hagn­ast meira og meira, með fádæma hagn­að­ar­hlut­falli, ásamt því að þekktur fjár­festir hefur bæst í eig­enda­hóp­inn.

Rekstr­ar­reikn­ingur félags­ins Selja­lands­foss ehf. sýnir hversu ábata­söm gjald­skylda getur verið fyrir land­eig­endur við nátt­úruperlur, þar sem kostn­að­ur­inn er lít­ill í sam­hengi við tekj­urnar. Um leið sýnir saga gjald­skyldu svæð­is­ins hvernig við­brögð við þörf á upp­bygg­ingu leiða til gríð­ar­legs hagn­aðar fyrir eig­endur á end­anum.

Gjaldtaka rökstudd með neyð

Stærsti ein­staki eig­andi Selja­lands­foss ehf. er Kristján Ólafsson bóndi. Hann útskýrði upp­haf gjald­töku í sam­tali við Morg­un­blaðið 2017. 

„Það er bara hörm­ung að horfa upp á þetta og líka …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það virðist sem að það væri hægt að lækka bílastæðagjöldin eitthvað þarna á þessum stað.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár