Nóbelsverðlaunahafi sem gagnrýndi Trump bannaður frá Bandaríkjunum

„Ég er í banni,“ segir rit­höf­und­ur­inn Wole Soyinka.

Nóbelsverðlaunahafi sem gagnrýndi Trump bannaður frá Bandaríkjunum
Wole Soyinka Níger­íu­mað­ur­inn sem hlaut Nóbels­verð­launin í bók­menntum 1986 hefur líkti Donald Trump við ein­ræð­is­herra og var svo bann­aður frá Banda­ríkj­unum. Mynd: Wikipedia / Frankie Fouganthin

Ræð­is­manns­skrif­stofa Banda­ríkj­anna í Lagos hefur aft­ur­kallað vega­bréfs­á­ritun níger­íska rit­höf­und­ar­ins Wole Soyinka, að sögn Nóbels­verð­launa­hafans.

„Ég vil full­vissa ræð­is­manns­skrif­stof­una ... um að ég er mjög sáttur við aft­ur­köllun vega­bréfs­á­rit­unar minnar,“ sagði Soyinka, frægt leik­skáld og rit­höf­undur sem hlaut Nóbels­verð­launin í bók­menntum árið 1986, á blaða­manna­fundi í dag.

Soyinka var áður með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum en hann eyði­lagði græna kortið sitt eftir fyrsta kjör Donalds Trump árið 2016.

Hann hefur haldið áfram að gagn­rýna Banda­ríkja­for­seta, sem nú situr sitt annað kjör­tíma­bil, og velti því fyrir sér að nýleg ummæli hans þar sem hann líkti Trump við fyrr­ver­andi ein­ræð­is­herra Úganda, Idi Amin, kynnu að hafa hitt í mark.

Soyinka sagði fyrr á þessu ári að banda­ríska ræð­is­manns­skrif­stofan í Lagos hefði kallað hann í við­tal til að end­ur­meta vega­bréfs­á­ritun hans.

Samkvæmt bréfi frá ræð­is­manns­skrif­stof­unni sem stílað var á Soyinka og AFP sá, vitn­uðu emb­ætt­is­menn í reglu­gerðir banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem heim­ila „ræð­is­manni, ráð­herra eða emb­ætt­is­manni ráðu­neyt­is­ins sem ráð­herr­ann hefur falið þetta vald ... að aft­ur­kalla vega­bréfs­á­ritun sem ekki er til inn­flytj­enda hvenær sem er, að eigin geð­þótta“.

Soyinka las bréfið upp­hátt fyrir blaða­menn í Lagos, efna­hags­legri höf­uð­borg Nígeríu, og sagði að emb­ætt­is­menn hefðu beðið hann um að koma með vega­bréfið sitt á ræð­is­manns­skrif­stof­una svo hægt væri að ógilda vega­bréfs­á­ritun hans í eigin per­sónu.

Hann kall­aði það í gríni „frekar for­vitni­legt ást­ar­bréf frá sendi­ráði“, um leið og hann sagði öllum sam­tökum sem von­uð­ust til að bjóða honum til Banda­ríkj­anna „að eyða ekki tíma sínum“.

„Ég er ekki með vega­bréfs­á­ritun. Ég er í banni,“ sagði Soyinka.

„Eins og einræðisherra“

Rík­is­stjórn Trumps hefur gert aft­ur­köllun vega­bréfs­á­rit­ana að ein­kenn­is­merki víð­tæk­ari aðgerða sinna gegn inn­flytj­endum, einkum með því að beina spjótum sínum að háskóla­nemum sem voru opin­skáir um rétt­indi Palest­ínu­manna.

Banda­ríska sendi­ráðið í Abuja, höf­uð­borg Nígeríu, svar­aði ekki beiðni um athuga­semdir.

„Hann hefur hagað sér eins og ein­ræð­is­herra, hann ætti að vera stoltur.“
Wole Soyinka
Nóbels­verð­launa­hafi í bók­menntum um Donald Trump Banda­ríkja­for­seta.

„Idi Amin var maður með alþjóð­lega stöðu, stjórn­mála­maður, svo þegar ég kall­aði Donald Trump Idi Amin, hélt ég að ég væri að hrósa honum,“ sagði Soyinka.

„Hann hefur hagað sér eins og ein­ræð­is­herra, hann ætti að vera stoltur.“

91 árs gam­alt leik­skáldið á bak við „Death and the King's Horseman“ hefur kennt við og hlotið við­ur­kenn­ingar frá fremstu háskólum Banda­ríkj­anna, þar á meðal Harvard og Cornell.

Soyinka tal­aði í Harvard árið 2022 ásamt banda­ríska bók­mennta­gagn­rýn­and­anum Henry Louis Gates.

Nýjasta skáld­saga hans, „Chronicles from the Land of the Happiest People on Earth“, ádeila um spill­ingu í Nígeríu, kom út árið 2021.

Aðspurður hvort hann myndi íhuga að fara aftur til Banda­ríkj­anna sagði Soyinka: „Hvað er ég gam­all?“

Hann skildi þó dyrnar opnar fyrir því að þiggja boð ef aðstæður breytt­ust, en bætti við: „Ég myndi ekki taka frum­kvæðið sjálfur því það er ekk­ert sem ég er að leita að þar. Ekkert.“

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Góð grein. Kannski of djúpt í árina tekið að leggja að jöfnu DT og Idi Amin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár