Bandaríkin verja áttatíu milljörðum dala í kjarnorku fyrir gervigreind

Banda­ríkin hafa efnt til sam­starfs við fyr­ir­tæki um upp­bygg­ingu kjarna­ofna til að anna eft­ir­spurn eftir raf­orku frá gervi­greind­ar­iðn­að­inum. Samn­ingur upp á átta­tíu millj­arða Banda­ríkja­dala hefur verið gerður. Er þetta liður í áætlun Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta um end­ur­reisn kjarn­orkunnar.

Bandaríkin verja áttatíu milljörðum dala í kjarnorku fyrir gervigreind
End­ur­reisn­ar­tíma­bil kjarn­orku Donald Trump vill að Banda­ríkin vinni hnatt­rænt kapp­hlaup um gervi­greind­ina. Mynd: Jim WATSON / AFP

Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hefur gert átta milljar­aða dala samn­ing um upp­bygg­ingu nýrra kjarna­ofna. Samn­ing­ur­inn er á milli stjórn­valda og fyr­ir­tækj­anna Westinghouse Electric Co. og Brookfield Asset Mangement. Um er að ræða fjár­fest­ingu að jafn­virði 99,7 billjóna íslenskra króna.

Fyr­ir­tækj­unum er ætlað að leggj­ast í fram­kvæmdir á nýjum kjarna­ofnum sem eiga að anna eft­ir­spurn eftir raf­orku fyrir gervi­greind. Fyr­ir­tækin segja að samn­ing­ur­inn muni skapa tugi þús­unda starfa í 43 ríkjum. Til­kynn­ing um áformin var birt í dag. 

Endurreisnartímabil kjarnorkunnar

Chris Wright orku­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna sagði sam­starfið lið í að „leysa úr læð­ingi stór­kost­lega fram­tíð­ar­sýn Trumps [Banda­ríkja]for­seta um að full­komna orku­þörf Banda­ríkj­anna og vinna hnatt­ræna kapp­hlaupið um gervi­greind. Trump for­seti lof­aði end­ur­reisn kjarn­orkunnar og nú stendur hann við það.“

Í frétt Reuters segir að samn­ing­ur­inn sé „metn­að­ar­fyllsta fjár­fest­ing í kjarn­orku í ára­tugi og und­ir­strikar stefnu Trumps um „orku­yf­ir­ráð“ sem bein­ist að olíu, gasi, kolum og kjarn­orku.“ 

…
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár