Ætlar að verja Venesúela gegn Bandaríkjunum með rússneskum loftvarnaflaugum

Forseti Venes­ú­ela boðar her­æf­ingar til að mæta hern­að­ar­að­gerðum Banda­ríkj­anna, sem saka hann um að stýra fíkni­efna­hring.

Ætlar að verja Venesúela gegn Bandaríkjunum með rússneskum loftvarnaflaugum
Niculas Maduro Banda­ríkja­for­seti ját­aði á dög­unum að hann hefði heim­ilað leyni­þjón­ust­unni, CIA, „ban­vænar aðgerðir“ í Venes­ú­ela. Hann lýsir for­seta lands­ins sem stjórn­anda fíkni­efna­hrings. Mynd: Zurimar Campos

Nicolas Maduro, for­seti Venes­ú­ela, sagði í gæræ að landið ætti 5.000 rúss­neskar loft­varna­eld­flaugar til að bregð­ast við hern­að­ar­að­gerðum Banda­ríkj­anna á Karí­ba­hafi.

Banda­ríkja­stjórn hefur sent laumu­orr­ustu­þotur og her­skip á Karí­ba­hafið sem hluta af því sem hún kallar aðgerðir gegn fíkni­efna­smygli og hefur sprengt að minnsta kosti átta skip sem hún sagði hafa verið að smygla fíkni­efnum frá Venes­ú­ela til Banda­ríkj­anna.

Venes­ú­ela hefur for­dæmt hern­að­ar­að­gerð­irnar og sagt þær vera upp­takt að því að steypa Maduro af stóli, en Banda­ríkja­stjórn sakar hann um að stýra fíkni­efna­hring.

Í sjón­varps­ávarpi með æðstu her­for­ingjum lands­ins sagði Maduro að Venes­ú­ela ætti rúss­neskar skamm­drægar eld­flaugar, þekktar sem Igla-S, „ekki færri en 5.000 í lyk­il­stöðum loft­varna til að tryggja frið.“

Igla-S, sem er hönnuð til að granda lágt fljúg­andi flug­vélum, hefur verið notuð í her­æf­ingum sem Maduro fyr­ir­skip­aði til að bregð­ast við hern­að­ar­að­gerðum Banda­ríkj­anna, sem hafa reitt leið­toga víða í Suður-Ameríku til reiði.

Banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið, sem kallar sig nú stríðs­mála­ráðu­neyti, hefur til­kynnt þing­inu að Banda­ríkin séu í „vopn­uðum átökum“ við fíkni­efna­hringi í Suður-Ameríku, skil­greint þá sem hryðju­verka­hópa og lýst grun­uðum smygl­urum sem „ólög­legum stríðs­mönnum.“

Sér­fræð­ingar segja að aftökur án dóms og laga séu ólög­legar, jafn­vel þótt þær bein­ist að stað­festum fíkni­efna­sölum. Þannig var Rodrigo Duterte, fyrr­ver­andi for­seti Fillips­eyja, dæmdur af Alþjóða­glæpa­mála­dóm­stólnum í Haag fyrir að fyr­ir­skipa aftökur á grun­uðum fíkni­efna­sölum.

Spenna hefur magn­ast á svæð­inu og Kólumbía hefur kallað sendi­herra sinn heim frá Washington vegna harðra deilna milli vinstri sinn­aðs for­seta lands­ins, Gustavo Petro, og Donalds Trump for­seta.

Trump sagði í gær að hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna hefðu dregið veru­lega úr smygli á sjó og að þeir væru reiðu­búnir að ráð­ast á fíkni­efna­smygl­ara sem starfa á landi. Í gær sprengdu Banda­ríkin í fyrsta sinn upp bát á Kyrra­haf­inu í þess­ari her­ferð gegn meintum fíkni­efna­smygl­urum, skammt frá strönd Kólumbíu.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár