Drápu tvo á Kyrrahafinu

Banda­ríski her­inn gerði loft­árás á bát. Stríðs­mála­ráð­herr­ann segir fíkni­efna­smygl­ara vera hryðju­verka­menn.

Drápu tvo á Kyrrahafinu
Pete Hegseth Boðaði fyrir yfir­mönnum Banda­ríkja­hers að yfir­vof­andi væri stríð gegn óvin­inum innra. Mynd: AFP

Tveir lét­ust í nýrri árás Banda­ríkja­hers á bát sem sagður var not­aður til fíkni­efna­smygls, að sögn Pete Hegseth stríðs­mála­ráð­herra í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem banda­rísk yfir­völd til­kynna um slíka árás á Kyrra­haf­inu, en síð­ustu vikur hafa Banda­ríkin gert loft­árásir á báta á Karí­ba­haf­inu.

Árásin, sem Hegseth til­kynnti um í færslu á X þar sem sýnt var mynd­band af báti í ljósum logum, er sú átt­unda hið minnsta og hafa að minnsta kosti 34 manns látið lífið í þeim.

„Tveir fíkni­efna­hryðju­verka­menn voru um borð í bátnum þegar árásin var gerð á alþjóð­legu haf­svæði. Báðir hryðju­verka­menn­irnir lét­ust og eng­inn banda­rískur her­maður særð­ist í árásinni,“ sagði Hegseth í færsl­unni um árás­ina sem gerð var á þriðju­dag.

„Þeir munu hvergi finna skjól eða fyr­ir­gefn­ingu – aðeins rétt­læti“
Pete Hegseth
Stríðs­mála­ráð­herra

„Rétt eins og Al-Kaída háði stríð gegn …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    Mjög alvarlegt ef forseti Bandaríkjanna hunsar bæði bandarísk og alþjóðleg lög til að koma sínu fram. Þar með er grafið undan réttarríkinu.
    1
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Mál til umhugsunsar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár