Trump hótaði Selenskí að Pútín „myndi eyða“ Úkraínu

Banda­ríkja­for­seti tal­aði máli Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta á eld­fim­um fundi með for­seta Úkraínu.

Trump hótaði Selenskí að Pútín „myndi eyða“ Úkraínu
Selenskí eftir fundinn Úkraínuforseti mætti aftur fjandsamlegu viðhorfi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem neitaði honum um stýriflaugar og hvatti hann til að gefa eftir meira land til Rússa. Mynd: AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti skoraði á Volódýmýr Selenskí Úkraínuforseta að samþykkja skilmála Rússlands til að binda enda á innrásarstríðið á eldfimum fundi í Hvíta húsinu á föstudag og varaði við því að Vladimír Pútín hefði sagt að hann myndi „eyða“ Úkraínu ef hún féllist ekki á kröfur Rússa, að því er Financial Times greinir frá.

Trump hafði fyrir fundinn rætt um möguleikann á að afhenda Úkraínu Tomahawk-stýriflaugar sem draga langt inn í Rússland og gætu breytt vígstöðu Úkraínu til hins betra. Hann hætti við það eftir „vingjarnlegt“ símtal við Pútín Rússlandsforseta daginn fyrir fundinn.

Samkvæmt heimildarmönnum sem voru upplýstir um viðræðurnar endaði fundurinn ítrekað sem „hávaðarifrildi“ og Trump var „stanslaust að blóta“. „[Pútín] sagði að þetta væri „sérstök aðgerð, ekki einu sinni stríð,“ er Trump sagður hafa fullyrt á fundinum.

„Ef hann [Pútín] vill það, mun hann eyða ykkur,“ á Trump til viðbótar að hafa sagt við Selenskí, að sögn evrópsks embættismanns sem þekkir til fundarins.

Heimildarmenn sögðu að Trump hefði hent kortum af víglínunni til hliðar, sagst kominn með „ógeð“, haldið því fram að Selenskí ætti að láta allt Donbas-svæðið af hendi til Rússlands og ítrekað endurtekið röksemdir sem Pútín setti fram í símtali þeirra daginn áður. „Þessi rauða lína, ég veit ekki einu sinni hvar þetta er. Ég hef aldrei komið þangað,“ á Trump að hafa sagt, og bætt við að rússneska hagkerfið væri „í frábæru standi“ þrátt fyrir að hann hafi nýverið sagt opinberlega að „hagkerfið væri að fara að hrynja“.

Pútín gerði Trump nýtt tilboð á fimmtudag þar sem Úkraína myndi afsala sér þeim hlutum Donbas-héraðsins í austri sem hún ræður yfir í skiptum fyrir nokkur lítil svæði í suðurhéruðunum tveimur við víglínuna, Kherson og Zaporizhzhia.

Að sögn FT studdi Trump síðar hugmynd um að frysta stöðuna á núverandi víglínum, en fjandsamlegur tónn fundarins endurspeglaði óstöðuga afstöðu forsetans til stríðsins og tilhneigingu hans til að taka undir hámarkskröfur Pútíns.

Selenskí og teymi hans mættu í Hvíta húsið í þeirri von að fá langdrægar Tomahawk-skotflaugar frá Bandaríkjunum, en Trump hafnaði beiðninni. Hvíta húsið og skrifstofa úkraínskra forseta svöruðu ekki strax beiðnum um athugasemdir, að sögn FT. 

Í viðtali á Fox News á sunnudag sagðist Trump bjartsýnn á að binda endi á átökin og bætti við að Pútín væri „að fara að taka eitthvað, hann hefur unnið sér tiltekið land“.

Eftir fundinnAthygli vakti að Trump Bandaríkjaforseti notaði blótsyrði á blaðamannafundi eftir fund hans með Úkraínuforseta, þegar talið barst að Venesúela.

FT greinir einnig frá því að Pútín hafi á fimmtudag lagt fyrir Trump nýtt tilboð: að Úkraína afhenti þá hluta Donbas í austri sem hún heldur enn, gegn því að fá lítil landsvæði á suðurvígstöðvunum í Kherson og Saporisja. Það væri tilslökun frá tilboði sem Pútín setti fram í fundi með Trump í Alaska í ágúst, þar sem hann vildi frysta víglínuna annars staðar ef Úkraína afhenti Donbas. Financial Times

Úkraínskir og evrópskir embættismenn sem FT ræddi við segja að slík eftirgjöf í Donbas komi ekki til greina: „Að gefa [Donbas] til Rússlands án bardaga er óásættanlegt fyrir úkraínsku þjóðina, og Pútín veit það,“ sagði Oleksandr Merezhko, formaður utanmálaráðs þingsins í Kænugarði. Hann sagði að Pútín ýtti hugmyndinni „til að valda sundrungu innan Úkraínu og grafa undan einingu okkar“. „Þetta snýst ekki um að fá meira landsvæði fyrir Rússa, þetta snýst um hvernig á að eyða okkur innan frá,“ bætti hann við. 

Þrír aðrir evrópskir embættismenn sem fengu upplýsingar um fundinn staðfestu að Trump hefði varið stórum hluta fundarins í að áminna Selenskí, endurtaka rök Pútíns og hvetja hann til að samþykkja rússneska tilboðið. „Selenskí var mjög neikvæður“ eftir fundinn, sagði einn embættismannanna, og bætti við að evrópskir leiðtogar væru „ekki bjartsýnir en raunsæir“ um næstu skref.

Í yfirlýsingu á sunnudag sagði Selenskíj að „afdráttarlaus skref“ þyrfti frá Bandaríkjunum, Evrópu og G20- og G7-ríkjum til að binda endi á stríðið.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    DTT var þekkt sprengiefni á sínum tíma. Segja má að Donald Trump sé einhver furðulegasti þjóðarleiðtogi sögunnar. Hann fer mjög frjálslega með vald sitt og virðist hafa mjög sterk tengsl við hergagnaframleiðendur í BNA.
    DT telur sér allar leiðir færar að ákveða örlög heilla þjóða. Með stuðningi hans hefur hann anað Benjamin Natanyaho út í að fremja mjög alvarlega stríðsglæpi fyrr botni Miðjarðarhafsins. Og sama virðist vera uppi á tengi gnum varðandi Pútín sem virðist hafa ótrúlega mikil áhrif á DT.
    Það var mjög furðuleg ákvörðun DT að ákveða að gtta þátttöku BNA í rekstri WHO og UNESCO. I hans huga er ófriður meira áríðandi en friðsamlegt samstarf alþjóðasamfélagsins á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fyrrum voru forsetar BNA frmur friðsamir þó nokkrir gerðust býsna herskáir og má nefna Richard Nixon, Lyndon B. Johnseon og jafnv el Bush feðgana sem önuðu út í mjög umdeilda innrás í Írak á sínum tíma á vægast sagt mjög veikum forsendum.
    Nú er spurning um NATÓið. Við erum aðilar að þeim ósköpum siðan 1949 og margir telja það sjálfsagt mál en hafa á móti aðild að Evrópusambandinu einhverra hluta vegna. Þau eru allt annars eðlis, eru fremur viðskiptalegs eðlis og menningarlegs. En hernaður og hergagnaframleiðsla virðist vera megininntakið í nútímasamfélaginu og rugla sem flesta í ríminu. Öfgarnar hafa smám saman verið að grípa undirtökin í samfélaginu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Fann leiðina úr myrkri sorgarinnar
2
Viðtal

Fann leið­ina úr myrkri sorg­ar­inn­ar

Jón­as Kwei Ting Sen seg­ir skoð­un sína um­búða­laust og við­ur­kenn­ir að sjá stund­um eft­ir því sem hann hef­ur skrif­að. Nafn kín­versks afa hans, Kwei Ting, merk­ir „hinn heið­ar­legi“ og það hef­ur Jón­as ætíð að leið­ar­ljósi. Að baki bein­skeyttri ímynd býr saga sem fá­ir þekkja til fulls. Snemma á lífs­leið­inni briller­aði hann sem pí­anó­leik­ari og tón­skáld, en á bak við tón­list­ina er saga af einelti og botn­lausri sorg, stór­brotn­um æv­in­týr­um og and­legri leit sem hef­ur far­ið með hann um djúpa dali, í dul­speki, hug­leiðslu og að lok­um í faðm kaþ­ólsku kirkj­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
1
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“
Ljóðskáld í súlufitness og kynlífsþjónustu á netinu
2
Innlent

Ljóð­skáld í súlu­fit­n­ess og kyn­lífs­þjón­ustu á net­inu

Bryn­hild­ur María Ragn­ars­dótt­ir er í meist­ara­námi, hef­ur skrif­að ljóð og fyrsta skáld­sag­an er í vinnslu. Á und­an­förn­um ár­um hef­ur hún einnig starf­að sem súlu­dans­ari og veitt kyn­lífs­þjón­ustu á net­inu. Þótt hún verði vör við for­dóma sumra hef­ur þetta veitt henni auk­ið sjálfs­traust. „Loks­ins var ég með regl­ur og stjórn yf­ir sjálfri mér.“
Styrkur ullarinnar kom á óvart
4
Viðtal

Styrk­ur ull­ar­inn­ar kom á óvart

Hönn­uð­ur­inn Hanna Dís Whitehead lenti í því að þurfa að bíða lengi eft­ir birgð­um fyr­ir hönn­un sína með­an á al­heims­far­aldri stóð fyr­ir nokkr­um ár­um. Í þeirri bið varð henni lit­ið í kring­um sig fyr­ir ut­an vinnu­stof­una sína aust­ur í Horna­firði og velti fyr­ir sér af hverju hún væri ekki að nýta bet­ur efni­við úr nærum­hverfi sínu. Við það kvikn­aði sú hug­mynd sem hún vinn­ur með þessa dag­ana, sem er að hann hús­gögn úr þæfðri ull.

Mest lesið í mánuðinum

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
4
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.
„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
5
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár