Trump hittir Pútín aftur í Búdapest

Banda­ríkja­for­seti bakkar með að afhenda Úkraínu Tomahawk-stýriflaugar og boðar fund með Vladimir Pútín í boði Viktors Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands.

Trump hittir Pútín aftur í Búdapest
Donald Trump í dag For­set­inn virð­ist draga í land með að afhenda Úkraínu tomahawk-stýriflaugar. Mynd: AFP

Forseti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, sagði í dag að hann ætti von á að fundur með Vladímír Pútín, for­seta Rúss­lands, færi fram í ung­versku höf­uð­borg­inni Búdapest innan tveggja vikna, í boði Viktors Orban for­sæt­is­ráð­herra.

„Ég mun lík­lega hitta hann á næstu tveimur vikum,“ sagði Trump við blaða­menn á for­seta­skrif­stof­unni í Hvíta hús­inu og bætti við að utan­rík­is­ráð­herr­ann Marco Rubio myndi fyrst eiga við­ræður við rúss­neska emb­ætt­is­menn.

Trump dró sömu­leiðis í land með hug­myndir um að veita Úkraínu Tomahawk-stýriflaugar, sem hefðu gert úkra­ínska hernum kleift að sækja lengra inn í Rússland til að rjúfa birgða­keðjur og raska víg­bún­að­ar­fram­leiðslu. Hann sagði Banda­ríkin ekki geta „klárað eigin birgðir“. 

Þetta segir Trump dag­inn áður en hann hittir Volodomyr Zelensky, for­seta Úkraínu, sem bundið hefur von við að Trump muni hjálpa til við að binda enda á yfir­stand­andi inn­rás Rússa í Úkraínu.

Trump upp­lýsti jafn­framt við blaða­menn að hann hefði einnig rætt við Vladimir Pútín, for­seta Rúss­lands, í sím­tali um mögu­leik­ann á að láta Úkraínu hafa Tomahawk-eld­flaugar og að honum „lík­aði ekki við hug­mynd­ina.“

Trump greindi frá þessu eftir meira en tveggja klukku­stunda sím­tal við Pútín sem hann lýsti sem „mjög árang­urs­ríku“. Að sögn Trumps komust þeir að sam­komu­lagi um að æðstu ráð­gjafar þeirra, þar á meðal utan­rík­is­ráð­herr­ann Marco Rubio, myndu hitt­ast í næstu viku á ótil­greindum stað. For­set­arnir tveir myndu síðan hitt­ast á eftir því „til að sjá hvort við getum fært þetta ‘alræmda’ stríð, milli Rúss­lands og Úkraínu, til lykta,“ eins og hann orð­aði það.

„Ég tel að mik­ill árangur hafi náðst með sím­tal­inu í dag,“ sagði Trump í færslu á Truth Social.

Júríj Úsjakov, aðstoð­ar­maður Pútíns, sagði við rúss­neskar frétta­stofur að full­trúar ríkj­anna myndu hitt­ast „án tafar“ til að und­ir­búa leið­toga­fund­inn.

Áður en sím­talið fór fram í dag hafði Trump lýst vax­andi gremju gagn­vart Pútín. Hann hafði boðað í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í fyrra að náið sam­band hans við rúss­neska leið­tog­ann gæti leitt til skjótrar lausnar á stríð­inu. Í ágúst bauð hann Pútín á fund í Alaska en án þess að sam­komu­lag næð­ist um áætlun til að binda enda á stríðið.

Upp á síðkastið hefur Trump gagn­rýnt Pútín fyrir linnu­lausar árásir á Úkraínu sem hafi grafið undan frið­ar­um­leitum. Hann hefur lagt áherslu á hversu erfitt sé að semja við rúss­neska leið­tog­ann, jafn­vel gefið til kynna að Pútín hafi stundum villt um fyrir honum og nán­ustu ráð­gjöfum hans. „Ég er mjög von­svik­inn vegna þess að við Vladimír áttum mjög gott sam­band og eigum það lík­lega enn,“ sagði Trump. „Ég veit ekki af hverju hann heldur þessu stríði áfram.“

Eftir sím­talið  í dag kvað við bjart­ari tón hjá Trump. Hann sagði rúss­neska leið­tog­ann hafa óskað honum til ham­ingju með samn­inga hans í Mið­aust­ur­löndum. Hann bætti við að Pútín hefði lýst þakk­læti fyrir störf Melaniu Trump, eig­in­konu for­set­ans, sem hefði átt sam­töl við Pútín í því skyni að tryggja end­ur­komu úkra­ínskra barna sem aðskilin hafa verið fjöl­skyldum sínum vegna stríðs­ins.

„Hann var mjög þakk­látur og sagði að þessu yrði haldið áfram,“ sagði Trump. „Við eyddum líka miklum tíma í að ræða við­skipti milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna þegar stríð­inu í Úkraínu lýkur.“

Hvað verður úr í samn­ingum Trumps við Pútín og hvernig aðkomu Úkraínu verður háttað er hins vegar enn óljóst.

Nýjustu fréttir af víg­lín­unni í Úkra­ínu­stríð­inu eru að Rússar beita nú fyrir sig drónum með norður-kóreskum klasa­sprengjum, en vonir Úkra­ínu­manna um að fá banda­rískar Tomahawk-flaugar hafa dvínað.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Þeir eru svo andskoti vitlausir þessir menn báðir tveir, og ekkert að marka hverju þeir lofa.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Putinsleikja Orban hleypur stríðsglæpamanninum Putin inn fyrir Evrópu.
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Voðalega ætlar Trump að láta draga sig á asnaeyrunum. Það þarf bara að smjaðra fyrir Trump, þá er hann einsog smjör
    1
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Margur heldur auð í annars garði enginn er bróðir í annars leik
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Pútín virðist geta leikið á Trump eins og harmónikku.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár