Ólga vegna útboðs skólamáltíða í Hafnarfirði

Bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Hafn­ar­firði vill óháða úttekt á útboði bæj­ar­ins varð­andi skóla­mál­tíðir.

Ólga vegna útboðs skólamáltíða í Hafnarfirði
Hafn­ar­fjörður Tíu leik- og grunn­skólar eru í Hafn­ar­firði. Mynd: Golli

Nokkur ólga virð­ist vera í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar vegna nýlegs útboðs mat í skólum sveit­ar­fé­lags­ins. Bæj­ar­full­trúi Við­reisnar bók­aði spurn­ingar sem hann vill fá svör við varð­andi útboðið, meðal ann­ars hvers­vegna fyr­ir­tæki með tak­mark­aða reynslu af svo umsvifa­miklum rekstri sótti eitt um og fékk verk­efnið sem hleypur á millj­örðum í þjón­ustu­samn­ingum.

Jón Ingi Hákon­ar­son bók­aði á fundi bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar 24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og sagði þar að nokkur atriði vektu áhuga bæj­ar­full­trú­ans þegar kæmi að útboði bæj­ar­ins vegna skóla­mál­tíða.

Þar spyr hann meðal ann­ars: „Af hverju bauð eng­inn í verkið. Hvað var það í útboðs­skil­málum sem reynd­ustu fyr­ir­tækin á þessum mark­aði treystu sér ekki til að upp­fylla?“

Verkfræðistofa til ráðgjafar

Þá þykir honum sér­kenni­legt að verk­fræði­stofa var til ráð­gjafar í mál­inu en ekki ráð­gjafa­fyr­ir­tæki með reynslu af slíkum útboðum. 

Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður til­kynnti í júní að samn­ingar hefðu náðst við fyr­ir­tækið Í-mat ehf. í átján leik- og grunn­skólum …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár