Umferðartalning við Bæjarháls virðist miða við COVID-umferð

Formaður íbúa­sam­taka Árbæjar setur spurn­inga­merki við að umferð­ar­taln­ing á svæð­inu hafi miðað við óvenju­legt ástand í COVID-far­aldr­inum árið 2021. Hann efast um að þær tölur end­ur­spegli raun­veru­lega umferð.

Umferðartalning við Bæjarháls virðist miða við COVID-umferð
Umferð­ar­öng­þveiti Það tekur tals­vert meiri tíma fyrir íbúa í Árbænum að kom­ast ferðar sinnar eftir breyt­ingar hjá borg­inni. Mynd: Golli

Formaður Íbúa­sam­taka Árbæjar, Elvar Örn Þórisson, segir sér­kenni­legt að breyt­ingar á gatna­mótum við Bæj­ar­háls virð­ist taka mið af umferð í miðjum COVID-far­aldri árið 2021. Samkvæmt skýrslu verk­fræði­stof­unnar COWi kemur fram að mat stof­unnar á umferð­ar­þunga á gatna­mót­unum byggi á tölum sem voru fengnar í lok ágúst 2021, þegar það voru 200 manna sam­komu­tak­mark­anir í sam­fé­lag­inu. 

Eins og margir muna var sam­fé­lagið allt í hers höndum í far­aldr­inum og fjöl­margir sem unnu heima auk þess sem fólk var minna út í umferð­inni, en gögn hafa sýnt að það dróst veru­lega úr allri umferð í COVID þó það sé mis­jafnt eftir mán­uðum og sam­göngu­tak­mörk­unum.   

Óttast Elvar að sú taln­ing geti varla end­ur­speglað raun­veru­lega umferð um svæðið sem er eitt þéttasta atvinnu­svæði Reykja­vík­ur­borgar í ofaná­lagi. 

Óvenjulegir tímar

Í skýrslu verk­fræði­stof­unnar, sem Heim­ildin hefur …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár