Kimmel snýr aftur eftir „yfirvegað samtal“

Spjall­þáttur Jimmy Kimmel snýr aftur á skjá­inn eftir á óvænt hlé á fram­leiðslu þeirra. Þátt­ur­inn var tek­inn af dag­skrá eftir þrýst­ing frá banda­rískum stjórn­völdum.

Kimmel snýr aftur eftir „yfirvegað samtal“

Spjall­þáttur Jimmy Kimmel, sem ABC tók óvænt af dag­skrá í síð­ustu viku eftir að banda­rísk stjórn­völd hót­uðu sjón­varps­stöðvum sem sendu út þátt­inn, snýr aftur á þriðju­dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Disney, eig­anda ABC í dag.

ABC stöðv­aði fram­leiðslu þátt­anna óvænt eftir að íhalds­menn kvört­uðu yfir athuga­semdum sem Kimmel lét falla í kjöl­far morðs­ins á kristna aktí­vist­anum og áhrifa­vald­inum Charlie Kirk.

„Síðasta mið­viku­dag ákváðum við að stöðva upp­tökur á þætt­inum til að forð­ast að magna upp spennu á við­kvæmum tíma fyrir þjóð­ina,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. „Við töldum að sum ummælin hefðu verið óheppi­leg og þar með óvið­eig­andi. Við höfum átt yfir­veg­aðar sam­ræður við Jimmy síð­ustu daga og í fram­haldi af þeim ákváðum við að end­ur­ræsa þátt­inn á þriðju­dag.“

Óvænt brott­hvarf Kimmels af skjánum, sem virt­ist koma í kjöl­far þrýst­ings stjórn­valda á dreif­ing­ar­að­ila ABC, vakti reiði meðal frjáls­lyndra í Banda­ríkj­unum. Gagn­rýnendur sögðu Kimmel hafa verið skot­mark vegna þess að hann væri harður gagn­rýn­andi Donalds Trump for­seta. Trump fagn­aði bann­inu og kall­aði það „góðar fréttir fyrir Ameríku.“

And­stæð­ingar töldu málið nýjasta dæmið um vax­andi stjórn rík­is­ins á tján­ing­ar­frelsi, sem er  horn­steinn banda­rísks lýð­ræðis í hugum margra og stjórn­ar­skrár­var­inn réttur. Jafnvel sumir íhalds­menn, þar á meðal Ted Cruz öld­unga­deild­ar­þing­maður og sjón­varps­mað­ur­inn Tucker Carlson, lýstu efa­semdum.

Á föstu­dag hélt Trump áfram að kvarta yfir gagn­rýnni fjöl­miðlaum­fjöllun og sagði hana „ólög­lega.“

Hótanir frá FCC

Ummæli Kimmels sem deilan hverf­ist um féllu í kjöl­far morðs­ins á Kirk, nánum banda­manni Trumps, sem var skot­inn til bana á háskóla­svæði í Utah. Sak­sókn­arar hafa ákært 22 ára gamlan mann, Tyler Robinson, og ekki talið þörf á að leita ann­arra ger­enda.

Í upp­hafi þátt­ar­ins síð­asta mánu­dag sagði Kimmel að „MAGA-hóp­ur­inn“ reyndi af örvænt­ingu að reyna að lýsa þessum dreng sem ein­hverjum öðrum en sínum eigin.

Hann sýndi síðan upp­töku af Trump sem vís­aði spurn­ingu um áhrif dauða Kirk frá sér með því að monta sig af nýju veislu­sal sem hann er að láta byggja í Hvíta hús­inu. Ummæli Kimmels fengu hlátur frá í sal. 

„Svona syrgir ekki full­orð­inn maður vin sem er myrtur. Þetta er svona eins og fjög­urra ára barn syrgir gull­fisk,“ sagði Kimmel.

Tveimur dögum síðar hót­aði Brendan Carr, for­maður Fjar­skipta­nefndar (FCC), að svipta ABC-stöðvar leyfum til útsend­inga ef þær héldu áfram að sýna þátt­inn. Stuttu síðar til­kynnti fjöl­miðl­aris­inn Nexstar, sem á margar ABC-stöðvar og er í miðju sam­runa­ferli sem þarf sam­þykki FCC, að fyr­ir­tækið myndi fjar­lægja þátt­inn úr dag­skrá stöðva sinna. ABC fylgdi í kjöl­farið og dró hann af skjánum á lands­vísu.

Stjörnur Hollywood bregðast við

Áður en Disney til­kynnti að þátt­ur­inn kæmi aftur á dag­skrá skrif­aði fjöldi kvik­mynda­stjarna undir opið bréf þar sem ákvörð­unin var sögð „dökk stund fyrir tján­ing­ar­frelsi í land­inu, stjórn­ar­skrár­brot og óam­er­ísk.“

„Rík­is­valdið er að hóta einka­fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum sem for­set­inn er ósam­mála. Við megum ekki láta þessa ógn við frelsi okkar óátalda,“ sagði í bréf­inu sem American Civil Liberties Union (ACLU) stóð að.

Meðal und­ir­rit­aðra voru Pedro Pascal, Tom Hanks, Jennifer Aniston, Meryl Streep og Robert De Niro.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár