Kaupir líka höfuðstöðvar Landsvirkjunar

Útgerð­ar­stjóri Samherja og við­skipta­fé­lagi hans kaupa upp rík­is­eignir á fast­eigna­mark­aði.

Kaupir líka höfuðstöðvar Landsvirkjunar
Kristján Vil­helms­son Hefur keypt upp fast­eignir og byggt upp nýjan miðbæ á Selfossi síð­ustu ár. Mynd: Auðunn Níelsson

Fast­eigna­fé­lag í eigu Krist­jáns Vil­helms­sonar, fram­kvæmda­stjóra útgerð­ar­sviðs og eins af stofn­endum Samherja, hefur keypt höf­uð­stöðvar rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Lands­virkj­unar við Háa­leit­is­braut 68 í Reykja­vík, mán­uði eftir að hafa keypt höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­stræti í miðbæ Reykja­víkur.

Lands­virkjun seldi húsið á 1,2 millj­arða króna, en flat­ar­mál þess er 4.555 fer­metrar. Lands­virkjun hefur komið sér fyrir í tíma­bundnu hús­næði við Katrín­ar­tún, þar til áform­aðar höf­uð­stöðvar rísa við Bústað­ar­veg á lóðum sem Lands­virkjun keypti í febr­úar fyrir 1,3 millj­arða króna.

Mygla fannst í hús­næði Lands­virkj­unar við Háa­leit­is­braut fyrir tveimur árum og voru starfs­menn þá fluttir í annað hús­næði.

Háa­leit­is­braut 68Úr turni Lands­virkj­unar er útsýni til allra átta. Starfs­fólk höf­uð­stöðv­anna var um tíma á þremur stöðum í borg­inni, í Grósku, á Hafn­ar­torgi og við Háa­leit­is­braut, en er nú allt sam­einað í leigu­hús­næði við Katrín­ar­tún.

Félagið sem kaupir heitir Lands­byggð ehf. Það er að helm­ingi í eigu Krist­jáns Vil­helms­sonar og öðrum helm­ingi Leós Árna­sonar. Þeir eiga sömu­leiðis félagið Sigtún sem byggir upp nýjan miðbæ á Selfossi og keypti Lands­banka­húsið á Selfossi árið 2020 á 350 millj­ónir króna. Kaupin voru nokkuð umdeild. Eins og fjallað var um í Heim­ild­inni í sept­em­ber 2023 greindi bæj­ar­full­trúi í Árborg frá því að hann hefði fengið til­boð um fjár­hags­legan stuðn­ing í kosn­inga­bar­áttu gegn því að koma í veg fyrir að sama hús yrði keypt af sveit­ar­fé­lag­inu.

Lands­byggð hagn­að­ist um 439 millj­ónir króna á síð­asta birta upp­gjörsári, 2023. Þá skuld­aði félagið Krist­jáni 2,5 millj­arða króna. Var boðað að hlutafé yrði aukið um tvo millj­arða króna. Félagið hét Aust­ur­bær - Fast­eigna­fé­lag þar til í maí að nafni þess var breytt.

Húsið að Háa­leit­is­braut 68 var aug­lýst til sölu í apríl sl. og bár­ust sex til­boð. Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku banka hafði umsjón með sölu­ferl­inu.

Í frétta­til­kynn­ingu er haft eftir Guðjóni Auð­uns­syni, stjórn­ar­for­manni Lands­byggðar ehf, að húsið geti áfram verið atvinnu­hús­næði. „Við sjáum fram á að nýta þetta hús á fjöl­breyttan og metn­að­ar­fullan hátt. Stað­setn­ingin er frá­bær, mið­svæðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nálægt helstu sam­göngu­æðum. Við teljum að húsið geti orðið fyrsta flokks atvinnu­hús­næði þar sem fara saman skrif­stofu-, þjón­ustu- og versl­un­ar­rými.“

Þá segir Rafnar Lárusson, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála og upp­lýs­inga­tækni hjá Lands­virkjun, að unnið sé að þróun nýrra höf­uð­stöðva. „Við hjá Lands­virkjun fögnum því að gömlu höf­uð­stöðv­arnar okkar séu komnar í hendur nýrra eig­enda sem hafa mikla reynslu af upp­bygg­ingar- og umbreyt­inga­verk­efnum. Það fór vel um okkur ára­tugum saman á þessum ein­staka útsýn­is­stað í miðri borg­inni með góðum grönnum. Við ein­beitum okkur núna að því að und­ir­búa bygg­ingu nýrra höf­uð­stöðva. Það mál er komið á rek­spöl þótt end­an­legar ákvarð­anir um upp­bygg­ingu liggi ekki fyrir.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Auðvitað fá sjávarbyggðirnar arðinn af sjávarauðlindinni hjá Samherja eigendum ? Var það ekki það sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu í umræðunum um veiðigjöldin ?
    8
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Alltaf nógir aurar hjá Samherjamönnum, þó þeir barmi sér í útgerðinni
    eins og fleiri þeirra líkar.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár