Samherjastofnandi kaupir „eitt glæsilegasta hús landsins“

Kristján Vil­helms­son og við­skipta­fé­lagi hans víkka út fast­eigna­safn sitt með þriggja millj­arða króna kaupum.

Samherjastofnandi kaupir „eitt glæsilegasta hús landsins“
Kristján Vil­helms­son Stofnaði Samherja með bróður sínum Þor­steini Vil­helms­syni og frænda Þor­steini Má Bald­vins­syni. Mynd: Auðunn Níelsson

Fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­sviðs og einn af stofn­endum Samherja, Kristján Vil­helms­son, hefur keypt gömlu höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans í hjarta mið­borgar Reykja­víkur, ásamt við­skipta­fé­laga sínum Leó Árnasyni.

Kristján, sem hefur hagn­ast veru­lega á sjáv­ar­út­vegi, hóf fyrir nokkrum árum aðkomu að fast­eigna­verk­efnum. Þeir tveir hafa staðið fyrir upp­kaupum á fleiri eignum Lands­bank­ans, meðal ann­ars höf­uð­stöðv­unum á Selfossi, og byggt upp nýjan miðbæ á Selfossi. 

Félag­arnir, í gegnum félagið Lands­byggð ehf, kaupa ekki aðeins gamla Lands­banka­húsið við Aust­ur­stræti 11 heldur einnig er Hafn­ar­stræti 10–12, svo­nefnt Edin­borg­ar­hús frá árinu 1923, auk Hafn­ar­strætis 14 sem var reist árið 1970. 

„Aust­ur­stræti 11 er eitt glæsi­leg­asta hús lands­ins og reynd­ist bank­anum afar vel,“ segir Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, í til­kynn­ingu á vef bank­ans. „Salan markar tíma­mót því nú hefur bank­inn selt öll Lands­banka­húsin, sem voru teiknuð af eða byggðu á teikn­ingum Guðjóns Sam­ú­els­sonar, en líkt og átti við um hin húsin hent­aði Aust­ur­stræti 11 ekki lengur starf­semi bank­ans. Það er mik­il­vægt fyrir mið­borg­ina að húsið fái nýtt hlut­verk og það verður áhuga­vert að fylgj­ast með hvernig bygg­ing­arnar verða nýttar og svæðið glætt nýju lífi.“

Lands­banka­húsiðEin af tákn­myndum mið­borg­ar­innar við Aust­ur­stræti 11.

  

Guðjón Auð­uns­son, stjórn­ar­for­maður Lands­byggðar, segir í sömu til­kynn­ingu að reynt verði að gera húsin „lif­andi hluta af borg­inni á ný“. 

„Lands­byggð horfir til þess að þróa húsin með virð­ingu fyrir sögu þeirra og stað­setn­ingu með það að mark­miði að þau verði lif­andi hluti af borg­inni á ný. Mark­miðið er að efla mann­líf í hjarta borg­ar­innar. Húsin og stað­setn­ingin bjóða upp á ótal mögu­leika sem ríma vel við þá hugsun sem liggur að baki okkar verk­efnum – að vinna með sögu og stað­ar­anda og búa til nýja og skemmti­lega áfanga­staði.“  

Lands­bank­inn flutti starf­semi sína úr Kvosinni árið 2023, úr sam­tals 12 húsum, í nýtt hús­næði við Reykja­stræti 6.  Tvö til­boð bár­ust og var til­boð Lands­byggðar metið hag­stæð­ara, að teknu til­liti til til­boðs­skil­mála og núvirðis á greiðslum. Söluverð hús­anna er 2,85 millj­arðar króna. 

Kristján Vil­helms­son og Leó Árnason eiga sinn helm­ing­inn hvor í félag­inu Lands­byggð ehf.  Þeir eiga sömu­leiðis félagið Sigtún sem byggir upp nýjan miðbæ á Selfossi og keypti Lands­banka­húsið á Selfossi árið 2020 á 350 millj­ónir króna. Kaupin voru nokkuð umdeild. Eins og fjallað var um í Heim­ild­inni í sept­em­ber 2023 greindi bæj­ar­full­trúi í Árborg frá því að hann hefði fengið til­boð um fjár­hags­legan stuðn­ing í kosn­inga­bar­áttu gegn því að koma í veg fyrir að sama hús yrði keypt af sveit­ar­fé­lag­inu.

Lands­bank­inn á SelfossiSögu­fræga banka­hús­næðið var selt sömu aðilum árið 2020.

„Það þarf að stöðva þessa vit­leysu. Íslandi er stundum líkt við Sikiley, hér er nándin svo mikil og menn þora ekki að stíga fram. En ég er bara þannig gerður að ég er kjark­aður, ég ótt­ast engan og ekk­ert og hef aldrei gert,“ sagði bæj­ar­full­trú­inn, Tómas Ellert Tómasson. Leó hafn­aði ásök­un­unum. „Ég er ekki að múta mönnum,“ sagði hann, en ljós­mynd af glæru­sýn­ingu hans á fundi þeirra sýndi hins vegar að hann bauð aðkomu að kosn­inga­bar­áttu sam­hliða því að Árborg félli frá kaupum á hús­inu.

Lands­byggð hagn­að­ist um 439 millj­ónir króna á síð­asta birta upp­gjörsári, 2023. Þá skuld­aði félagið Krist­jáni 2,5 millj­arða króna. Var boðað að hlutafé yrði aukið um tvo millj­arða króna. Félagið hét Aust­ur­bær - Fast­eigna­fé­lag þar til í maí að nafni þess var breytt.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Samkvæmt þingmönnum framsóknarflokksins, miðflokksins og sjálfstæðisflokksins getur þessi kvótagreifi ekki greitt neitt inn í sjávarbyggðirnar vegna þess að þeir eru beðnir um að greiða hærri gjöld fyrir afnot sjávarauðlindinni ?
    3
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Samherjaglæpamennirnir fá óáreittir að valsa um allt allt ásamt fylgikónum. Tómas Ellert bæjarfulltrúi hefur rétt fyrir sér. Og við erum enn sömu molbúarnir og við vorum þegar Danir óðu hér um allt á skítugum skónum. Núna getum við t.d. ekki einu sinni ekið og gengið um okkar eigið land án þess að þurfa að borga tugi þúsunda til einkafyrirtækja. Breytum þessu. Ráðum okkar eigin lögfræðinga, eignumst aftur okkar eigin land. Við færumst með hverju árinu sem líður neðar í lifsgæðum og miðað við hin Norðurlöndin erum við á botninum. Almannaréttur, bæði í þröngri og víðri skilgreiningu, er að engu orðinn.
    8
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Fram hefur komið að tvö tilboð bárust, hver eða hverjir voru hinir sem buðu og hvar eru rökin fyrir því að þeim var hafnað? Ég hef meiri áhuga á að blaðamenn athugi það frekar enn að mæra Kristján og Leó.
    5
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Alveg hissa. Á Samherjabróðirinn svona mikla peninga ?
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár