Palestínumenn samþykkja tillögu um vopnahlé

Lát­lausar árásir dynja á Gaza-borg. Á síð­asta sól­ar­hring hafa fimm lát­ist af völdum vannær­ingar. Hamas gerði engar breyt­ingar á til­lögu um vopna­hlé, en krefst þess að í kjöl­farið taki frið­ar­við­ræður við.

Palestínumenn samþykkja tillögu um vopnahlé

Lát­lausar árásir hafa dunið á Gaza-borg yfir helg­ina. Þá hafa fimm lát­ist af völdum vannær­ingar á síð­asta sól­ar­hring, þar á meðal tvö börn. Amnesty International sakar Ísrael um að svelta fólk vís­vit­andi. Viðræður um vopna­hlé hafa farið fram í Egypta­landi, eftir að Benjamin Net­anyahu fékk sam­þykkta áætlun um að taka yfir Gaza. Nú hefur AFP-frétta­stofan eftir heim­ildum að Hamas hafi sam­þykkt til­lögu að vopna­hléi.  

„Hamas hefur afhent svar sitt til milli­göngu­manna, þar sem stað­fest er að Hamas sam­þykki nýja vopna­hlé­s­til­lögu án þess að krefj­ast breyt­inga,“ sagði heim­ild­ar­maður við AFP. Hann er sagður tengj­ast Hamas en hafa óskað nafn­leyndar.

Þá var haft eftir palen­stínskum heim­ild­ar­manni sem hefur upp­lýs­ingar um við­ræð­urnar að milli­göngu­menn muni „vænt­an­lega til­kynna að sam­komu­lag hafi náðst og ákveða hvaða dag­setn­ingu við­ræður hefj­ast á ný.“

Heim­ild­ar­mað­ur­inn bætti við að „milli­göngu­menn hafi veitt Hamas trygg­ingar um að vopna­hlé yrði komið á, ásamt skuld­bind­ingu um að hefja aftur við­ræður til að leita var­an­legrar lausnar.“

Engin við­brögð hafa borist frá ísra­elskum stjórn­völdum vegna máls­ins.

Hjálp­ar­gögnum varpað niður með fall­hlíf Hjálp­ar­gögnum er varpað niður með fall­hlíf úr her­flug­vél yfir Nuseirat fyrir miðju Gaza-strand­ar­innar, sem Ísrael hefur setið um. Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International saka Ísrael um að fram­fylgja „vís­vit­andi stefnu“ um hung­ursneyð á Gaza, þar sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar og hjálp­ar­sam­tök vara við hung­ursneyð á palest­ínsku svæði. Ísrael tak­markar aðstoð sem leyfð er inn á Gaza-strönd­ina en hafnar því engu að síður að hung­ursneyð ríki á Gaza.

Til­raunir full­trúa frá Egypta­landi og Katar, ásamt Banda­ríkj­unum, hafa hingað til ekki skilað þeim árangri að hægt sé að að tryggja var­an­legt vopna­hlé í stríð­inu, sem nú hefur staðið yfir í 22 mán­uði og skapað alvar­lega mann­úð­ar­krísu á Gaza-svæð­inu.

Annar palest­ínskur emb­ætt­is­maður sagði fyrr í dag við AFP að milli­göngu­menn hefðu lagt til 60 daga vopna­hlé og gísla­losun í tveimur lotum.

Heim­ild­ar­maður úr palest­ínskri víga­hreyf­ingu sem hefur barist við hlið Hamas í Gaza, sagði við AFP að áætl­unin fæli í sér 60 daga vopna­hlé og að „tíu ísra­elskir gíslar yrðu látnir lausir á lífi,“ auk þess sem lík nokk­urra Ísra­els­manna yrðu afhent.

Samkvæmt sama heim­ild­ar­manni yrðu „þeir gíslar sem eftir væru látnir lausir í annarri ­umferð, með því skil­yrði að taf­ar­lausar við­ræður hæfust um víð­tækara sam­komu­lag,“ um var­an­leg stríðs­lok. „Með alþjóð­legum trygg­ingum,“ bætti hann við.

Af 251 gíslum sem Hamas tók til fanga í árásinni þann 7. októ­ber 2023, eru 49 enn í haldi. Af þeim telur ísra­elski her­inn að 27 séu látnir.

Árás Hamas leiddi til dauða 1.219 manns. Flestir þeirra voru óbreyttir borg­arar, sam­kvæmt sam­an­tekt AFP sem byggði á opin­berum tölum. Frá þeim tíma hefur Ísrael drepið meira en 62 þús­und Palest­ínu­menn, sem voru einnig flestir óbreyttir borg­arar, sam­kvæmt tölum frá heil­brigð­is­ráðu­neyti Gaza, sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar telja áreið­an­legar.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár