Enn lengist biðin

Eftir margra ára seinkun og alls kyns vafstur var í apríl 2020 til­kynnt að göngin undir Femern beltið og sam­nefnt sund sem eiga að tengja Danmörku og Þýska­land saman yrðu til­búin árið 2029, jafnt fyrir bíla og járn­braut­ar­lestir. Nú er enn einu sinni komið babb í bát­inn.

Eftir margra ára seinkun og alls kyns vafstur var í apríl 2020 til­kynnt að göngin undir Femern beltið og sam­nefnt sund sem eiga að tengja Danmörku og Þýska­land saman yrðu til­búin árið 2029, jafnt fyrir bíla og járn­braut­ar­lestir. Nú er enn einu sinni komið babb í bát­inn.

Kristján I kon­ungur ku hafa kraf­ist þess árið 1454 að komið yrði á öruggum sigl­ingum milli Ruthby (eins og Rødby hét þá) á Lálandi  og Femern í Þýska­landi. Það næði ekki nokk­urri átt að þurfa að skrölta í hest­vagni og ein­hverjum hæg­fara fleyjum fyrst yfir á Fjón og svo til Jótlands til að kom­ast til Ham­borgar. ,,Ég vil fá beina línu (fugleflugtslinje)“ sagði kóngsi. En það liðu ár og aldir áður en almenni­legar og tryggar sam­göngur sem hægt væri að kalla beina línu milli Rødby og Femern komust á.

Um 1850 voru járn­braut­ar­lestir að ryðja sér til rúms bæði í Þýska­landi og Danmörku, og lestar­teinar voru lagðir milli all­margra stærri staða í báðum löndum.

Hugmynd Gustav Kröhnke

Á miðju ári 1863 gekk Gustav Kröhnke (stundum skrifað Kruhnke) á fund Friðriks VII Dana­kon­ungs og sýndi honum upprátt sem hann hafði gert. Kröhnke var þýskur verk­fræð­ingur og hafði unnið ýmis verk­efni fyrir kóng­inn, sem kall­aði hann iðu­lega bygg­inga­meist­ara sinn. Upp­drátt­ur­inn sem Kröhnke lagði á stóra borðið í Krist­jáns­borg­ar­höll­inni sýndi hug­myndir hans um járn­braut frá Kaup­manna­höfn til Ham­borgar.

Í stuttu máli var hug­myndin sú að brautin yrði í beinni línu en yfir Femern beltið yrði lögð brú eða flóð­garður (eins og Kröhnke orð­aði það) sem lestin færi um. Þessi hug­mynd ein­kennd­ist af nokk­urri bjart­sýni, sér­stak­lega varð­andi teng­ing­una yfir Femern beltið. Konungur, sem lést um haustið, hvatti Kröhnke til að útfæra þessa hug­mynd betur sem hann gerði. Fjár­veit­ing fékkst síðar til að leggja járn­braut og gera ferju­höfn við Rødby en ekki varð meira úr þessum hug­myndum Kröhnke fyrr en síðar, einkum vegna fjár­skorts.

Samkomulag sem ekkert varð úr

Árið 1920 sam­mælt­ust stjórn­endur þýsku og dönsku rík­is­járn­braut­anna um að taka málið upp að nýju. Gerðar voru nýjar áætl­anir og þar var gert ráð fyrir brú yfir Femern beltið. Ekkert varð hins­vegar úr þessum áætl­unum. Nú liðu 35 ár en árið 1955 var gerður samn­ingur um fastar ferðir vöru­flutn­inga­ferja milli Dan­merkur og Þýska­lands, brú­ar­hug­myndin var úr sög­unni. Árið 1963 hófust fastar ferðir far­þega­lesta yfir Femern beltið, með járn­brauta­teng­inum beggja vegna, 100 ár voru þá síðan Kröhnke sýndi Friðriki VII hug­myndir sínar. Þessi sigl­inga­leið frá Rødby á Lálandi til Putt­gar­den á Femern eyju er ætíð nefnd fugleflugtslinjen og sigl­ingin tekur um þrjá stund­ar­fjórð­unga. Þess má geta að árið 1988 höfðu sam­tals 100 millj­ónir far­þega tekið sér far með ,,fugleflugtslinjen“.

Rætt og reiknað, tímamót og breyttir tímar

Stór­aukin bíla­eign og ferða­lög almenn­ings á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar áttu ugg­laust stóran þátt í að ,,brú­ar­hug­myndin“ var enn á ný end­ur­vakin. 1985 hitt­ust sam­göngu­ráð­herrar Dan­merkur og Þýska­lands á nokkrum fundum en engar ákvarð­anir voru teknar. Árið 2008 urðu hins­vegar tíma­mót, þá sam­þykktu þjóð­þing Dan­merkur og Þýska­lands sam­komu­lag um gerð teng­ingar yfir Femern beltið. Þá þurfti að reikna kostnað og gera tíma­á­ætlun. Til þess voru fengin tvö ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sem skil­uðu skýrslum sínum árið 2011. Margt hafði breyst síðan fyrst var farið að tala um brú og bæði ráð­gjafa­fyr­ir­tækin töldu göng mun æski­legri val­kost. Tækninni hafði fleygt fram og kostn­að­ur­inn við göng lítið meiri en að brúa. Göngin sem þarna var um rætt voru eins­konar risarör, steyptar ein­ingar sem tengdar eru saman og liggja á botn­inum. Kostn­að­ur­inn langtum minni en að bora. Göngin sjálf um það bil 18 kíló­metra löng, með land­fyll­ingum beggja vegna. Hver ein­ing um það bil 200 metra löng, 40 metra breið og 9 metra há. Slík ein­ing er engin létta­vara, um 73,500 tonn. Gert var ráð fyrir tveimur akreinum í hvora átt fyrir bíla og tvö­földum lestar­teinum. Ráð­gjafa­fyr­ir­tækin gerðu bæði ráð fyrir að fram­kvæmdir tækju átta ár og ef strax yrði haf­ist handa kæmust göngin í gagnið árið 2020. Öllum, nema kannski ráð­gjafa­fyr­ir­tækj­unum, var ljóst að þetta gengi ekki eftir.

Frá fram­kvæmd­unumLengstu neðan­sjáv­ar­ganga heims munu liggja frá Dan­mörku til Þýska­lands.

Ljónin í veginum

Eins og áður var nefnt voru áætl­anir ráð­gjafa­fyr­ir­tækj­anna varð­andi fram­kvæmda­tíma og verk­lok óraun­hæfar með öllu. Eftir að sam­komu­lagið var und­ir­ritað rigndi inn kærum, fæsta grun­aði kannki að þær yrðu 30 þús­und eins raunin varð. Margar vegna umhverf­is­mála. Langan tíma tók að ganga frá fjár­mála­hlið­inni en danska þingið sam­þykkti 24. apríl 2020  að verkið gæti haf­ist og þá fór und­ir­bún­ingur í fullan gang.

Margir þýskir stjórn­mála­menn voru and­snúnir því að ráð­ast í þessa stóru fram­kvæmd, það var ekki síst pen­inga­hliðin sem stóð í þeim. En í nóv­em­ber árið 2020 vís­aði þýski stjórn­laga­dóm­stóll­inn öllum kærum og kvört­unum á bug og þar með var ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að fram­kvæmdin gæti haf­ist.

Danir borga mest en fá líka tekjurnar

Eftir langar og strangar við­ræður um pen­inga­málin varð nið­ur­staðan sú að Þjóð­verjar borgi allt sín megin en Danir allt sín megin og göngin sjálf. Heild­ar­kostn­að­ur­inn er áætl­aður um 100 millj­arða danskra króna ( 1900 millj­arðar íslenskir), hlutur Dana er um það bil 60 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni. Innheimt verður veg­gjald sem Danir fá allar tekjur af. Upphæð þess liggur ekki fyrir en áætl­anir frá árinu 2020 gerðu ráð fyrir að fullt gjald fyrir fólks­bíl yrði um 500 krónur danskar ( tæpar 10 þús­und íslenskar). Gert er ráð fyrir að göngin verði greidd upp á 36 árum en það veltur vita­skuld á umferð­inni.  Þegar göngin kom­ast í gagnið verður vega­lengdin milli Kaup­manna­hafnar og Ham­borgar 370 kíló­metrar, álíka og frá Reykja­vík til Akur­eyrar. Ef ekið er frá Kaup­manna­höfn um Fjón og Jótland til Ham­borgar er vega­lengdin um 500 kíló­metrar.

Frá fram­kvæmd­unumBæði lest­ar og bif­reiðar geta farið um göng­in þegar þau verða til­búin og er áætlað að ferða­lagið taki um 10 mín­út­ur.

Snurða á þráðinn

Eins og nefnt var í inn­gangi þessa pistils var gert ráð fyrir að Femern teng­ingin yrði til­búin til notk­unar árið 2029, fyrir bíla og járn­braut­ar­lestir. Fyrir skömmu greindi þýski net­mið­ill­inn SHZ frá því að fram­kvæmdir við ganga­gerð milli Femern, sem er eyja, og þýska fasta­lands­ins væru ekki hafnar. Þau göng sem verða lík­lega um tveggja kíló­metra löng, eru for­senda þess að járn­braut­ar­lestir geti notað Femern teng­ing­una. Danska dag­blaðið Politi­ken hefur fjallað um málið og þar kom fram að minnsta kosti sex ár muni líða frá veit­ingu fram­kvæmda­leyfis þar til göngin verði til­búin. Fram­kvæmda­leyfið liggur ekki fyrir. Þýska sam­göngu­ráðu­neytið hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Politi­ken vegna máls­ins en í skrif­legu svari danska sam­göngu­ráð­herr­ans, Thomas Dani­el­sen, segir að hann viti af mál­inu og hafi óskað skýr­inga frá Þjóð­verjum.

Danskir stjórn­mála­menn sem Politi­ken ræddi við hafa lýst mik­illi óánægju og undrun vegna þess­ara óvæntu frétta frá Þýska­landi.

Rétt er að taka fram að gert er ráð fyrir að göngin undir Femern beltið verði opnuð fyrir bíla­um­ferð árið 2029 og seinkun á járn­braut­ar­teng­ing­unni hafi ekki áhrif á þá umferð. Allt bendir hins­vegar til að fólks- og vöru­flutn­ingar með járn­braut­ar­lestum hefj­ist í fyrsta lagi árið 2031.

Til glöggv­unar er rétt að benda á að Femern belti og Femern sund er sitt­hvað. Femern beltið liggur milli Lálands í Danmörku og þýsku eyj­unnar Femern en Femern sundið á milli eyj­unnar  Femern og þýska fasta­lands­ins. 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár