„Við munum þurrka þá út“

Þrátt fyr­ir aukna and­stöðu við stríð­ið hafa al­menn­ir borg­ar­ar í Ísrael litla sam­úð með Palest­ínu­mönn­um á Gaza. Þar hefur ísra­elski her­inn hefur auk­ið þunga í hern­að­ar­að­gerð­um í vik­unni. Ætl­un­in er að „klára verk­ið og full­komna ósig­ur Ham­as,“ sagði Benjam­in Net­anya­hu. Blaða­menn voru drepn­ir í vik­unni, börn svelta og al­þjóð­leg hjálp­ar­sam­tök senda frá sér sam­eig­in­legt ákall gegn nýrri lög­gjöf.

„Við munum þurrka þá út“

Á und­an­förnum dögum hefur Ísra­els­her hert árásir á Gaza með það að marki að „klára verkið og full­komna ósigur Hamas,“ eins og Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, orð­aði það. 

Í lok júlí höfðu um 63 þús­und íbúar á svæð­inu lát­ist í stríð­inu sem hefur nú staðið yfir í 22 mán­uði. Á mið­viku­dag voru minnst 75 manns drepnir, sam­kvæmt yfir­völdum í Gaza. Og í dag hafa 41 nú þegar lát­ist í árásum frá dögun, þar af 16 í leit að mann­úð­ar­að­stoð, segir í sam­an­tekt Al Jazeera. 

Samkvæmt upp­haf­legri áætlun Net­anyahu stóð til að taka yfir allt Gaza svæðið en vegna and­stöðu við þær fyr­ir­ætl­anir var ákveðið að taka fyrst yfir Gaza-borg. Ekki hefur verið gefin upp nákvæm tíma­setn­ing á því hvenær ísra­elski her­inn mun her­taka Gaza-borg, þar sem þús­undir hafa leitað skjóls á stríðs­tímum. Þar hefur her­námsliðið nú þegar aukið hern­að­ar­að­gerðir gegn almennum borg­urum. Upp­lýs­inga­full­trúi Hamas, Ismail Al-Thawabta, sagði …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár