Elsta blað Íslands á ensku skiptir úr prenti í gervigreind

Net­verjar furða sig á gervi­greind­ar­mynd­böndum Viktors Ólasonar, for­stjóra Iceland Review, sem sýna brenglaða mynd af Íslandi. Prentút­gáfu var hætt í fyrra og samn­ingur gerður við kín­verska rík­is­fjöl­mið­il­inn um aug­lýs­ingar. Viktor segir fleiri smella á gervi­greind­ar­mynd­bönd en önnur mynd­bönd.

Elsta blað Íslands á ensku skiptir úr prenti í gervigreind
Úr mynd­bandi for­stjóra Iceland Review Örnefni eru brengluð og menn­ing Íslands skrum­skæld í kynn­ing­ar­efni mið­ils­ins.

Iceland Review, elsti fjöl­mið­ill Íslands á ensku, hætti prentút­gáfu sinni í nóv­em­ber í fyrra. For­stjóri þess segir tíma­ritið of dýrt í fram­leiðslu og hefur und­an­farið birt fjölda gervi­greind­ar­mynd­banda til að laða að aug­lýsendur en mörg þeirra birta skrum­skælda mynd af Íslandi.

Eitt mynd­bandið hefur vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum en þar er Hafn­ar­fjörður aug­lýstur með gervi­greind­ar­rödd sem líkir eftir David Attenborough, þul breskra nátt­úru­lífs­mynda. Teikn­aður vík­ingur dansar að „fornum vík­inga­sið“ við lútu­leik en á skiltum í kring stendur „Vik­arr­fjóriður“ og „Hnkarr­fjórrður“.

„Hvað í ChatGPT fjár­anum var ég að horfa á?“ spyr tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Knútur á sam­fé­lags­miðl­inum Bluesky.

Iceland Review hafði verið gefið út á prenti síðan 1963, land­kynn­ing­ar­rit með ljós­myndum prentað á gæða­pappír. Myndir úr blað­inu hafa ítrekað verið valdar sem frétta­mynd árs­ins. Und­an­farna ára­tugi hefur vef­síða þess einnig birt íslenskar fréttir á ensku og þýsku.

Prentút­gáfa Iceland ReviewBlaðið hafði komið út á prenti frá 1963 en útgáfu þess var hætt í fyrra án til­kynn­ingar.

En sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar var prentút­gáfu hætt í nóv­em­ber í fyrra án til­kynn­ingar. Skipt hefur verið um rit­stjóra og áherslan nú á að bóka hóp­ferðir fyrir ferða­menn í gegnum síð­una. Þá hafi for­stjór­inn boðað inn­leið­ingu gervi­greindar hjá fyr­ir­tæk­inu. Fréttir birt­ast nú á vefnum á átta tungu­málum en bent er á að  Iceland Review noti sjálf­virk þýð­ing­ar­tól og því geti „sumar þýð­ingar inni­haldið villur eða misst blæ­brigði“.

Í eigu félaga í ferðaþjónustu

Félög á sviði ferða­þjón­ustu eru helstu hlut­hafar í Iceland Review. Viktor Ólason er for­stjóri og stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins með tæp 29 pró­sent en á meðal ann­arra hlut­hafa eru ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Kú Kú Campers og félag Gísla Eylands, fram­kvæmda­stjóra Tröll hóp­ferða.

Þá á Draupnir fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Jóns Diðriks Jóns­sonar, eig­anda við­burða­fyr­ir­tæk­is­ins Senu, um tíu pró­sent í Iceland Review. Jafn stóran hlut á félag Krist­jáns M. Grét­ars­sonar fjár­festis sem hefur átt tölu­vert í flug­fé­lag­inu Play í gegnum tíð­ina og sömu­leiðis félag í eigu Rann­veigar Grét­ars­dóttur, stofn­anda Eldingar hvala­skoð­unar og félag í eigu Sveins Andra Sveins­sonar ráð­gjafa.

Einkasamningur við kínverska ríkismiðilinn

Viktor hefur birt fjölda mynd­banda á YouTube síðu sinni sem virð­ist beint til mögu­legra aug­lýsenda Iceland Review. Þau hampa því að mið­ill­inn nái beint til útlend­inga sem áhuga­samir séu um Ísland.

„Við skiptum út prent­vél­unum fyrir efn­is­stjórn­un­ar­kerfi“

„Við skiptum út prent­vél­unum fyrir efn­is­stjórn­un­ar­kerfi,“ segir gervi­greind­ar­rödd á ensku í einu mynd­band­anna. „Skyndi­lega víkk­aði umfang mitt. Ég var ekki lengur bundin við pappír og gat deilt undrum Íslands með leiðum sem ég hafði ekki áður ímyndað mér.“

Úr mynd­bandi for­stjóra Iceland ReviewMynd­bandið er unnið með gervi­greind­ar­tækni.

Mynd­böndin birta mörg hver und­ar­lega ímynd af Íslandi þar sem útlit Reykja­víkur og Hafn­ar­fjarðar birt­ist gjör­breytt, lands­lag og örnefni eru skrum­skæld og siðir og menn­ing Íslend­inga sýnd á skjön við raun­veru­leik­ann.

Í einu mynd­band­anna segir að sam­kvæmt könnun í Kína „meðal efna­fólks“ hafi 16 millj­ónir sett Ísland í fyrsta sæti á svo­kall­aðan „bucket list“ um áfanga­staði. „Með virkni Iceland Review á kín­verskum sam­fé­lags­miðlum og einka­samn­ingi við Kín­verska rík­is­sjón­varpið veitum við þér aðgang til að aug­lýsa í gegnum Iceland Review inn í Kína og til Kínverja um heim allan,“ segir í mynd­band­inu. „Bara samn­ing­ur­inn við CCTV+ veitir þér aðgang að 810 lókal frétta­stofum innan Kína og 2.513 vef­miðlum sem þjóna kín­versku­mæl­andi víða um heim.“

Viktor fund­aði með He Rulong, sendi­herra Kína á Íslandi, í des­em­ber í fyrra. Hvatti He hann til að efla sam­skipti land­anna tveggja á sviði menn­ingar, ferða­mennsku og við­skipta í gegnum Iceland Review og sam­fé­lags­miðla þess, að því segir í frétt á vef utan­rík­is­ráðu­neytis Kína.

Næsta stórþjóð ferðamennskunnar

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Viktor: „Það var orðið of dýrt að fram­leiða tíma­ritið,“ um breyttar áherslur. Hann segir að gervi­greindin verði notuð í mark­aðs­setn­ingu en að áfram verði unnið ritað efni og mynd­bandsefni. „Svo erum við að fikra okkur inn í það að hafa ein­hverjar tekjur af ferða­sölu, aug­lýs­inga­sölu og áskrift. Þetta er ennþá í tapi hjá okkur og við erum að fjár­festa en það er trú okkar á að þetta muni vera fram­tíðin,“ segir hann. 

„Þetta er orðið það sem við köllum marg­miðl­un­ar­heimur þar sem við erum að fá heim­sóknir yfir tveggja millj­óna manna í hverjum ein­asta mán­uði. Plús það sem er að ger­ast í Kína,“ segir Viktor. Þá keppir Iceland Review nú við Meta og Google um aug­lýs­ingar. 

Úr mynd­bandi for­stjór­ansTíma­ritið hefur hætt prentút­gáfu og er áherslan nú á bók­anir hóp­ferða.

Viktor segir Kína verða „næstu stór­þjóð í ferða­mennsku á Íslandi“. Það hafi verið ákveðin for­senda gerðar einka­samn­ings­ins við kín­verska rík­is­fjöl­mið­il­inn. Þá eiga áætl­un­ar­flug frá þremur borgum í Kína einnig að hefj­ast á næsta ári. „Þannig við viljum koma okkur fyrir þarna fyrir íslensk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki,“ segir Viktor. Hann segir að í samn­ingnum felist fleiri tæki­færi en með honum geti Kín­verjar – sem geta ekki notað Facebook og Google – bókað ferðir og keypt vörur frá Íslandi í gegnum vef­síðu Iceland Review. 

Gervigreindin fær flesta smelli

Viktor segir að gervi­greindin sé „hag­kvæm og nýi tím­inn.“ Hún hafi reynst tíma­rit­inu vel en hann sé með­vit­aður um skiptar skoð­anir á notkun hennar. „Það er eins og þegar rit­vélin kom, allir einka­rit­arar voru skít­hræddir. Nú eru þeir sem hanna aug­lýs­ingar skít­hræddir og það má alveg deila um það,“ segir hann. 

Úr mynd­bandiFurðuleg borg­ar­mynd Reykja­víkur birt­ist í einu af mynd­böndum Viktors.

Viktor segir að smellt sé oftar gervi­greind­ar­mynd­böndin en önnur mynd­bönd. „Þetta er spurn­ing um að tekið sé eftir þér,“ útskýrir hann. Blaða­maður spyr hvort það geti ekki talist óvar­legt að birta gervi­greind­ar­mynd­bönd þar sem íslenskur raun­veru­leiki sé skrum­sældur. Viktor svarar: „Þetta er alveg eins og með álf­ana og Húsavík. Þetta á að vera í létt­ari kant­inum. Fólk gerir sér grein fyrir því, vídjóið er þannig upp­byggt.“

Hann segir að á vef­síðu Iceland Review sé hægt að finna raun­veru­legar myndir og mynd­bönd, til dæmis af Hafn­ar­firði, en að gervi­greindin nái fólki inn á síð­una. „Þetta er til að fá fólk til að klikka á aug­lýs­ing­una,“ útskýrir hann.   

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bubbi Morthens skrifaði
    Þetta lið svífst einskis til að græða
    2
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Það má eiginlega segja að nú sé hin fyrrum vandaða útgáfa Iceland Review komin í skítinn. Hvort heldur á gömlum tíma eða nýjum þá er lágkúran söm við sig.
    1
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Sumir gera allt fyrir frægðina - líka að koma nakinn fram
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár