Kókaín, bananar og ferðatöskur

Starfs­fólki í 12 Coop versl­unum í Danmörku brá í brún þegar verið var að bæta á ban­ana­hill­urnar fyrir skömmu. Í ban­ana­köss­unum voru ekki ein­göngu ban­anar heldur einnig mörg hund­ruð kíló af kóka­íni. Notkun á kóka­íni hefur þre­fald­ast í Kaup­manna­höfn á tíu árum og sömu sögu er að segja frá mörgum Evr­ópu­löndum.

Skúma­skot, þoka og rign­ing eru algengur vett­vangur atburða í glæpa­sögum og kvik­myndum sam­tím­ans. Grun­sam­legar skjala- og ferða­töskur koma sömu­leiðis stundum við sögu að ógleymdum skamm­byssum, og á síð­ari árum far­símum.

Fæstum koma lík­lega ban­anar í hug þegar afbrot eru ann­ars vegar. Þeir koma hins vegar við sögu í brönd­urum og mynda­sögum þar sem fólk rennur til á hálu hýð­inu.

Einn vinsælasti ávöxtur í heimi

Bananar vaxa úr blómi ban­ana­plönt­unnar og eru hirtir af plönt­unni þegar þeir eru um það bil 9 mán­aða gamlir. Hýði óþroskaðs ban­ana er grænt en gulnar þegar þrosk­inn verður meiri.

Banani er einn vin­sæl­asti ávöxtur í heimi og árlega neyta jarð­ar­búar um það bil 100 millj­arða ban­ana.

Rann­sóknir vís­inda­manna benda til að ban­ana­plantan sé meira en 7 þús­und ára gömul og meðal elstu plantna sem rækt­aðar eru í heim­inum. Að lík­indum er ban­an­inn upp­runn­inn í Nýju Gíneu um 5 þús­und árum fyrir Krist en breidd­ist fljótt út til landa í Suður-Asíu og Afríku.

Til eru hund­ruð afbrigði ban­ana en það lang algeng­asta heitir Cavendish, það er þetta afbrigði sem við sjáum í öllum mat­vöru­versl­unum. Fram á 7. ára­tug síð­ustu aldar var annað afbrigði ban­ana lang útbreidd­ast, það heitir Gros Michel. Þessi teg­und, eða afbrigði, hvarf að mestu leyti vegna sveppa­sjúk­dóms, sem nefnd­ist Panama­veikin. Cavendish afbrigðið þoldi hins vegar þessa skæðu veiru og er nú nær einrátt á mark­aðnum.

Fjöl­margar bækur hafa verið skrif­aðar um þennan vin­sæla ávöxt, ein sú þekktasta er lík­lega „ Banana, the fate of the fruit that changed the world“ eftir Banda­ríkja­mann­inn Dan Koeppel. Í bók­inni, sem kom út árið 2007 lýsti höf­undur áhyggjum vegna „fram­tíðar ban­an­ans“ eins og hann komst að orði. Hvað muni ger­ast ef sveppa­sjúk­dómur, líkt og Panama­veikin, breið­ist út með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum?

Helstu fram­leið­endur ban­ana eru Indland, Kína, Brasilía,Fil­ipps­eyjar, Ekvador, Kólumbía, Perú og Kosta Ríka. Stór hluti þeirra ban­ana sem fluttir eru til Evrópu kemur frá þeim fjóru síð­ast­nefndu.

Vís­inda­menn víða um heim hafa um ára­bil reynt að þróa erfða­breytta ban­ana sem geym­ast betur og verða ekki brúnir. Breska líf­tækni­fyr­ir­tækið Tropic til­kynnti í febr­úar á þessu ári að vís­inda­menn fyr­ir­tæk­is­ins hefðu fundið aðferð til að auka líf­tíma ban­ana, eins og það var orðað.

Kókaín í bananakössum

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils rak starfs­fólk í versl­unum Coop fyr­ir­tæk­is­ins á Sjálandi í Danmörku í rogastans þegar það opn­aði ban­ana­kassa sem voru nýkomnir á lag­er­inn og áttu að fara beina leið í búð­ar­hill­urnar. Í köss­unum voru nefni­lega ekki bara ban­anar, þar voru einnig pokar með hvítu dufti, sem í ljós kom að var kókaín. Ekki hefur verið upp­lýst hvað magnið í ban­ana­send­ing­unni var mikið en þó var upp­lýst að það hefði verið meira en 840 kíló, sem var ann­ars mesta magn sem toll­gæsla og lög­regla í Danmörku höfðu kom­ist yfir í einni send­ingu (sú send­ing var reyndar í ferða­töskum). Hvaðan ban­ana­send­ingin til Coop kom hefur ekki verið upp­lýst.

Daginn eftir að upp­víst varð um „ban­ana­send­ing­una“ til Coop greindi danska lög­reglan frá því að starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins hefði verið hand­tek­inn og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Hann hafði stungið undan rúm­lega einu og hálfu kílói af kóka­íni og komið fyrir í far­ang­urs­geymsl­unni í bíl sínum. „Með gróða­blik í auga“ sagði einn dönsku miðl­anna. Götuverð á einu grammi af kóka­íni í Danmörku er um þessar mundir 500 – 700 danskar krónur.

Ekki í fyrsta sinn

Sú aðferð að koma kóka­íni fyrir innan um ban­ana er ekki alveg ný af nál­inni. Í des­em­ber í fyrra (2024) lögðu yfir­völd í Dóminíska lýð­veld­inu hald á 9,5 tonn af kókíni í send­ingu sem ætl­unin var að færi til Belgíu. Um svipað leyti fund­ust 95 kíló af kóka­íni í ban­ana­kössum á lag­ernum í þýskri mat­vöru­verslun og skömmu fyrir jól árið 2023 fund­ust 134 kíló af kóka­íni í ban­ana­send­ingu til Noregs. Í nóv­em­ber 2024 lagði spænska toll­gæslan hald á 13 tonn af kóka­íni, það var í gámi sem var kyrfi­lega merktur sem ban­anaf­armur. Mörg fleiri til­vik mætti nefna sem öll eiga það sam­eig­in­legt að kóka­íni hafi verið komið fyrir í ban­ana­send­ingum. Eft­ir­spurn eftir kóka­íni hefur nær þre­fald­ast í Evrópu á síð­ustu 10 árum, að mati lög­reglu.

Dropoff aðferðin

Auk þess að senda kókaín með ban­ana­förmum hefur aðferð sem tolla­yf­ir­völd nefna „dropoff“ tals­vert verið notuð. Hún felst í því að kóka­íni er komið fyrir í ferða­töskum sem eru búnar eins konar flot­holtum þannig að þær sökkvi ekki. Síðan er tösk­unum, iðu­lega nokkrar bundnar saman og með stað­setn­ing­ar­búnað, varpað í sjó­inn á til­teknum stað og tíma, skammt undan landi. Svo þarf ein­hver sam­starfs­maður sem kemur á svæðið, til dæmis á trillu, að hirða tösk­urnar upp og koma þeim til lands, svo lítið beri á. Þarna þarf margs að gæta til að allt gangi upp, og það vil stundum bregð­ast. 840 kílóin sem nefnd voru framar í þessum pistli voru einmitt í ferða­töskum sem ráku á strendur við Sjá­landsodda árið 2024. Í ágúst sama ár hand­tók lög­reglan sex menn sem voru að koma til lands á Langa­landi með 700 kíló af kóka­íni í „flot­töskum“ eins og það var orðað í til­kynn­ingu frá lög­reglu. 

Af hverju kókaín með bananasendingum?

Ástæða þess að kóka­ínsmygl­arar hafa í síauknum mæli beint sjónum sínum að ban­ana­flutn­ingum til að kom­ast fram­hjá evr­ópskum toll­vörðum er, að mati tolla­varða ein­föld. Bananar eru við­kvæm vara (öðru­vísi en til dæmis gúmmí­skór eins og einn toll­vörður komst að orði) og þess vegna áríð­andi að toll­af­greiðsla þeirra gangi hratt fyrir sig. Kóka­ínsmygl­ar­arnir kunna öll trikkin í bók­inni, eins og sagt er, og reyna að koma því svo fyrir að send­ingar þeirra komi á anna­tímum hjá toll­gæsl­unni þegar eft­ir­litið er stundum minna. Komið hefur í ljós að þeir eiga sér sam­starfs­menn meðal hafn­ar­verka­manna og jafn­vel áhafna flutn­inga­skipa.

Frétta­maður danska útvarps­ins, DR, spurði Henrik Vigh pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla og yfir­mann rann­sókn­ar­set­urs í afbrota­fræðum hvað væri til ráða í bar­átt­unni við kóka­ínsmyglar­ana. Hann svar­aði því til að eina leiðin til að ná árangri í þeirri bar­áttu væri stór­bættur tækja­kostur toll­gæsl­unnar, t.d gegn­um­lýs­ing­ar­bún­aður fyrir gáma ásamt auknum mann­skap og sam­vinnu við tolla­yf­ir­völd í öðrum löndum. „En kóka­ínsmygl­ar­arnir eru kunn­áttu­menn á sínu sviði og þeir hafa mikla pen­inga milli hand­anna þannig að ein­hver loka­sigur í bar­átt­unni við þá næst kannski aldrei“ sagði Henrik Vigh.

Bananalýðveldi

Flestir kann­ast við að hafa heyrt talað um ban­ana­lýð­veldi, oft­ast um lönd þar sem spill­ing er útbreidd. Orðið er oft rakið til áhrifa stór­fyr­ir­tækja í stjórn­málum í Hondúras og Gvatemala. Bananar hafa lengi verið ein helsta útflutn­ings­vara þess­ara landa og stór­fyr­ir­tæki hafa lengi haft mikil áhrif á stjórn land­anna, með mútum og glæpum.    

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár