Bandaríkin yfirgefa UNESCO

Banda­ríkin til­kynntu í dag að þau hafi yfir­gefið UNESCO – Menn­ing­ar­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. Tals­maður Hvíta húss­ins sagði ástæð­una vera þá að stofn­unin styðji „woke, sundr­andi“ mál­efni. Þá full­yrða Banda­ríkin að stofn­unin sýni andúð gegn Ísrael.

Bandaríkin yfirgefa UNESCO
Trump yfir­gefur UNESCO Þykir stof­unin vera „woke“ og sýna andúð gegn Ísrael. Mynd: AFP

Í dag var til­kynnt að Banda­ríkin hyggð­ust yfir­gefa UNESCO – Menn­ing­ar­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna tveimur – árum eftir að ríkið gekk aftur til liðs við stofn­un­ina í stjórn­ar­tíð fyrrum Banda­ríka­for­seta Joe Biden. 

„Trump for­seti hefur ákveðið að draga Banda­ríkin úr UNESCO – sem styður woke, sundr­andi menn­ingar- og félags­leg mál­efni sem eru algjör­lega úr takti við þá stefnu sem Banda­ríkja­menn kusu með í nóv­em­ber,“ sagði Anna Kelly, tals­maður Hvíta húss­ins, við New York Post. Þá segir Hvíta húsið að stofn­unin sýni Ísrael andúð. 

Í lok des­em­ber 2026 tekur ákvörð­unin gildi. Er hún áfall fyrir UNESCO, en stofn­unin hefur aðsetur í París og var stofnuð eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina til að efla frið með alþjóð­legu sam­starfi í menntun, vís­indum og menn­ingu.

Sakar UNESCO um andúð gegn Ísrael

Í febr­úar fyr­ir­skip­aði Trump níu­tíu daga end­ur­skoðun á þátt­töku Banda­ríkj­anna í UNESCO, með sér­stakri áherslu á að rann­saka gyð­inga­hatur og …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár