Segja fráfarandi stjórnarmann hafa dregið sér 3 milljónir

Ný fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins útskýrir í tölvu­pósti til flokks­manna hvers vegna þrír úr fyrri for­ystu flokks­ins hafa verið kærðir. Átök eru boðuð á fundi Vor­stjörn­unnar síð­degis í dag.

Segja fráfarandi stjórnarmann hafa dregið sér 3 milljónir
Sós­í­alista­flokkur Íslands Átök eru boðuð á fundi Vor­stjörn­unnar kl. 17:30 í dag í hús­næði flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ný fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins hefur sent tölvu­póst á félaga þar sem þeir eru hvattir til að skrá sig í félagið Vor­stjörn­una og taka þátt á boð­uðum aðal­fundi þess í dag. Jafn­framt er því haldið fram að aðal­fund­ur­inn sé ólög­legur.

Deilur hafa staðið á milli nýrrar stjórnar flokks­ins sem kosin var á aðal­fundi 24. maí og frá­far­andi stjórnar með Gunnar Smára Egilsson, stofn­anda flokks­ins og rit­stjóra Sam­stöðv­ar­innar, í fara­broddi. Ný stjórn hefur kært þrjá aðila úr fyrr­ver­andi for­ystu flokks­ins og lýsir ástæð­unum fyrir því í tölvu­póst­inum.

Deil­urnar snú­ast að miklu leyti um Vor­stjörn­una, sjálf­stætt félag með eigin kenni­tölu sem hefur fengið helm­ing þeirra fram­laga sem rík­is­sjóður hefur greitt Sós­í­alista­flokknum und­an­farin ár og öll fram­lög Reykja­vík­ur­borgar til flokks­ins. Félagið er leigu­taki á hús­næði flokks­ins við Bolholt 6, en fjöl­mið­ill­inn Sam­stöðin, sem Gunnar Smári stýrir, deilir einnig hús­næð­inu sem Vor­stjarnan er skrifuð fyrir. Móð­ur­fé­lag Sam­stöðv­ar­innar, Alþýðu­fé­lagið, hefur fengið hinn helm­ing fram­laga rík­is­sjóðs til flokks­ins.

Félagið Vor­stjarnan hefur aldrei haldið aðal­fund og félaga­talið er á huldu eftir að vefur þess var yfir­tek­inn í júní. Gjald­keri félags­ins var í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins sem felld var á aðal­fundi í maí en hefur aldrei verið form­lega kosin í stjórn Vor­stjörn­unnar. Aðal­fundur félags­ins á að fara fram kl. 17:30 í dag og hefur nýtt félaga­tal verið stofnað sem allir geta skráð sig á.

Nýja fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins sendi tölvu­póst til félags­manna á föstu­dags­kvöld og sagði stjórn Vor­stjörn­unnar hafa lagt fram kröfur á flokk­inn upp á annan tug millj­óna og kraf­ist þess að flokk­ur­inn mundi yfir­gefa hús­næðið fyrir miðjan júlí.

„Nú hefur verið fjallað um kærur sem lagðar hafa verið fram í fjöl­miðlum,“ segir í tölvu­póst­inum sem sendur var út í morgun. „Fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins kaus að greina ekki opin­ber­lega frá því né nafn­greina þrjá aðila úr fyrr­ver­andi for­ystu sem hafa verið kærðir, vegna rök­studds gruns og í einu til­viki játn­ingu, fyrir mis­mun­andi brot á lögum. Það var gert að með­vit­uðu ráði til að hlífa því fólki við fjöl­miðla­at­hygli þrátt fyrir aðstæður.“

Segja fyrrverandi gjaldkera hafa millifært 3 milljónir

Í tölvu­póst­inum segir að kært hafi verið eftir að samn­ing­ar­við­ræður lög­fræð­inga flokks­ins og Vor­stjörn­unnar hafi farið í þrot. „Fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins ýtti hart á eftir því að ná mála­miðlun til sátta, sem fól meðal ann­ars í sér að engar kærur yrði lagðar fram. Því var hafnað og ófor­skammaðar kröfur voru sendar til baka. Vísa á flokknum úr hús­næð­inu, rukka á flokk­inn um mark­aðs­verð leigu aft­ur­reiknað til ára og kraf­ist er milli­færslu helm­ings rík­is­styrks flokks­ins til Vor­stjörn­unnar þrátt fyrir að sú stefna hafi verið gerð aft­ur­reka með sigri nýrrar for­ystu á aðal­fundi flokks­ins í lok maí, sem barð­ist meðal ann­ars fyrir því að rík­is­styrk flokks­ins yrði varið í innra upp­bygg­ing­ar­starf. Aðil­arnir sem voru kærðir kusu svo sjálf að opin­bera sig og fóru með málið í fjöl­miðla þar sem farið var með rangt mál um sak­ar­giftir,“ segir í póst­inum.

Þá kemur fram hverjir hafi verið kærðir og af hvaða ástæðum. „Fyrr­ver­andi gjald­keri og stjórn­ar­maður kosn­inga­stjórnar, Guð­mundur Auð­uns­son, hefur játað og lýst yfir stolti að hafa milli­fært 3 millj­ónir króna af reikn­ingi kosn­inga­stjórnar. Þessa upp­hæð milli­færði Guð­mundur sem 1 milljón króna á dag, þrjá daga í röð (hámarks­út­tekt á dag), sam­tals 3 millj­ónir króna beint inn á reikn­ing Vor­stjörn­unnar nú í byrjun júní. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa ekki hlotið end­ur­kjör í stjórn­ar­sæti á aðal­fundi Sós­í­alista­flokks­ins 24. maí síð­ast­lið­inn. Hann hafði því ekk­ert umboð né heim­ild til að fram­kvæma þá milli­færslu og gerði það því ólög­lega.“

„Guð­mundur Auð­uns­son, hefur játað og lýst yfir stolti að hafa milli­fært 3 millj­ónir króna af reikn­ingi kosn­inga­stjórnar“

Fyrr­ver­andi vara­for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins og gjald­keri Vor­stjörn­unnar, sem þó situr ekki í stjórn félags­ins, Sara Stef Hild­ar­dóttir, hefur einnig verið kærð. „Hún er ein skugga­stjórn­enda Vor­stjörn­unnar og tók þar við sem gjald­keri þrátt fyrir að sitja ekki í stjórn félags­ins. Á þeim tíma hefur hún greitt sjálfri sér laun í verk­taka­greiðslum sem hús­vörður. Fyrir þeirri ákvörðun liggja engin gögn; engar fund­ar­gerðir, engir samn­ingar og var sú ákvörðun hvergi rædd á vett­vangi stjórnar, hvorki fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins né lög­legrar stjórnar Vor­stjörn­unnar enda hefur sú stjórn aldrei haldið stjórn­ar­fund. Sara var því kærð fyrir fjár­drátt enda er rök­studdur grunur á því þegar að mann­eskja skammtar sjálfri sér laun án þess að hafa neitt umboð til þess né að lög­lega tekin ákvörðun liggi þar fyrir.“

Segja fundinn ólöglegan en hvetja til mætingar

Loks kemur fram að for­maður Vor­stjörn­unnar frá stofnun, Védís Guð­jóns­dóttir, hafi verið kærð fyrir rök­studdan grun um ólög­mæta með­höndlun á stjórn félags­ins. „[H]ún hefur leyft aðilum sem hafa ekki verið kjörnir í stjórn félags­ins, skugga­stjórn­endum, að fara með ákvörð­un­ar­vald yfir fjár­munum félags­ins, falsað fund­ar­gerðir, skrifað undir ólög­mæta leigu­samn­inga án aðkomu ann­arra stjórn­ar­með­lima og hunsað alger­lega beiðnir um að halda stjórn­ar­fundi með lög­lega skráðum stjórn­ar­með­limum. Þá hefur hún boðað þennan ólög­lega aðal­fund Vor­stjörn­unnar sem hald­inn verður á mánu­dag­inn 30. júní án þess að hafa boðað stjórn­ar­fund í öll þau ár sem félagið hefur verið til og án þess að bera það undir aðra stjórn­ar­með­limi.“

Loks hvetur nýja fram­kvæmda­stjórnin flokks­menn til að mæta í Boltholt 6 kl. 17:30 í dag til að sækja aðal­fund Vor­stjörn­unnar. Klukku­tíma fyrr verður upp­lýs­inga­fundur fram­kvæmda­stjórn­ar­innar á sama stað.

„Nýkjörnar stjórnir Sós­í­alista­flokks­ins vilja alls ekki tor­tíma þessu félagi eins og rang­lega hefur verið haldið fram af þessum sömu aðilum,“ segir loks í póst­inum. „Þvert á móti er þess kraf­ist að fund­ur­inn verði kos­inn ólög­legur og honum frestað þar til lög­lega skráðir stjórn­ar­með­limir Vor­stjörn­unnar, Védís Guð­jóns­dóttir og Sigrún Unn­steins­dóttir, haldi lög­legan stjórn­ar­fund sín á milli og í kjöl­far þess boði til lög­legs aðal­fundar eins og á að gera sam­kvæmt lögum.“

Segir Samstöðina þurfa að loka í kvöld

Gunnar Smári hvetur fólk til mæt­ingar í fund­inn í færslu á Facebook í dag. „Nú vill svo til að fólkið sem tók Sós­í­alista­flokk­inn yfir á síð­asta aðal­fundi vill líka taka Vor­stjörn­una yfir, kom­ast yfir eigur hennar og færa þar inn í flokk­inn svo ný for­ysta geti ráð­stafað þeim í eigin þágu. Þetta er gegn sam­þykktum Vor­stjörn­unnar, sem er ætlað að starfa með gras­rót­ar­hreyf­ingum,“ skrifar hann.

„...skipu­lögð aðgerð fámennrar klíku til að kom­ast yfir fé og eignir þess­arar hreyf­ingar“

Hann sakar nýja fram­kvæmda­stjórn flokks­ins um að hafa náð völdum með smölun í flokk­inn og rógs­her­ferð „[s]em er skipu­lögð aðgerð fámennrar klíku til að kom­ast yfir fé og eignir þess­arar hreyf­ingar til að byggja undir per­sónu­legan og póli­tískan metnað fámennrar klíku.“

Gunnar Smári segir Sam­stöð­ina munu þurfa að loka í kvöld ef hún missir hús­næði sitt, nái nýja fram­kvæmda­stjórnin völdum í Vor­stjörn­inni. „Og fara gegn Sönnu, sem teng­ist Vor­stjörn­unni sterkum böndum,“ skrifar hann. „Ekki bara vegna þess að hún hefur per­sónu­lega lagt til Vor­stjörn­unnar lík­lega um 9 mkr. á liðnum árum, heldur vegna þess að Vor­stjörn­unni er ætlað að ýta undir starf eins og það sem Sanna spratt upp úr og varð hennar leið inn í stjórn­málin.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár