Veðurklúbburinn spáir sunnanátt í júní

Veð­ur­klúbb­ur­inn á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dalbæ á Dalvík spáir fyrir veðri, meðal ann­ars út frá tungl­inu og draum­förum. Í spá hans fyrir júní­mánuð segir að von sé á sunn­an­átt.

Veðurklúbburinn spáir sunnanátt í júní
Frá fundi í upp­hafi júní Í aft­ari röð frá vinstri: Hörður Krist­geirs­son, Guðrún I Krist­jáns­dóttir, Kjartan Gúst­afs­son, Inga Sig­ur­björg Sig­ur­páls­dóttir, Þóra Jóna Finns­dóttir og Garðar Ing­ólfs­son. Fyrir framan sitja Ásgeir Stef­áns­son og Haukur Har­alds­son. Mynd: Aðsend

„Meðlimir veð­ur­klúbbs­ins [voru] sam­mála um að síð­asta spá hafi gengið eftir þar sem spáð var fyrir mildum maí. Maí­mán­uður var sann­ar­lega mildur og hlýr, hlýjasti maí­mán­uður á lands­vísu frá upp­hafi mæl­inga og hita­met slegin á flestum veð­ur­stöðvum lands­ins.“

Þetta segir í fund­ar­gerð frá jún­ífundi Veð­ur­klúbbs Dalbæjar – sem er hjúkr­un­ar­heim­ili á Dalvík. Fundinn sóttu átta manns á aldr­inum 60–92 ára – bæði íbúar og fólk í dag­þjálfun á Dalbæ. Með­lim­irnir hitt­ast alla jafna í upp­hafi hvers mán­aðar, en klúbb­ur­inn hefur verið starf­andi síð­ast­liðna þrjá ára­tugi.

Á síð­asta fundi álykt­uðu með­limir klúbbs­ins að í ljósi þess að nýtt tungl hefði kviknað þann 27. maí kl. 03:02 í norðri þýddi það að það mætti eiga von á sunn­anáttum í júní. Þá spáði klúbb­ur­inn því að sú kröft­uga lægð og norð­an­átt sem hefði ein­kennt upp­haf júní­mán­aðar færi hægt yfir en þegar nær drægi miðjum mán­uði ætti að fara að fara …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár