VG undirbýr framboð með öðrum flokkum

Svandís Svav­ars­dóttir ýjar að sam­starfi við Sós­í­alista­flokk­inn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á næsta ári.

VG undirbýr framboð með öðrum flokkum
Svandís Svav­ars­dóttir Svandís tók við sem for­maður VG eftir að Katrín Jak­obs­dóttir hætti á Alþingi. Mynd: Golli

Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir að víða sé rætt um sam­starf flokks­ins við aðra stjórn­mála­flokka um fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á næsta ári.

Vinstri græn misstu allan sinn þing­styrk í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum eftir að hafa leitt rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum í nær átta ár. Svandís tók við for­mennsku í flokknum eftir að Katrín Jak­obs­dóttir hætti á Alþingi til að bjóða sig fram til for­seta í fyrra.

Í færslu á Facebook segir Svandís að und­ir­bún­ingur flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar sé haf­inn. „Á föstu­dag­inn var áttum við mik­il­vægan stjórn­ar­fund þar sem við rýndum stöð­una í sveit­ar­fé­lög­unum og svæð­is­fé­lög­unum okkar,“ skrifar hún. „Það er skýr þróun að fylgi VG er að mjakast hægt en örugg­lega upp á við – enda erindi okkar sterkt og skýrt, og það skilar sér!“

„Saman byggjum við sterka fram­tíð fyrir íslensk sveit­ar­fé­lög!“

Í kvöld munu ung­liða­hreyf­ingar VG og Sós­í­alista­flokks­ins halda sam­eig­in­lega veislu. „Saman byggjum við sterka fram­tíð fyrir íslensk sveit­ar­fé­lög!“ segir Svandís um þetta fram­tak Ungra vinstri grænna og Roða, ung­liða­hreyf­ingar Sós­í­alista­flokks­ins.

Hún hvetur fólk til að taka þátt í starf­inu. „Víða er nú þegar rætt um mögu­legt sam­starf við önnur stjórn­mála­sam­tök til að tryggja sterk og sam­stillt fram­boð til sveit­ar­stjórna í næstu kosn­ingum,“ skrifar Svandís. „Þetta sam­starf og sam­staða eru lyk­ill­inn að árangri og áhrifum á næsta kjör­tíma­bili.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Fara í samstarf við sjáfstæðisflokkinn báðir á fallandi fæti. Kv.Siggi.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þá verður VG að rækta þær rætur sínar í verkalýðshreyfingunni.
    Annars á flokkurinn sér enga von eða möguleika til framtíðar
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár