100 ára og enn að stækka

Árið 1920, þegar dönsk stjórn­völd keyptu land­skika á Amager-eyj­unni við Kaup­manna­höfn, grun­aði lík­lega fáa að þarna yrði innan fárra ára­tuga fjöl­menn­asti vinnu­staður í Danmörku. Kastrup-flug­völlur er 100 ára.

17. des­em­ber 1903 er stór dagur í flug­sög­unni. Þann dag tókst tveimur banda­rískum bræðrum, þeim Orville og Wilbur Wright, að koma á loft og fljúga vél­knú­inni flug­vél, sem þeir nefndu Wright Flyer. Þessi atburður átti sér stað skammt frá bænum Kitty Hawk í Norður-Kar­ólínu­ríki í Banda­ríkj­unum. Flug­ferðin var ekki löng, innan við hálf mín­úta, og vélin náði aðeins nokk­urra metra hæð. Einungis fimm menn voru vitni að þessum „heims­við­burði“. Nokkrum dögum áður höfðu bræð­urnir gert mis­heppn­aða flugtil­raun, þá hafði fjöldi fólks safn­ast saman til að fylgj­ast með en þessi mann­fjöldi mætti ekki þann 17. des­em­ber. „Maður lætur nú ekki þessa fugla plata sig tvisvar,“ sagði einn sem fylgd­ist með mis­heppn­uðu til­raun­inni.

Þótt þetta fyrsta flug (ein­ungis annar bræðr­anna var þá í vél­inni) væri stutt, svo stutt að vart var hægt að tala um flug­ferð, mark­aði það upp­haf flug­sög­unnar, sögu sem ekki sér fyrir end­ann á.

Kløvermarken og Robert Svendsen

Í kjöl­far flugtil­rauna Wright-bræðra fylgdu fjöl­margir áhuga­menn víða um heim, meðal þeirra var Robert Svendsen (1884 til 1938). Hann hafði lært að fljúga í Frakk­landi og var fyrsti Daninn, og jafn­framt sá fyrsti í Skand­in­avíu, sem fékk flug­rétt­indi. Vinnu­veit­andi Roberts Svendsen keypti flug­vél í Frakk­landi og hafði ásamt Svendsen breytt og end­ur­bætt hana heima í Danmörku. Vélin var í upp­hafi kölluð Dania en var síðar gefið nafnið Glenten (eftir sam­nefndum fugli af hauka­ætt). Þann 5. jan­úar 1910 tók Robert Svendsen á loft frá Kløver­mar­ken á Amager í Kaup­manna­höfn. Flug­vélin náði 84 metra hæð yfir Kløver­mar­ken og er skráð í bækur sem fyrsta eig­in­lega flug­ferð í Danmörku þótt nokkrir Danir hefðu áður gert til­raunir með eins konar svif­dreka.

Þann 17. júlí 1910 flaug Robert Svendsen frá Kløver­mar­ken yfir Eyr­ar­sund til Limhamn fyrir sunnan Malmö í Svíþjóð. Þetta flug, sem tók hálfa klukku­stund, vakti mikla athygli og var skrifað um það í mörgum evr­ópskum dag­blöðum og tíma­ritum. Ári síðar flaug hann frá Kløver­mar­ken til Køge og fékk sér­stök verð­laun, 1 þús­und krónur danskar, fyrir að hafa flogið lengra en 40 kíló­metra í einum áfanga, ferðin tók 35 mín­útur. Árið 1912 hætti Robert Svendsen að fljúga og starf­aði sem bíla­sali til ævi­loka.

Kløver­mar­ken (smára­engið) var á þessum árum eini lög­legi flug­völl­ur­inn í Danmörku og flug­skóli danska hers­ins hafði þar aðsetur frá stofnun árið 1912 til árs­ins 1923. Kløver­mar­ken var ekki flug­völlur í þeirri merk­ingu orðs­ins sem við leggjum í það í dag. Þetta svæði, á norð­ur­hluta Amager, var á þessum tíma og er reyndar enn stærðar tún. Á öðrum ára­tug síð­ustu aldar voru byggð nokkur flug­skýli og fleira til­heyr­andi flug­rekstri. Det Danske Luft­fartsselskab (síðar hluti af SAS) var stofnað árið 1918 og hóf þá flug­ferðir milli Kaup­manna­hafnar, Malmö og Ham­borgar. Þótt stað­setn­ingin væri góð var svæðið of lítið og auk þess fast við íbúða­byggð.

1925Flug­völl­ur­inn við Kastrup á Amager var form­lega tek­inn í notkun.

Kastrup varð fyrir valinu

Á tíma voru uppi hug­myndir um flug­völl við Lund­tofte fyrir norðan Kaup­manna­höfn og enn fremur á Avedørehólm­anum vestan við höf­uð­borg­ina. Hvorugur þess­ara staða reynd­ist þó heppi­legur og árið 1920 keypti ríkið 310 hekt­ara svæði við Kastrup á Amager, 8 kíló­metrum frá mið­borg Kaup­manna­hafnar, fyrir flug­völl. Flug­sveit hers­ins hafði aðsetur á hinum nýja flug­velli um tveggja ára skeið, frá 1923 til 1925, en flutti þá annað.

Hinn „borg­ara­legi“ flug­völlur, eins og það var orðað, var form­lega tek­inn í notkun 20. apríl 1925 og hét þá Kastrup Lufthavn en var síðar breytt í Køben­havns Lufthavn Kastrup. Flug­brautin var grasi gróin og búpen­ingur bænda á Amager sem hafði van­ist því að ganga þar á beit var ekki upp­næmur yfir því að þessi bit­hagi væri ekki lengur þeirra „prí­vat“ og iðu­lega þurfti að smala flug­völl­inn þegar von var á flug­vélum til lend­ingar, eða brott­farar. Lend­ingar og brott­farir fyrsta árið voru 2.298, eða rétt um sex á dag.

Bygg­ingin færðÁrið 1999 var eldri bygg­ingin flutt á nýjan stað á vöru­bíl með 600 hjólum.

Flug­stöðin sem Waldemar Jørg­en­sen teikn­aði og fékk við­ur­nefnið Træslottet þótti mikið mann­virki en varð þó innan fárra ára of lítil. Á árunum 1937 til 1939 var reist ný flug­stöð, arki­tekt hennar var Vilhelm Lauritzen. Sú bygg­ing skipar mik­il­vægan sess í danskri hönn­un­ar­sögu og er friðuð.

Hún varð þó með tím­anum of lítil og Vilhelm Lauritzen hann­aði nýja bygg­ingu sem tekin var í notkun árið 1960. Eldri bygg­ingin var árið 1999 flutt til (það gerði stór vöru­bíll með 600 hjól!) og er nú notuð við sér­stök tæki­færi, til dæmis þegar þjóð­höfð­ingjar heim­sækja landið. Við hlið gömlu flug­stöðv­ar­innar stendur flug­skýli frá tímum síð­ari heimss­styrj­aldar, byggt úr timbri. Síðan hefur flug­stöðin verið stækkuð margoft. Sú bygg­ing sem kannski flestir far­þegar þekkja og nefn­ist term­inal 3 var tekin í notkun árið 1998. Sá tónn sem á upp­hafs­árum var sleg­inn með metn­að­ar­fullri hönnun hefur ein­kennt flug­stöðv­ar­bygg­ing­arnar allar götur síðan. Árið 2028 verður tekin í notkun ný flug­stöðv­ar­bygg­ing, 60 þús­und fer­metrar, til við­bótar við þær sem fyrir eru.

Stærsti flugvöllur á Norðurlöndum

Kastrup, eins og flug­völl­ur­inn er iðu­lega kall­aður, er sá fjöl­farn­asti á Norð­ur­löndum. Á síð­asta ári, 2024, fóru um 30 millj­ónir far­þega um völl­inn, að með­al­tali um 82 þús­und manns dag­lega. Aukn­ingin frá árinu áður var um 12 pró­sent og yfir­stjórn flug­vall­ar­ins býst við umtals­verðri aukn­ingu á næstu árum. Frá Kastrup er flogið til 175 áfanga­staða, vin­sæl­ustu áfanga­staðir í Evrópu eru London, Osló, Stokk­hólmur, Amster­dam og París. Af áfanga­stöðum utan Evrópu trónir Doha á toppnum en þar á eftir koma Bangkok, New York, Dubai og Los Angeles.

Alls fljúga 60 flug­fé­lög til og frá Kastrup, fyrir utan 7 fragt­flug­fé­lög. Alls starfa um 23 þús­und manns á flug­vall­ar­svæð­inu, sem er stærsti vinnu­staður lands­ins.

Í des­em­ber 2024 keypti danska ríkið, sem áður átti 39,9 pró­sent hluta­bréfa í flug­vell­inum, 59,9 pró­sent til við­bótar og á því nær öll hluta­bréfin. Selj­and­inn var APT líf­eyr­is­sjóð­ur­inn. Það er þó ekki stefna rík­is­ins að eiga svo stóran hlut til lang­frama.       

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár