Íslendingar ná ekki að viðhalda sér

Nýjar tölur sýna að fæð­ing­ar­tíðni er fallin niður í 1,56 en 2,1 þarf til að við­halda fólks­fjöld­anum.

Íslendingar ná ekki að viðhalda sér
Börn í bænum Myndin er tekin á Ing­ólfs­torgi. Mynd: Golli

Fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi fellur úr 1,59 börnum á hverja konu niður í 1,56 á milli áranna 2023 og 2024. Hún hefur ekki mælst lægri frá upp­hafi mæl­inga árið 1853.

Þetta sýna nýjar tölur Hag­stof­unnar. Tölurnar sýna að fæð­ing­ar­tíðni hefur verið ósjálf­bær allt frá eft­ir­hrunsár­unum, þegar hún reis í 2,2. Stutt ris varð einnig í Covid-far­aldr­inum, árið 2021, þegar tíðnin fór í 1,9 börn á hverja konu.

„Með­al­aldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síð­ustu ára­tugi og eign­ast konur nú sitt fyrsta barn að jafn­aði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjö­unda ára­tug­ar­ins og fram yfir 1980 var með­al­aldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda ára­tug­inn hefur með­al­aldur farið hækk­andi og var 29,1 ár í fyrra,“ segir í umfjöllun Hag­stof­unnar.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Loksins jákvæð frétt. Þetta ætti að slá aðeins á offjölgun mannkynsin. Verst að þróunin er ekki svona í öllum löndum heimsins. Þá væri nú heldur betur bjartara framundan fyrir plánetuna Jörð.
    Það er talið að jörðin þoli í raunini ekki fleiri en 3 miljarða manneskja og jafnvel færri ef allir myndu lifa eins og vestrænar eyðsluklær. Við eru orðin fleiri en 8 miljarðar!!!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár