Trump birtir framtíðarsýn sína fyrir Gaza á Instagram

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, birti gervi­greind­ar­mynd­band á Instagram í nótt sem sýnir áætl­anir um bað­strendur og pen­inga­regn á Gaza-strönd­inni.

Trump birtir framtíðarsýn sína fyrir Gaza á Instagram

Mynd­skeið, sem greini­lega er búið til af gervi­greind og sýnir fram­tíð­ar­sýn fyrir Gaza-svæðið, birt­ist á opin­berum Instagram-reikn­ingi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta í nótt.

Mynd­bandið byrjar á því að sýna fólk og her­menn á stríðs­hrjáðu svæð­inu, sem hefur verið vett­vangur gríð­ar­legra átaka og árása frá Ísra­els­her frá því í októ­ber 2023. Fyrir ofan birt­ast orðin: „Gaza 2025. Hvað er næst?“

Það sem virð­ist vera næst, að mati for­set­ans, eru fagrar strand­lengjur, glæs­i­snekkjur, skýja­klúfar og breið­götur. Á þeim keyra Teslur og ein­hver sem lík­ist mjög Elon Musk situr og borðar brauð með hummus. 

Mynd­skeiðið sýnir barn sem heldur á gylltri blöðru sem lítur út eins og höf­uðið á Donald Trump og risa­vaxin gyllt stytta af for­set­anum stendur á miðri götu. For­set­anum bregður sjálfum fyrir í mynd­band­inu dans­andi við konu á skemmti­stað og þar sem hann liggur á sól­ar­strönd ásamt Benjamin Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, og drekkur svala­drykk.

Peningum rignir niður á börn sem hoppa á strönd­inni og hús eru merkt með orð­unum „Trump Gaza“.

Undir mynd­skeið­inu spil­ast tón­list. Textinn er eft­ir­far­andi: „Donald Trump will set you free, bring­ing the life for all to see, no more tunn­els, no more fear, Trump Gaza is finally here.“

Trump hefur á síð­ast­liðnum vikum látið í ljós áætl­anir sínar um að Banda­ríkin slái mögu­lega eign sinni á Gaza og geri svæðið að riví­eru, eða bað­strönd, Mið-Aust­ur­landa.

Þá hefur for­set­inn stungið upp á því að þær tvær millj­ónir Palest­ínu­manna sem búa á svæð­inu yrðu reknar burt. En sú hug­mynd hefur mætt gríð­ar­legri gagn­rýni frá alþóða­sam­fé­lag­inu.

Á Gaza hafa yfir 46 þús­und manns, þar af um 18 þús­und börn, lát­ist í 15 mán­aða átökum milli Ísraels og Hamas-sam­tak­anna. Vopnahlé tók gildi þann 20. jan­úar en það mun taka endi á laug­ar­dag. Enn er óljóst hvað mun þá taka við.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Já nú er USA virkilega farin að láta gyðingana vinna skítverkin fyrir sig. Allt í nafni Himnaríkis.
    0
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Þetta er viðbjóðslegt auðmanna-klám. Ekki snefill af virðingu fyrir íbúum Gaza. Trump er siðferðislega fátækur, eða réttara sagt, siðferðislega gjaldþrota. Enginn sómi, einungis einbeittur og ómengaður viðbjóður.
    23
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár