SÍS var andvíg tillögu sem Heiða Björg sagðist hlynnt en mætti ekki til þess að greiða atkvæði

Stjórn SÍS og samn­inga­nefnd var and­víg fram­lagn­ingu inn­an­hús­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara í kenn­ara­deilu sem var felld af sam­band­inu í gær. Nýr borg­ar­stjóri seg­ist hafa verið hlynnt henni, en mætti ekki til þess að greiða atkvæði með til­lög­unni.

SÍS var andvíg tillögu sem Heiða Björg sagðist hlynnt en mætti ekki til þess að greiða atkvæði
Kennarar mættu og mót­mæltu á pöllum ráð­húss­ins þar sem Heiða Björg Hilm­is­dóttir upp­lýsti kenn­ara um að hún hefði verið hlynnt til­lög­unni. Mynd: Golli

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga (SÍS) segir inn­an­hús­til­lögu sem var lögð fram af rík­is­sátta­semj­ara hafi ekki verið lögð þar fram „með sam­þykki stjórnar SÍS eða samn­inga­nefndar“.

Segist stjórn sam­bands­ins vilja koma þessu skýrt á fram­færi í til­kynn­ingu sem var birt á vef­svæði sam­bands­ins.

Forseti SÍS og nýr borg­ar­stjóri, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, sagð­ist hafa verið hlynnt til­lög­unni sem var lögð fram og sagði við blaða­mann Heim­ild­ar­innar skömmu fyrir auka­að­al­fund borg­ar­stjórnar í gær:

„Ég bað vara­for­mann um að hringja í mig ef það yrði atkvæða­greiðsla, en það lá alltaf fyrir að ég hefði sam­þykkt þennan samn­ing.“

Þegar hún var spurð hvers vegna til­lög­unni hefði verið hafnað, svar­aði Heiða:

„Ég er bara með eitt atkvæði, hinir voru á annarri skoðun.“ Þá sagði hún að það hefði ekki breytt nið­ur­stöð­unni ef hún hefði mætt á fund­inn sem hún var fjar­ver­andi á. Úr varð að SÍS fékk frest til hádegis dag­inn eftir, og var til­lagan þá felld.

Aðrir í stjórn SÍS eru eft­ir­far­andi: Einar Þor­steins­son, Reykja­vík, Hildur Björns­dóttir, Reykja­vík, Rósa Guð­bjarts­dóttir, Hafn­ar­firði , Einar Brands­son, Akranesi, Nanný Arna Guð­munds­dóttir, Ísafirði, Freyr Ant­ons­son, Dal­vík­ur­byggð, Jón Björn Hákon­ar­son, Fjarða­byggð, Margrét Ólöf A. Sanders, Reykja­nesbæ og Walter Fannar Krist­jáns­son, Flóa­hreppi.

Kenn­ara­sam­bandið bregst harka­lega við yfir­lýs­ingu SÍS á heima­síðu sinni og skorar á full­trúa í stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga að greina frá sinni afstöðu til inn­an­hús­s­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara.

Mbl.is greindi frá því í gær­kvöldi að Heiða Björg hefði spilað ein­leik í mál­inu og komið flatt upp á aðra stjórn­ar­menn SÍS sem skýri óein­ing­una sem finna má í yfir­lýs­ingu SÍS. Ástráður Har­alds­son rík­is­sátta­semj­ari sagði í fréttum RÚV að hann hefði lagt fram inn­an­hús­s­til­lög­una með sam­þykki deilandi fylk­inga, sem vekur furðu í ljósi yfir­lýs­ingar SÍS.

Kenn­ara­sam­bandið telur að stjórn SÍS fari með ósann­indi þegar kemur að afstöðu til fram­lagn­ingar til­lög­unnar og full­yrðir Kenn­ara­sam­bandið að hið rétta sé að for­maður samn­inga­nefndar sveit­ar­fé­laga hafi verið sam­mála for­manni við­ræðu­nefndar KÍ og rík­is­sátta­semj­ara, á fundi sem hald­inn var í hús­næði rík­is­sátta­semj­ara fimmtu­dag­inn 20. febr­úar, um að rétt væri að leggja fyrr­nefnda inn­an­hús­s­til­lögu fyrir samn­inga­nefndir samn­ings­að­ila og að svar við henni yrði að ber­ast sam­dæg­urs. 

Ástráði Har­alds­syni rík­is­sátta­semj­ara, að hann hafi lagt inn­an­hús­s­til­lögu sína fram með sam­þykki deilandi fylk­inga.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár