Heiða Björg: „Ég er bara með eitt atkvæði, hinir voru á annarri skoðun“

Nýr borg­ar­stjóri, Heiða Björg Hilm­is­dóttir seg­ist hafa verið hlynnt samn­ingi rík­is­sátta­semj­ara. Hún hafði þó bara eitt atkvæði. Ný meiri­hluti var kynntur í Ráðhúsi Reykja­víkur síð­degis.

Heiða Björg: „Ég er bara með eitt atkvæði, hinir voru á annarri skoðun“
Nýr meiri­hluti var kynntur í Ráðhúsi Reykja­víkur um klukkan fjögur. Mynd: Golli

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, nýr borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir að hún hefði kosið með kjara­samn­ingi sem lá fyrir á borð­inu, hefði hún verið við­stödd fund rík­is­sátta­semj­ara í gær­kvöldi. Þetta sagði hún í sam­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar eftir að nýr meiri­hluti kynnti áherslur sínar í Ráð­hús­inu.

„Ég var á fundi í gær­kvöldi,“ útskýrði Heiða, spurð hvers vegna hún hefði ekki mætt á fund rík­is­sátta­semj­ara við kenn­ara. Á hún þá við að hún hafi verið á fundi meiri­hlut­ans í borg­inni um gerð nýs sam­starfs­samn­ings.

„Ég bað vara­for­mann um að hringja í mig ef það yrði atkvæða­greiðsla, en það lá alltaf fyrir að ég hefði sam­þykkt þennan samn­ing,“ segir Heiða og árétt­aði að sú afstaða hefði verið skýr.

Valur

Blaða­maður spurði þá af hverju samn­ingnum hefði verið hafnað.

„Ég er bara með eitt atkvæði, hinir voru á annarri skoðun,“ sagði hún og sagði að það hefði ekki breytt nið­ur­stöð­unni ef hún hefði mætt á fund­inn.

Meiri­hlut­inn kynnti áherslur sínar og kom þá í ljós að Sanna Magda­lena verður for­seti borg­ar­stjórnar, Líf Magneu­dóttir, odd­viti VG, verður for­maður borg­a­ráðs, en mun skipta við Dóru Björt Guð­jóns­dóttur, odd­vita Pírata, þegar tíma­bil meiri­hlut­ans er hálfnað. Helga Þórð­ar­dóttir verður for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs og Dóra Björt Guð­jóns­dóttir verður áfram for­maður umhverfis- og skipu­lags­ráðs þar til hún skiptir við Líf.

Um hund­rað kenn­arar voru mættir niður í Ráðhús Reykja­víkur til þess að mót­mæla og köll­uðu meðal ann­ars fram í þegar Heiða Björg tók við sem borg­ar­stjóri. Þá árétt­aði hún afstöðu sína eins og fram hefur komið. Hér fyrir ofan má sjá mynd­band þar sem Líf Magneu­dóttir og Helga Þórð­ar­dóttir ræddu stutt­lega við kenn­ara. Báðar hafa þær einni starfað á þeim vett­vangi áður en þær fóru út í stjórn­mál.

Meiri­hluta­sam­starfið var kynnt síð­degis.
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár