Fjölmiðlar fá aðeins að fylgjast með ræðu Ingu á landsfundi

Aðgengi að lands­fundi Flokks fólks­ins verður tak­markað að tölu­verður leyti á morgun. Fjöl­miðlar fá aðeins að fylgj­ast með ræðu Ingu Sæland og fund­inum verður ekki streymt á net­inu.

Fjölmiðlar fá aðeins að fylgjast með ræðu Ingu á landsfundi
Fjöl­miðlar fá aðgang að ræðu Ingu Sæland. Mynd: Golli

Lands­fundur Flokks fólks­ins verður lok­aður fyrir fjöl­miðlum fyrir utan að þeir mega fylgj­ast með ræðu Ingu Sæland og er gefin kostur á að ræða við hana fyrir utan fund­ar­sal­inn að ræðu lok­inni. Þá er tekið fram sér­stak­lega á vef­síðu Flokks fólks­ins að fund­inum verði ekki streymt á vefnum og því ómögu­legt að fylgj­ast með umræðum á fund­inum nema við­kom­andi sé með sæti á lands­fundi og eigi heima­gengt.

Ekki er óal­gengt að fundir stjórn­mála­flokka séu lok­aðir að hluta en sjald­gæfara er að fjöl­miðlar fái ekki að fylgj­ast með kosn­ingum í stjórnir flokk­anna.

Lands­fund­ur­inn hefst klukkan níu um morg­un­inn og nær nokkru hámarki með ræðu Ingu Sæland, for­manns flokks­ins, klukkan 14:00. Kosn­ingar hefj­ast svo upp úr fjögur og á fundi að vera lokið um hálf sex.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár