Þegar borgin fór á taugum

Meiri­hlut­inn í borg­inni sprakk óvænt í lok síð­ustu viku rétt eftir ham­fara­veður sem geisað hafði á land­inu öllu. Ösku­reiður odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar leiddi til þess að Framsókn ákvað að leita hóf­anna í mis­heppn­uðum póli­tískum leið­angri sem sprengdi meiri­hluta­sam­starfið. Póli­tískir eld­inga­stormar og rauðar við­var­anir voru víða í stjórn­málum vik­una örlaga­ríku.

Þegar borgin fór á taugum
Titr­ingur Taugar borg­ar­stjórn­ar­full­trúa hafa verið þandar síð­ustu daga, en mikil spenna og væn­i­sýki hefur ein­kennt óróa borg­ar­stjórnar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluta­sam­starf Fram­sóknar, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar sprakk skyndi­lega seint á föstu­deg­inum og kom lands­mönnum í opna skjöldu. Hin eig­in­legu slit urðu þó á borg­ar­stjórn­ar­fundi þremur dögum áður, þegar nýr odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar öskr­aði á odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins vegna afstöðu flokks­ins á fund­inum til flug­vall­ar­máls­ins þegar umdeild til­laga var sam­þykkt af Sjálf­stæð­is­flokknum og Framsókn um að flug­völl­ur­inn yrði á sínum stað út skipu­lags­tíma­bilið, eða til 2040.

Vandinn er djúp­stæð­ari en virð­ist í fyrstu. Fram­sókn­ar­flokknum hefur ekki liðið vel í sam­starf­inu um tíma og einn við­mæl­andi sagði málið ein­fald­lega snú­ast um það að Einari Þor­steins­syni, odd­vita Fram­sóknar, og Heiðu Björgu Hilm­ars­dóttur, odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar, líki hrein­lega ekki við hvort annað.

Heim­ildin ræddi við fjölda fólks innan og utan borg­ar­stjórnar og í ráð­húsi Reykja­víkur til að freista þess að draga upp raunsanna atburða­rás af slitum meiri­hlut­ans. Til þess að tryggja að fólk gæti dregið skýr­ari mynd af atburða­rásinni, án þess að stefna eigin hags­munum í háska, …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Garðar Garðarsson skrifaði
    Það væri forvitnilegt að fá að vita herjir viðmælendur fréttamanns eru í þessari grein sem er nokkuð einhliða í gagnrýni á Samfylkinguna og gamla meirihlutann. Svona umfjöllun þar sem fólk þorir ekki að koma með yfirlýsingar og skoðanir undir nafni er mjög óvönduð fréttamennska.
    1
    • Garðar Garðarsson skrifaði
      Ef maður á að geta dregið ályktanir af þessari grein þá þarf maður að vita hver sagði hvað.
      1
    • EJC
      Ellen Jacqueline Calmon skrifaði
      Tek undir með þér Garðar og er hvumsa yfir óvönduðum vinnubrögðum Heimildarinnar við þessa frétt. Veit fyrir víst að ekki var haft samband við oddvita Samfylkingarinnar við vinnslu fréttarinnar.
      2
  • Birgir Finnsson skrifaði
    Líkast til er það lán í óláni fyrir Einar og Framsóknarflokkinn að ná að fjarlægja sig um stund frá þessu stórbrotna klúðri sem stjórn borgarinnar er orðin. Þessi nýi meirihluti verður umdeildur (þróun kosningaúrslita og skoðanakannana síðust árin sýnir að það er engin eftirspurn eftir þessari blöndu), óvinsæll (enda fær hann í fangið frá fyrsta degi áratuga uppsafnað klúður, s.s. skipulagsmálin, húsnæðismálin, skólamálin o.fl. vond mál sem Samfylking og Píratar eiga skuldlaust) og skammlífur (jafnvel til efs um að hann tóri í 14 mánuði fram að næstu kosningum).

    Og svo er þetta allt einhvernvegin svo hryllilega kauðslegt. Það var bókstaflega hægt að finna kjánahrollinn hríslast um landið þegar oddvitar flokkanna fimm komu fram, rjóðar af spenningi, og sögðust vilja kalla sig "kryddpíurnar".
    -1
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Borgarastèttin í Vesturbænum vill auðvitað flugvöllinn burt. Bæði fyrir fjárfestingarnar þeirra á húsnæðismarkaði og undir fyrirtæki í þjónustu við túrista þarna. Á flugvallarsvæðinu.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár