Vilja ná stjórn á Airbnb og þak á fjölmiðlastyrki

Rík­is­stjórnin til­kynnti helstu aðgerðir sínar fyrir vor­þingið á blaða­manna­fundi í dag, en þing­mála­skrá hefur nú verið gerð opin­ber. Þar koma fyrir breyt­ingar á sjáv­ar­út­vegi, sala Íslands­banka, bókun 35 og lægri styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla.

Vilja ná stjórn á Airbnb og þak á fjölmiðlastyrki

Stjórn á Airbnb, inn­leið­ing kíló­metra­gjalds, breyt­ing veiði­gjalda og jóla­bónusar til örorku- og elli­líf­eyr­is­þega eru meðal þeirra aðgerða sem rík­is­stjórnin hyggst hrinda í fram­kvæmd á vor­þingi. 

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrr í dag þar sem hún til­kynnti sín fyrstu verk – þing­mála­skrá og verk­efna­lista á vor­þingi. Öll málin sem kynnt voru á fund­inum verða lögð fyrir þingið í febr­úar eða mars.

Farið verður yfir það helsta sem rík­is­stjórnin kynnti á fundi sínum í dag, en hér má finna þing­mála­skrána í heild sinni.

Heimagisting takmörkuð við lögheimili

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði að lyk­il­at­riði væri að ráð­ast í bráða­að­gerðir í hús­næð­is­málum og tryggja efna­hags­legan stöð­ug­leika. Hún lagði áherslu á að stofnað yrði ekki til við­bót­ar­út­gjalda nema hag­ræð­ing eða tekju­öflun kæmi þar á móti til að styðja við lækkun vaxta. 

Meðal bráða­að­gerða í hús­næð­is­málum væri að ná stjórn á Airbnb – tak­marka heimagist­ingu við lög­heim­ili eða frí­stunda­hús auk þess að tryggja það að íbúðir í heils­ársút­leigu væru skráðar sem atvinnu­hús­næði. Þá ætti að liðka fyrir upp­bygg­ingu ein­ing­ar­húsa og inn­leiða skrán­inga­skyldu leigu­samn­inga til að fá heild­stæða mynd af þróun leigu­mark­að­ar­ins. 

Kristrún segir bráða­birgða­mat benda til þess að með aðgerð­unum sé hægt að auka fram­boð íbúða um tvö þús­und á ári. 

Jólabónusar fyrir tvo milljarða

Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, kynnti að rík­is­stjórnin hygð­ist lög­festa samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og koma í veg fyrir það að með­ferð­ar­rúr­ræðum yrðu lokað yfir sum­arið. Þá stendur til að breyta lögum um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof til að bæta hag fjöl­burafor­eldra og for­eldra sem veikj­ast á með­göngu.

Lagt verður fram frum­varp sem kveður á um það að ald­ur­svið­bót falli ekki niður þegar örorku­líf­eyr­is­þegi nær ellí­líf­eyr­is­aldri. Ald­ur­svið­bótin fylgi þeim sem eiga engin eða tak­mörkuð atvinnu­tengd rétt­indi til elli­líf­eyris. „Einnig er með frum­varp­inu lögð til sú breyt­ing að örorku- og elli­líf­eyrir hækki árlega til sam­ræmis við hækkun launa­vísi­tölu en þó aldrei minna en verð­lag sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs,“ segir í þing­mála­skránni.

Enn fremur verði jóla­bónus til tekju­lægri öryrkja og eldra fólks tryggður. Áætlaður kostn­aður þessa er 2 millj­arðar króna árið 2025 en þetta er stærsti útgjalda­liður fjár­auka­laga. Inga boðar auk þess lög sem koma í veg fyrir kjaragliðnun launa. Líf­eyr­is­greiðslur munu því hækka á hverju ári í sam­ræmi við hækkun launa­vísi­tölu – en þó aldrei minna en verð­lag.

Bókun 35, búvörulög dregin til baka og sala Íslandsbanka

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, tal­aði um það að setja orku­þörf almenn­ings og smærri fyr­ir­tækja í for­gang með frum­varpi í þessum mán­uði. Þá ætti að ein­falda, sam­eina og hraða máls­með­ferð í leyf­is­veit­ingum virkj­ana.

Farið verður í það að vinda ofan af ólög­legum veit­ingum á búvöru­lögum strax á fyrstu dögum þings­ins. Þau lög voru sam­þykkt á vor­þingi 2024 og urðu strax mjög umdeild. En Þor­gerður Katrín segir að unnið verði að nýju frum­varpi á for­sendum almennra laga um sam­keppni.

Breyt­ingar verða gerðar á sjáv­ar­út­vegi sem munu auka gegn­sæi og rétt­læti í grein­inni. Breyt­ingar verða gerðar á veiði­gjaldi, þannig að það end­ur­spegli betur raun­veru­leg verð­mæti í grein­inni og frum­varp þess efnis verður lagt fram í síð­asta lagi í mars. Aðspurð sagði Kristrún að breytt veiði­gjald ætti að skila nokkrum millj­örðum til við­bótar í rík­is­sjóð en það gerir núna – en end­an­leg tala muni liggja fyrir þegar frum­varpið er til­búið.

Þá stendur til að klára bókun 35 sem Þor­gerður Katrín segir stórt neyt­enda­mál. Einnig stendur til að ljúka við sölu Íslands­banka með gagn­sæju sölu­ferli þar sem almenn­ingur mun fá for­gang. 

Óperustarfsemi, breytingar á námslánum og lægri fjölmiðlastyrkir

For­sæt­is­ráð­herra til­kynnti að vinna væri þegar hafin við end­ur­skoðun á styrkjum til einka­rek­inna fjöl­miðla en þak styrkj­anna verði lækkað strax í vor. Nýtt fyr­ir­komu­lag muni verða tekið upp að ári. 

Hvað varðar mennta­málin mun nýju fyr­ir­komu­lagi við náms­mat komið á í grunn­skólum og náms­gögn í leik-, grunn-, og fram­halds­skólum gerð gjald­frjáls í áföngum. Þá verður ráð­ist í frek­ari breyt­ingar á lögum um Mennta­sjóð náms­manna sem snúa meðal ann­ars að styrkjum.

Til stendur að breyta lögum um sviðs­listir sem mun hafa í för með sér að starf­semi óper­unnar verði flutt inn í Þjóð­leik­húsið og ráð­ast í heild­ar­end­ur­skoðun á Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­lag­ana. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gabriel Bragason skrifaði
    Jólabónusar fyrir tvo milljarða Framlög til stjórnmálaflokka.
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það munar verulega um að íbúðir sem eru leigðar ferðamönnum komi aftur inn á markað fyrir langtímaleigu.

    Í ljósi þess að skortur hefur verið á leiguhúsnæði var það ótrúlega óforskammað að láta leigjendur víkja fyrir ferðamönnum með stórauknum skorti á leiguhúsnæði og hækkun á leiguverði.

    Gisting ferðamanna í íbúðum ætti að einskorðast við eigin heimili vegna fjarveru og einstök herbergi á heimilum eigenda.
    3
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Já töffari er rétta orðið en AirBnB nálgunin er dauðadæmd enda bara sýndarúrræði. Því það hverfur ekki svo auðveldlega, kannski þær ættu að tala við Mannvirkjastofnun eða hvað það nú heitir frekar en að panta sér skýrslu. Smaskammtalækning þýðingar lítil og skapar feluleikur og skaðabótakröfur. 2000 er nefnilega rétt tæp 10 % af þörfinni, hún eykst um nær 3000 a ári nema auðvitað allir yfir 60 ára sé slegnir af. 3 milljónir túrista sem stoppa I 5 daga og þá sjáið þið að dæmið gengur ekki upp með AirBnB lokinni. Hótelin hafa einfaldlega ekki við. Enn eitt græðgisvandamal Íslendinga. Hætta að skrúfa meira frá krananum og dreifa vandanum ekki þétta byggð.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Við erum með alvöru töffara í brúnni engan misheppnaðan teffon gaur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár