Running Tide ekki lengur til á Íslandi

Eigendur einka­hluta­fé­lags­ins utan um Running Tide hafa slitið félag­inu. Rekstri þess var hætt í sumar. Í júní fjall­aði Heim­ildin ítar­lega um starf­sem­ina og gagn­rýni vís­inda­manna á hana.

Running Tide ekki lengur til á Íslandi
Áfram veg­inn Marty Odlin, stofn­andi og for­stjóri Running Tide, seg­ist ætla að halda starf­semi Running Tide áfram í Banda­ríkj­unum. Banda­ríska félagið Running Tide Technologies var eig­andi íslenska félags­ins sem nú hefur verið slitið. Mynd: Golli / Sigurjón Ragnar

Eigendur Running Tide slitu einka­hluta­fé­lag­inu um starf­semi þess á fundi 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Starf­semi félags­ins hafði legið í dvala eftir að henni var í raun hætt síð­asta sumar. Heim­ildin fjall­aði ítar­lega um starf­sem­ina og gagn­rýni vís­inda­manna á hana í júní á síð­asta ári. 

Til­kynn­ing um félaga­slitin birt­ist í Lög­birt­ing­ar­blað­inu en RÚV greindi fyrst frá í morgun. Í til­kynn­ing­unni segir að ákvörð­unin hafi verið tekin á hlut­hafa­fundi en sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi var einn hlut­hafi í íslenska félag­inu, banda­ríska félagið Running Tide Technologies, Inc. 

Ekki er víst að þetta þýði enda­lok verk­efn­is­ins, þar sem banda­ríska móð­ur­fé­lagið virð­ist enn starf­andi.

Í sept­em­ber sagði Marty Odlin, stofn­andi og for­stjóri Running Tide, við Canary Media, vef­síðu sem sér­hæfir sig í umfjöllun um umhverf­is­mál, að hann hafi keypt það sem eftir stóð af félag­inu af fjár­festum og að starf­semin myndi halda áfram með fjórum starfs­mönnum í Portland í Banda­ríkj­unum. Það væri þó ekki ljóst hvaða leiðir yrðu farnar til að ná fram mark­miði fyr­ir­tæk­is­ins um kolefn­is­förgun. 

Vefsíða fyr­ir­tæk­is­ins er þó ekki lengur aðgengi­leg. 

Samkvæmt áður­nefndum árs­reikn­ingi má sjá að tölu­verður hagn­aður var af rekstri Running Tide á Íslandi. Árið 2023 skil­aði fyr­ir­tækið 174 millj­óna króna hagn­aði, eftir tæp­lega 3 millj­óna tap árið áður. Ekki liggur fyrir árs­reikn­ingur fyrir síð­asta ár. 

Á meðan starf­semi Running Tide stóð seldi fyr­ir­tækið kolefn­is­ein­ingar til stór­fyr­ir­tækja eins og Microsoft og Shopify, þrátt fyrir skort á sann­prófun á bind­ing­unni.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Lukkuriddaranir sem plötuðu m.a. Microsoft til að kaupa kolefniseiningar af sér með hjálp íslenskra stjórnvalda höfðu nokkuð upp úr krafsinu. "Árið 2023 skilaði fyrirtækið 174 milljóna króna hagnaði.." Bill Gates er örugglega ekki að fara á hausinn vegna þessara smáaura sem hins vegar skaða orðspor íslenskra stjórnvalda.
    0
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Running tide has run its course og við pöpullinn sitjum uppi með skaðann eins og vanalega.
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Skrifiði nöfn ráðherrana , sem veittu þessu fyrirtæki heimild til að henda rusli í sjóinn ? Það er nefnilega að koma í ljós að ráðherrar síðustu ríkisstjórnar gerðu ekkert fyrir íslenskt samfélag, en hvers vegna ?
    7
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Voru það ekki Guðlaugur Þór Þórðarson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
      Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Benediktsson?

      Sjá grein Roberts Magnus "Sölumaður ber að dyrum" í Heimildinni 1. júlí 2024.
      9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár