Djúpt snortin yfir viðurkenningunni en bíður brottvísunar

Hin sýr­lenska Rima Charaf Eddine Nasr fékk við­ur­kenn­ingu frá for­seta Íslands á dög­unum fyrir það að vera ein af þeim tíu sem til­nefnd voru til verð­laun­anna Fram­úr­skar­andi ungur Íslend­ingur 2024. Boðað hefur verið til mót­mæla vegna yfir­vof­andi brott­vís­unar hennar.

Djúpt snortin yfir viðurkenningunni en bíður brottvísunar
Systur Rimu og Nouru verður gert að yfir­gefa Ísland. Mynd: Golli

„For­set­inn var mjög indæl við mig –hún sagði mér að ég ætti þetta skilið. Það var mjög til­finn­inga­þrungið augna­blik fyrir mig,“ segir hin sýr­lenska Rima Charaf Eddine Nasr í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún fékk á dög­unum við­ur­kenn­ingu fyrir það að vera til­nefnd til verð­laun­anna Fram­úr­skar­andi ungur Íslend­ingur 2024. 

Halla Tóm­as­dóttir for­seti er vernd­ari verð­laun­anna, sem eru á vegum Íslands­deildar alþjóð­legu ung­menna­hreyf­ing­ar­innar JCI. For­set­inn veitti Rimu við­ur­kenn­ingu fyrir sjálf­boða­liða­störf hennar – sem hún hefur unnið bæði fyrir Rauða kross­inn og félaga­sam­tökin Læti!

Verður send til Venesúela

Rima segir að við­ur­kenn­ingin hafi skipt hana miklu máli. „Þegar þú ert alveg að missa alla von þá ger­ist eitt­hvað sem segir þér að gef­ast ekki upp – sem segir þér að halda áfram. Athöfnin heiðr­aði mig og mér fannst fólk sjá mig sem mann­eskju. Stærstan hluta af lífi mínu leið mér eins og ég mætti ekki segja neitt, hafa skoðun á …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hulda Ólafsdóttir skrifaði
    Mér finnst það gjörsamlega galin ákvörðun að senda þessar systur úr landi. Þær eiga að vera velkomnar og ég vona og bið um að svo verði.
    3
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    Skelfilegt og grimmt að senda þær til Venesúela, af öllum löndum! Báðar eiga að fá að vera hjá eigin fjölskyldu á Íslandi!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár