„Ég vil frekar vera besti sjúkraliði landsins“

Sjúkra­liðar á bráða­mót­töku segja starfið gef­andi, þó það sé líka oft erfitt. Ungur karl­maður sem starfar þar sem sjúkra­liði segir erf­ið­ast að sjá börn mikið veik eða nálægt dauð­anum. 63 ára kona í sama starfi seg­ist vera orðin þreytt í skrokknum en að hún muni ekki hætta fyrr en hún nái 65 árum.

„Ég vil frekar vera besti sjúkraliði landsins“
Að störfum Jón Ágúst sjúkra­liði, sem sést hér til vinstri, er ávallt nálægt sjúk­lingum þegar upp koma krefj­andi verk­efni á bráða­mót­tök­unni. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Á hverri vakt á bráða­mót­tök­unni starfa nokkrir sjúkra­liðar og þeir vinna náið með læknum, hjúkr­un­ar­fræð­ingum og sér­hæfðu starfs­fólki bráða­mót­tök­unnar. Jón Ágúst hefur starfað sem sjúkra­liði á bráða­mót­tök­unni um nokk­urra ára skeið og hann segir að sjúkra­liðar þurfi að hafa yfir­sýn yfir deild­ina.

„Við erum nátt­úr­lega augu, eyru og örygg­is­verð­irnir hérna. Við hittum fólk um leið og það mætir – tökum af því lífs­mörk og metum það um leið og það kemur og bjóðum það vel­komið á bráða­mót­tök­una,“ segir Jón Ágúst en hann starfar nær ein­göngu á næt­ur­vöktum.

„Á næt­ur­vöktum er það svo­lítið öðru­vísi en á dag­inn því að mönn­unin minnkar og það þýðir að ég þarf að hlaupa í hin ýmsu verk. En aðal­lega að passa upp á að það sé í lagi með alla og horfa á alla því lækn­arnir og hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir þurfa meira að sitja í tölv­unni og þá höfum við meira rými til þess að …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár