Sjálfstæðisflokkurinn kominn undir nítján prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur áfram að dala og er kom­inn undir nítján pró­sent í fylgi. Þeir missa einn þing­mann yfir til Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sjálfstæðisflokkurinn kominn undir nítján prósent
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son fyrr í nótt. Mynd: Golli

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir einn þing­mann þegar loka­tölur úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi eru ljósar og fylgið heldur áfram að síga. Flokk­ur­inn fer úr fjórtán þing­mönnum niður í þrettán og mælist nú undir nítján pró­sentum. Sam­fylk­ingin hagn­ast hins vegar á nið­ur­stöð­unum og græðir þing­mann til við­bótar og er því með 16 þing­menn eins og sakir standa á land­inu öllu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn horfir fram á verstu kosn­inga­nið­ur­stöðu flokks­ins í sög­unni. Hann hefur aldrei farið undir tutt­ugu pró­sent og er að auki annar stærsti flokk­ur­inn á Íslandi sem er nýr veru­leiki í íslenskum stjórn­málum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fær tvo þing­menn úr kjör­dæm­inu og má segja að það sé þokka­legur varn­ar­sigur flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þau missa þó einn þing­mann. Fylg­is­hrun Fram­sóknar er sögu­legt líkt og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en flokk­ur­inn mælist í 7,9 pró­sentum sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar.

Enn er beðið eftir loka­nið­ur­stöðum úr tveimur kjör­dæmum. Búist er við loka­tölum úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi sem ættu að koma innan skamms.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár