Sigurður Ingi lýsir erfiðu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé stjórn­laus, þar hafi menn gert það sem þeim datt í hug og kom­ist upp með það. „Þannig var það,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir.

Sigurður Ingi lýsir erfiðu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn

Sigurður Ingi Jóhann­es­son segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé stjórn­laus og Svandís Svav­ars­dóttir tekur undir orð hans. Bæði áttu þau sæti í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur og síðar Bjarna Bene­dikts­sonar, sem tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrr á árinu. 

Rætt er við Sigurð Inga, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, í hlað­varps­þáttum Fram­sókn­ar­flokks­ins, Eld­hús­spjall­inu. Þar skýtur Sigurður Ingi fast á sam­herja sína í rík­is­stjórn og segir að sam­starf stjórn­ar­flokk­anna á Alþingi hafa verið „mjög lélegt, afleitt“. 

„Á þessu seinna kjör­tíma­bili þá hefur sam­starfið niðri á þingi milli stjórn­ar­flokk­anna verið mjög lélegt, afleitt. Mjög fljót­lega kom í ljós að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ósáttur við að vera í þess­ari rík­is­stjórn og ein­stakir þing­menn hans fóru bein­línis í stjórn­ar­and­stöðu,“ segir hann meðal ann­ars. Und­an­farið eitt og hálft ár hafi staðan versnað. „Í ljós kom, smátt og smátt, og hefur kannski verið bara að raun­ger­ast núna í rúmt eitt og hálft ár að það var mjög erfitt að vera í sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn því hann var á ein­hvern hátt stjórn­laus. Menn gerðu bara það sem þeim datt í hug og komust upp með það. Þannig hefur það held ég aldrei verið í sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“ 

Mynd­skeið af við­tal­inu við Sigurð Inga er í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Almanna­teng­ill­inn Andrés Jónsson deilir mynd­band­inu með þeim orðum að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið „óstýri­láti flokk­ur­inn í þess­ari rík­is­stjórn, en ekki Vinstri græn.“

Og undir skrifar Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi inn­við­a­ráð­herra. „Þannig var það.“

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þetta eru auðvitað staðreyndir málsins og flestum ljósar sem voru áhorfendur á ástandinu. Sjálfstæðisflokkurinn og ráðherrar hans og þingmenn teygðu flest mál út fyrir þann ramma sem fyrirfram hafði verið mótaður og heiðarlegir ráðherrar reyndu að starfa eftir.

    Væntanlega töldu þessir óstjórnhæfu stjórnmálamenn að þeir að gætu reitt sig á stuðning annarra hægri þingmanna í stjórnarandstöðu. Miðflokksmenn, þingmenn í Viðreisn og í Flokki fólksins.

    Þeim tókst að stöðva flest mikilvægustu mál VG með stuðningi annarra hægri þing-manna á þingi og einnig fjölmörg mál Framsóknar. Einnig er þessi flokkur algjörlega undir hælnum á samtökum atvinnurekenda og sérstaklega þeim sem tengjast útgerð og fiskvinnslu. Einnig fjármálafyrirtækjum og fjármálabraskara ásamt landbúnaði.

    Ekki má gleyma boltaiðnaðinum
    8
    • ÁJ
      Ástþór Jóhannsson skrifaði
      Einmitt Kristbjörn - "Boltaiðnaðurinn" þar fer skæður, öflugur og jafnvel afturhaldssamur þrýstihópur með tengingar út í ystu myrkur.
      Gæti staðið í vegi ýmissra þarfra samfélagsbreytinga ef fer svo að Viðreisn leiddi næstu ríkisstjórn.
      0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Æjæææ.........eins og hundur í bandi. Bara sitja og dilla rófunni..............
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár