Áhrif hönnunar á þjóðfélagið

Fram­úr­skar­andi hönnun á Íslandi var fagnað í Grósku þann 7. nóv­em­ber með afhend­ingu Hönn­un­ar­verð­launa Íslands 2024 á vegum Mið­stöðvar hönn­unar og arki­tekt­úrs.

Áhrif hönnunar á þjóðfélagið
Heið­ursverð­laun Gísli B. Björns­son, einn áhrifa­mesti graf­íski hönn­uður Íslands hlaut heið­ursverð­laun árs­ins. Mynd: Aldís Pálsdóttir

Úrslita­keppnin í eins konar Íslands­meist­ara­móti í hönnun og skap­andi starfi var haldin af Miðstöð hönn­unar og arki­tekt­úrs í Grósku þann 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Afhent voru Hönn­un­ar­verð­laun Íslands í þremur flokkum auk heið­ursverð­launa og fjár­fest­ing­ar­við­ur­kenn­ingar. Atburð­ur­inn var þó meira en verð­launa­af­hend­ing því sjónum var beint að öllum þeim fjöl­breyttu verkum sem til­nefnd voru með fyr­ir­lestrum hvers hönn­uðar auk sam­tals um hönn­un­ina. Þetta er í ell­efta sinn sem verð­launin eru veitt og mark­miðið er að varpa ljósi á mik­il­vægi og gæði hönn­unar og arki­tekt­úrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífs­gæði, verð­mæta­sköpun og sjálf­bærni fyrir sam­fé­lagið allt. Keppn­is­flokk­arnir eru þrír; verk, staður og vara, þar sem þrjú verk­efni, til­nefnd af dóm­nefnd, voru nánar kynnt í hverjum flokki. 

Umgjörðin fyrir atburð­inn var fal­lega hönnuð og þátt­taka mikil með fullum fyr­ir­lestr­ar­sal og í mið­rými Grósku þar sem kaffi­hlé og veit­ingar eftir athöfn­ina gáfu til­efni til sam­tals um hönnun. Bar stemn­ingin með sér að hér er nán­ast um að ræða stóra árs­há­tíð hönn­un­ar­geirans frekar en keppn­is­mót.

Heiðursverðlaunin 

Heið­ursverð­launin fékk Gísli B. Björns­son fyrir fram­lag sitt til graf­ískrar hönn­unar. Í skemmti­legri ræðu hans kom fram að þegar hann var ungur og leit­andi mennta­skóla­nemi sem leidd­ist í MR þá var stofnuð fyrir hann sér­stök ný deild í Mynd­lista- og hand­íða­skól­anum, kölluð hag­nýt mynd­list. Til stofn­unar deild­ar­innar var feng­inn sér­stak­lega til lands­ins Wolfgang Smith í gegnum mynd­list­ar­mann­inn Dieter Roth hér­lendis. Þannig var lagður grunn­ur­inn að nýju fagsviði á Íslandi. Síðan fór Gísli til Þýska­lands til frekara náms og eftir heim­komu stofn­aði hann aug­lýs­inga­stofu og kenndi aug­lýs­inga­teikn­ingu og graf­íska hönnun í 50 ár. 

AlþingiSmiðja skrif­stofu­bygg­ing Alþingis á horni Tjarn­ar­götu og Von­ar­strætis séð frá Ráð­hús­inu í Reykja­vík.

Staður

Staður árs­ins 2024 sem fékk Hönn­un­ar­verð­laun Íslands var Smiðja – nýja skrif­stofu­bygg­ing Alþingis sem Studio Granda hann­aði. Verð­launin fengu þau fyrir arki­tektúr í hæsta gæða­flokki sem ber íslensku hug­viti og hand­verki glæsi­legt vitni. Í húsin er sam­einuð fund­ar­að­staða og skrif­stofur þing­manna með starfs­fólki Alþingis í fimm hæða fal­legri bygg­ingu á horni Tjarn­ar­götu og Von­ar­strætis. 

Dómnefnd segir bygg­ing­una lýsandi fyrir þróun höf­und­ar­verks Studio Granda þar sem áherslur eru á borða­klædda stein­steypta fleti, íslenskar stein­teg­undir og eik. Hönnunin felur í sér ýmis smá­at­riði sem skipta miklu og ber bygg­ingin í senn vott um mikla ögun og hönn­unar­á­stríðu. Grjótið sem gegnir aðal­hlut­verki í útliti húss­ins að utan kemur einnig víða fyrir í gólfi inn­an­húss.

Í ræðu arki­tekt­anna kom fram að ekk­ert grjót var sprengt eða brotið nýtt fyrir bygg­ingu húss­ins, heldur var nýtt grá­grýti úr grunni nýju Land­spít­ala­bygg­ing­ar­innar. Þetta er mjög í anda nýj­ustu strauma í alþjóð­legum arki­tektúr. Þá var rauða grjótið sem áber­andi er á ytra byrði húss­ins fengið úr afgangs­grjóti í gam­alli námu sem opnuð var fyrir verkið. Það er í sam­ræmi við alþjóð­legar áherslur varð­andi sjálf­bærni. Hið rauða grjót end­ur­speglar set­lög sem birt­ust við forn­leifa­upp­gröft­inn á gömlu smiðj­unni sem kom í ljós í grunn­inum, sem skrif­stofu­hús Alþingis dregur nafn sitt af.

Sögðu þau Steve Christer og Margrét Harð­ar­dóttir, arki­tektar og stofn­endur Studio Granda, að hús séu ekki bara hönnuð heldur birt­ist sam­taka­máttur allra sem koma að því. Með gagn­kvæmum skiln­ingi sem þarf til að byggja hús, bæði frá verk­kaupa og verk­tökum sem vinna sjálft verkið og þeim sem koma að útvegun efnis. Flókin og úthugsuð hug­mynda­fræði vegna starf­semi húss­ins og mikil und­ir­bún­ings­vinna fór fram eftir að arki­tekta­sam­keppn­inni lauk og hönn­uðir höfðu verið valdir. Samtalið við not­endur og fram­kvæmda­að­ila var mik­il­vægt. Bygg­ingin er með íslenskri stein­klæðn­ingu utan­húss sem liggur lárétt og lóð­réttum borðum í sjón­steypu inn­an­húss.

Jafn­væg­is­stöngin í lista­verk­inu ofan við inn­gang­inn gefur hús­inu ein­staka ásýnd og er eftir Kristin E. Hrafns­son, en í lofti for­salar húss­ins er annað lista­verk eftir Þór Vig­fús­son. Inn­an­húss er áhersla á eik og vel hann­aðar íslenskar inn­rétt­ingar þar sem sveigj­an­leiki liggur til grund­vallar. 

Í ræðu Halldórs Eiríks­sonar arki­tekts fyrir hönd dóm­nefnd­ar­innar kom fram að Smiðja er fal­legt hús sem er stram­mað af og hóf­stillt að utan en svo tekur sin­fónía upp­lif­unar við inn­an­dyra þar sem mjög góð aðstaða er fyrir þing­menn og starfs­fólk og glæsi­legir fund­ar­salir og fund­ar­her­bergi bæði fyrir alþjóð­lega fundi og inn­lenda sem skiptir bæði máli fyrir virkni og ásýnd Alþingis.  

Studio Granda er kanónan í íslenskum arki­tektúr og í Smiðju er starfi Alþingis stillt upp fyrir almenn­ing og hvert rými hefur sitt hlut­verk og til­gang. En það er ekki bara fúnk­sjón heldur líka ljóð­ræn og per­sónu­leg upp­lifun sem finna má við ásýnd og inn­göngu. Þarna birt­ist einnig úthugsuð hönnun til að hafa góð áhrif á innra starf lög­gjaf­ar­sam­kom­unnar. Til þess þarf rými fyrir sam­skipti en þar er líka feg­urð sem lyftir and­anum og ekki er hægt annað en að vera í góðu skapi í svona fal­legu húsi.

Smiðjan er borg­ar­hús sem er snyrti­lega sett inn í þétt umhverfi ann­arra húsa og er þegar farið að venj­ast hratt þarna í Kvosinni vegna góðrar næmni í hönn­un­inni. Smiðjan er í raun stoð­rými fyrir Alþing­is­húsið og jafn­framt nágranni við ráð­húsið. Húsið upp­fyllir bæði þessi hlut­verk af hóg­værð, en er um leið nútíma­legt opin­bert skrif­stofu­hús­næði hannað af natni við hvert ein­asta rými og það leyst far­sæl­lega í útfærslu og fram­kvæmd. 

Annar kynnir hátíð­ar­innar klykkti út með því að húsið gæti því átt hlut í því að búa til glað­væra þing­menn vegna góðrar hönn­unar á þeirra starfs­um­hverfi. Auk Smiðju voru til­nefnd Hálend­is­mið­stöðin í Kerl­ing­ar­fjöllum sem Basalt hann­aði með Bláa lóns teym­inu og áning­ar­staður fyrir ferða­menn að Þrí­stöpum í Vatnsdal í Húna­vatns­sýslu, stað­ur­inn þar sem síð­asta opin­bera aftakan fór fram. Hönnuðir voru Gagarín, Landslag og Harry Jóhanns­son.

Þykjó teymið þver­fag­legaÞær Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir, Ninna Þórð­ar­dóttir, Erla Ólafs­dóttir og Embla Vig­fús­dóttir sem hlutu verð­laun fyrir verk árs­ins.

Verk

Það verk sem vann Hönn­un­ar­verð­launin í ár var frum­legt og áhuga­vert dæmi um hvernig hægt er að miðla hug­myndum barna og ung­menna af alvöru og virð­ingu svo rödd þeirra hafi áhrif. Börnin að borð­inu við borg­ar­skipu­lag, sem hönn­un­arteymið Þykjó sá um fyrir Alta var til þess gert að þróa nýtt ramma­skipu­lag á Ásbrú út frá sam­starfi Kadeco og Reykja­nes­bæjar. Ung­lingur úr bænum sem tók þátt í verk­efn­inu og tók jafn­framt þátt í kynn­ing­unni í Grósku bar þess vitni að raun­veru­leg áhrif hefðu orðið af þátt­töku barn­anna. Þau hafi markað spor sín á nið­ur­stöð­una í breyt­ing­ar­ferli ramma­skipu­lags­ins og þannig haft áhrif á fram­tíð­ar­um­hverfi íbú­anna. Til þess að svo yrði þurfti hug­vits­sam­lega hönnun þver­fag­legs teymis við að setja upp­lýs­ingar fram og virkja þátt­tak­endur með fræðslu og vald­efl­ingu til þátt­töku, byggðri á hlustun og virkni í gegnum sköpun og leik.

Einnig voru til­nefnd verkin Grímur eftir hönn­uð­inn og lista­mann­inn James Merry og verk­efnið Ann­ars­flokks eftir Stúdíó Erind­reka og Sigmund Pál Frey­steins­son, sem varpar ljósi á hvernig nýta má betur afgangs­af­urðir úr íslensku æðar­varpi.

Vara árs­insHelga Lilja Magn­ús­dóttur, fata­hönn­uður peysunnar James Cook, sem verð­launuð var sem vara árs­ins.

Vara

Vara árs­ins var prjón­aða peysan James Cook sem Helga Lilja Magn­ús­dóttir fékk verð­laun fyrir. Peysan er nútíma­klassík fyrir öll kyn og ald­urs­hópa, gerð fyrir Bahns hægtísku­fyr­ir­tækið sem er selj­andi peysunnar. Samfélag hefur skap­ast í kringum unn­endur peysunnar og er það jafn­vel orðið skráð sem trú­fé­lag. En hver litur peysunnar er gerður í tak­mörk­uðu upp­lagi og mynstrið tekur mið af ljós­merkjum vita. Á heim­ilum þar sem peysan er til er henni jafn­vel deilt meðal fjöl­skyldu­með­lima þar sem hún er kyn­hlut­laus hönnun og felur það í sér sjálf­bæra nýt­ingu á hand­verki og efni sem sendir skýr skila­boð út í sam­fé­lagið.

Hinar tvær vör­urnar sem til­nefndar voru eru ann­ars vegar Hljóm­kassar, stefnu­virkir hátal­arar úr íslenskum efni­viði eftir Halldór Eldjárn og Jón Helga Hólm­geirs­son og hins vegar bók Ránar Flygenring um Eldgos, sem er 80 síðna mynda­bók og þýdd hefur verið á fjögur tungu­mál. Bókin hlaut barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs árið 2023 en hún er gefin út af Angústúru, sem fékk við­ur­kenn­ingu fyrir bestu fjár­fest­ing­una í hönnun í fyrra.

Studio GrandaGrétar Örn Guð­munds­son, Steve Christer, Margrét Harð­ar­dóttir og Birgir Örn Jónsson.

Fjárfesting í hönnun 

Við­ur­kenn­ing til fyr­ir­tækja fyrir fjár­fest­ingu í hönnun hófst árið 2015 sem hluti Hönn­un­ar­verð­launa. Í ár vann Krónan, vegna fyr­ir­mynd­ar­hönn­unar og sam­starfs við hönn­uði varð­andi fróð­leik og leið­bein­ingu um umhverf­is­vernd með skemmti­legum upp­lýs­ingum sam­hliða því að versla í mat­inn. 

Framsýni í umhverf­is­málum varð­andi end­ur­vinnslu og nýt­ingu afganga er meðal þess sem dóm­nefnd nefndi. Aukin umhverf­is­vit­und og sjálf­bærni til að auð­velda neyt­endum umhverf­is­væn inn­kaup í gegnum fræð­andi fram­setn­ingu með sam­starfi við hæfi­leik­a­ríka hönn­uði. Annar kynnir við­burð­ar­ins stakk síðan upp á því að allir hönn­uðir fengju 40% afslátt í Krónunni í fram­hald­inu, sem áhorf­endur virt­ust þó í ákveð­inni óvissu um hvort þeir ættu að hlæja að eða von­ast eftir.

Umgjörð verðlaunanna

Ungir hönn­uðir voru aug­sýni­lega stór hluti þátt­tak­enda í við­burð­inum sem sýnir bæði vöxt grein­ar­innar og upp­skeru­há­tíð­ar­stemn­ing­una umfram keppn­isand­ann. Val­gerður Birna Jóns­dóttir, sem útskrif­að­ist frá Lista­há­skóla Íslands fyrir stuttu, fékk það verk­efni að vera upp­lif­un­ar­hönn­uður við­burð­ar­ins. Hún sagði frá því hve inn­blásin af fyrri við­burðum hún hefði verið við það verk­efni. Hugtakið inspira­sjón, sem gæti verið þýtt með nýyrð­inu inn­spírun, lá því til grund­vallar. Spírur eru eðli­legar í nátt­úr­unni og birt­ast á vissan hátt eins og hönn­un­ar­ferli, þar sem alls kyns sprotar eða hug­myndir birt­ast en síðan eru það til­teknar spírur sem vaxa og verða loks að full­vaxta plöntu, líkt og verð­launa­verk á end­anum.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár