„Ég sakna þess að stinga fólk“

78 sjúk­lingar liggja á göngum Land­spít­al­ans því ekki er pláss fyrir þá ann­ars staðar og spít­al­inn hefur verið á efsta við­bragðs­stigi í tæpan mánuð. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem hafa skipt yfir í tækni­geir­ann sakna þess stundum að vinna á „á gólf­inu“ en á meðan álagið og streitan í heil­brigð­is­kerf­inu heldur áfram að aukast er það ekki mögu­leiki.

„Ég sakna þess að stinga fólk“
Hjúkr­un­ar­fræð­ingur og vöru­stjóri Gulla Akerlie til­heyrir ört stækk­andi hópi hjúkr­un­ar­fræð­inga sem hafa hætt störfum í heil­brigð­is­kerf­inu og starfa nú í heil­brigð­is­tækni­geir­anum. Hún segir álagið sem hún kynnt­ist á spít­al­anum nýt­ast í starfi hennar í dag. Mynd: Golli

„Guð hjálpi okkur,“ eru fyrstu við­brögð fimm hjúkr­un­ar­fræð­inga, inntar eftir því hvað þeim finnst um heil­brigð­is­kerfið í dag. Þær starfa ekki lengur í heil­brigð­is­kerf­inu, af ýmsum ástæðum, en streita, ósveigj­an­legur vinnu­tími og lægri laun leiddu þær í heil­brigð­is­tækni­ger­i­ann þar sem þær starfa í dag. 

Fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unarÓlafur G. Skúlason, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar á Land­spít­ala, segir efsta við­bún­að­ar­stig á spít­al­anum vera „nýja normið“.

Álagið á og í heil­brigð­is­kerf­inu birt­ist einna helst á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi. Land­spít­al­inn hefur nú verið á efsta við­bún­að­ar­stigi, af þremur, í tæpan mánuð. Ólafur G. Skúlason, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar á Land­spít­al­anum, segir efsta við­bún­að­ar­stig vera „nýja normið“, kerfið sé of lítið og inn­við­irnir vaxa ekki með. Eins og staðan er núna liggja 78 sjúk­lingar á göng­unum því ekki er pláss fyrir þá ann­ars staðar. Staðan hefur samt sem áður batnað frá því í síð­ustu viku þegar 94 sjúk­lingar lágu á göngum spít­al­ans vegna pláss­leysis á deildum. Ástæðuna má að hluta til rekja til skorts á hjúkr­un­ar­rýmum.    

Gulla Akerlie, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og vöru­stjóri hjá Sidekick Health, er einn af fimm hjúkr­un­ar­fræð­ingum sem var í ítar­legu við­tali við Heim­ild­ina í síð­ustu viku. Allar til­heyra þær ört stækk­andi hópi hjúkr­un­ar­fræð­inga sem hafa hætt störfum í heil­brigð­is­kerf­inu og starfa nú í heil­brigð­is­tækni­geir­anum. Hún segir álagið sem þær kynnt­ust, starf­andi á spít­al­anum, nýt­ast þeim í starfi í dag. „Þetta gerir okkur færar í starf­inu sem við erum í í dag. Við höfum allt aðra sýn á streitu og það sem er hættu­legt. Þegar aðrir halda að allt sé að fara til fjand­ans þá hugsa ég: Það er eng­inn að deyja. Stress-levelið í vinn­unni og líf­inu öllu minnk­aði til muna.“ 

Gulla sagði upp á Land­spít­al­anum fyrir nokkrum árum, aðstæð­urnar voru ekki boð­legar. „Ég var með sam­visku­bit heima og í vinn­unni. Það var alltaf sam­visku­bit. Ef ég geri mis­tök í mann­legu starfi þar sem ég hef ekki tíma til að gera vinn­una nógu vel þá getur ein­hver kært mig. Það var svo margt sem púsl­að­ist saman. Ég næ ekki að gera það sem ég þarf að gera, það þarf að finna ein­hverja lausn til að hjálpa mér að vinna vinn­una.“ 

Sidekick Health þróar og mark­aðs­setur staf­rænar heil­brigð­is­með­ferðir í sam­starfi við stærstu lyfja- og sjúkra­trygg­inga­fé­lög í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Gulla saknar þess stundum að starfa „á gólf­inu“. „Ég sakna þess að stinga fólk,“ segir hún, og meinar það eins vel og mögu­legt, hún saknar til dæmis að setja upp „flókið drip og baxter-dælu“. Henni verður einnig hugsað til gamla fólks­ins. „Ég væri alveg til í að fara í öldrun af og til. Það er öldr­un­ar­heim­ili í hverf­inu og ég hugsa oft af hverju ég er ekki að taka vaktir þar.“

Viðtalið við Gullu, og fjóra aðra hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem hafa fært sig úr heil­brigð­is­kerf­inu yfir í heil­brigð­is­tækni­geir­ann, sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­inn má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.
Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg
FréttirHeilbrigðismál

Til­kynn­ing um her­manna­veiki í blokk fyrir eldri borg­ara vekur ugg

Íbúum á Granda­vegi 47 barst nýlega orð­send­ing frá sótt­varn­ar­lækni og Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur þess efnis að mikið magn her­manna­veik­is­bakt­er­í­unnar hefði fund­ist í einni íbúð blokk­ar­innar. Dóttir níræðrar konu í blokk­inni hefur veru­legar áhyggjur af móður sinni en her­manna­veiki er bráð­drep­andi fyrir fólk sem er veikt fyrir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár