Sýna frá mögulegum mannréttindabrotum á samfélagsmiðlum

Í nýrri heim­ild­ar­mynd Al Jazeera virð­ast ísra­elskir her­menn afhjúpa stríðs­glæpi og mann­rétt­inda­brot á Gaza. Ár er frá hryðju­verka­árás Hamas á Ísrael en sprengjum hefur rignt á Gaza nær linnu­laust síðan.

Myndefni sem ísra­elskir her­menn hafa sjálfir deilt á sam­fé­lags­miðlum sem virð­ast sýna alvar­leg mann­rétt­inda­brot og jafn­vel stríðs­glæpi. Þar á meðal sést hvernig skotið er á óvopnað fólk á götum úti og hús sprengd, að því er virð­ist án ástæðu. Al Jazeera afhjúpaði mynd­skeiðin í nýrri heim­ild­ar­mynd sem frum­sýnd var á föstu­dag. 

Myndin er nú aðgengi­leg með íslenskum texta í spil­ar­anum hér að ofan.

„Í grunn­inn er hug­myndin á bak við mynd­ina sú að segja sögu stríðs­ins á Gaza í gegnum raddir ísra­elsku her­mann­anna sjálfra. Við upp­götv­uðum að þeir höfðu sett ótrú­legt magn mynd­banda og mynda á netið sem sýndu frá reynslu þeirra á Gaza,“ segir fram­leið­andi mynd­ar­innar, Richard Sanders, í sam­tali við Heim­ild­ina.

„Það sem er athygl­is­verð­ast við þetta efni er í fyrsta lagi að ísra­elsk stjórn­völd hafi yfir­höfuð leyft því að fara á netið, sem er und­ar­legt miðað við her­menn við störf, en líka hvað það sýnir ísra­elska her­inn í slæmu ljósi. Oft voru þeir ein­fald­lega að eyði­leggja heim­ili fólks, róta í gegnum eigur þeirra eða stela fjár­munum af því. Á öðrum mynd­böndum voru þeir að fremja, það sem virð­ist vera í öllu falli, frekar alvar­leg mann­rétt­inda­brot. Sprengja upp bygg­ingar, og í sumum mynd­böndum, meira að segja, að skjóta óvopnað fólk.“

Myndin byggir á myndum og mynd­böndum af meira en 2.500 sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum, sem safnað var í stóran gagna­grunn. Allt efnið lá fyrir hvers manns augum á sam­fé­lags­miðlum. 

„Þetta er af Facebook, af TikTok, af Instagram, af YouTube, og já, þetta er efni sem þeir settu sjálfir á netið,“ segir Sanders og bætir við að upp­haf­lega hafi teymið búist við því að þurfa að kafa djúpt í efnið til að stað­setja atvik eða nota and­lits­grein­ingu til að kom­ast að hverjir væru á mynd­unum. „En í raun og veru voru þeir að mestu að birta þetta undir eigin nöfnum og gefa upp­lýs­ingar um hvað mynd­böndin sýndu. Þannig að þetta var mjög auð­velt fyrir okkur.“

„Í mynd­inni stillum við efni frá ísra­elskum her­mönnum við hlið við­tala á vett­vangi sem við tókum í gegnum teymi í Gaza. Við berum saman sjón­ar­horn ísra­el­skra her­manna við reynslu Palest­ínu­manna á vett­vangi.“

Til greina kemur að birta allan gagna­grunn­inn, sem Sanders segir að hljóti að vekja athygli og áhuga sak­sókn­ara og þeirra sem rann­saka fram­göngu Ísraels í stríð­inu. Við­brögðin hafa þó ekki verið mikil á Vest­ur­löndum. 

„Við­brögðin við mynd­inni hafa verið eins og við­brögðin eru almennt við myndum Al Jazeera í vest­rænum fjöl­miðlum: þau hunsa okkur algjör­lega. Ég held að ein ástæða fyrir því að við vildum gera þessa mynd sé sú að við höfum mjög ólíkt sjón­ar­horn á þetta mál og segjum þessa sögu á annan hátt en vest­rænir fjöl­miðlar. Og það virð­ist vera sjón­ar­horn sem vest­rænir fjöl­miðlar hafa lít­inn áhuga á,“ segir Sanders. 

Áhuginn á efn­inu sé hins vegar sann­ar­lega til staðar í Mið-Aust­ur­löndum. „Og einnig, sem er áhuga­vert, í ísra­elskum fjöl­miðlum og á ísra­elskum sam­fé­lags­miðlum. Þar eru mörg örvænt­ing­ar­full skila­boð á hebr­esku þar sem fólk er beðið um að eyða sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum sínum. En auð­vitað höfum við vistað allt sem við fundum.“

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Laufey Eiríksdóttir skrifaði
    Það er ekki að ástæðulausu að áskrifendum youtube-rásar Al-Jazera English hefur fjölgað um hundruð þúsunda síðustu mánuði. Flest hugsandi fólk hefur gefist upp á vestrænum meginstraumsfjölmiðlum og fylgist nú með miðlum sem reyna að flytja fréttir byggðar á staðreyndum. Þetta er hræðileg mynd en byggist á rauverulegum heimildum og það minnsta sem við getum gert er að horfa á hana, þrátt fyrir andstyggðina sem hún vekur. Takk fyrir góða grein.
    7
  • bjørg valgeirsdottir skrifaði
    Ég bókstavlega grét upphátt við að horfa á þetta. Hvernig getur maðurinn verið svona grimmur ég bara skil þetta ekki
    3
  • bjørg valgeirsdottir skrifaði
    Ég bókstavlega grét upphátt við að horfa á þetta. Hvernig getur maðurinn verið svona grimmur ég bara skil þetta ekki
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár