Lögreglan óskar eftir myndefni frá Krýsuvíkurvegi vegna andláts stúlkunnar

Lög­reglan biðlar til veg­far­enda sem óku um Krýsu­vík­ur­veg, á milli Vall­ar­hverfis og Vig­dís­ar­valla­vegar, á sunnu­dag eftir hádeg­is­bil á sunnu­dag að athuga hvort þeir eiga myndefni í sínum fórum og þá senda það til lög­reglu.

Lögreglan óskar eftir myndefni frá Krýsuvíkurvegi vegna andláts stúlkunnar
Mynd úr safni og teng­ist umfjöll­un­ar­efni ekki beint Mynd: Heiða Helgadóttir

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á leitar eftir myndefni frá veg­far­endum sem óku um Krýsu­vík­ur­veg, á milli Valla­hverfis í Hafn­ar­firði og Vig­dís­ar­valla­vegar, síð­ast­lið­inn sunnu­dag á milli kl. 13 og 18. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá emb­ætt­inu vegna rann­sóknar á and­láti 10 ára stúlku en faðir hennar var hand­tek­inn og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald vegna máls­ins.

„Mörg öku­tæki eru búin mynda­vélum og því við­búið að myndefni frá umræddum veg­ar­kafla á áður­nefndum tíma sé að finna í fórum ein­hverra. Hinir sömu eru vin­sam­leg­ast beðnir um að senda upp­lýs­ingar um slíkt á net­fangið abending@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og síma­númer. Í fram­hald­inu verður haft sam­band við við­kom­andi,“ segir í til­kynn­ingu lög­regl­unnar.

Stúlkan fannst látin í hrauni gegn Vatns­skarðs­námu við Krýsu­vík­ur­veg. Faðir hennar, Sigurður Fannar Þórsson, var hand­tek­inn eftir að hann hafði sjálfur sam­band við lög­reglu. 

Hann hefur einn stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins en háværar sögu­sagnir hafa verið í gangi í sam­fé­lag­inu um annað. 

Lögregla hefur beint því til fólks að hafa sam­band ef það hefur eitt­hvað í hönd­unum sem gæti komið að notum við rann­sókn máls­ins.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár