Handtekinn vegna andláts stúlku á grunnskólaaldri

Einn er í haldi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í tengslum við and­lát stúlku á grunn­skóla­aldri. Rík­is­út­varpið segir stúlk­una hafa fund­ist í grennd við Krýsuvík og að karl­maður hafi verið hand­tek­inn þar á svæð­inu í gær.

Handtekinn vegna andláts stúlku á grunnskólaaldri
Lögregla Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fer með rann­sókn máls­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er með til rann­sóknar and­lát stúlku á grunn­skóla­aldri, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu sem send var á fjöl­miðla á morgun.

Í til­kynn­ingu lög­reglu segir að til­kynnt hafi verið um málið um kvöld­mat­ar­leytið í gær og í kjöl­farið hafi einn verið hand­tek­inn. Lögregla segir rann­sókn máls­ins vera á frum­stigi og hyggst ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu.

Rík­is­út­varpið birti fyrstu frétt af mál­inu í morgun og hafði þar, eftir sínum heim­ildum, að karl­maður hefði verið hand­tek­inn á Krýsu­vík­ur­svæð­inu í gær eftir að hafa sjálfur hringt á lög­reglu, og að stúlkan hefði fund­ist látin á svæð­inu. 

Á mynd sem RÚV birti með frétt­inni sjást lög­reglu­að­gerðir, sem rík­is­mið­ill­inn segir hafa staðið yfir fram eftir kvöldi. 

Til­kynn­ing lög­reglu: 

„Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er með til rann­sóknar and­lát stúlku á grunn­skóla­aldri.
Tilkynnt var um málið um kvöld­mat­ar­leytið í gær og í kjöl­farið var einn hand­tek­inn í tengslum við það.
Rannsókn máls­ins er á frum­stigi og ekki verða veittar frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár