„Nýtt ömurleikamet í hvernig er verið að hola mannréttindi á Íslandi að innan“

Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur segir hund­rað lög­fræði­legar ástæður fyrir því að senda Yazan Tamimi, 11 ára fatl­aðan dreng frá Palest­ínu, ekki úr landi. Íslandi beri engin skylda til að senda hann til Spánar á grund­velli Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Það er verið að færa rána í mennsku og mannúð og mann­rétt­indum all­hressi­lega niður á eitt­hvað stig sem ég vil varla ræða – í blóð­ugri atkvæða­leit - eins og einn maður sem ég tal­aði við orð­aði það. Það er fullt af fólki í þess­ari rík­is­stjórn sem getur stoppað þetta. Þau verða að gera það. Þetta er algjör­lega ólíð­andi og fjöl­þætt, alvar­legt lög­brot gegn þessu barni.“

Þetta segir Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur. Hún og Tótla Sæmunds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla, voru af til­viljun báðar staddar á Kefla­vík­ur­flug­velli á leið til útlanda á sama tíma og vísa átti hinum ell­efu ára Yazan Tamimi úr landi í morgun. Þær tóku þar upp mynd­band og birtu á Facebook þar sem þær komu sinni sýn á yfir­vof­andi brott­vís­un­ina á fram­færi.

„Ef við lendum í Evrópu og komumst að því að þetta hefur verið málið - Yazan var bara skóflað hérna út úr þessu landi þrátt fyrir að það sé ólög­legt. Þá er þetta ein­hvers konar nýtt ömur­leika­met í því hvernig er verið að hola mann­rétt­indi á Íslandi að innan.“ 

Búið er að flytja Yazan frá Kefla­vík­ur­flug­velli aftur til Reykja­víkur, en hann hafði verið sóttur í Rjóðrið, hjúkr­unar- og end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöð Land­spít­al­ans, seint í gær­kvöldi. Frétta­stofa Vísis hefur eftir Marín Þórs­dóttur, verk­efn­is­stjóra hjá heim­ferða- og fylgda­deild rík­is­lög­reglu­stjóra að Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra hafi skipað að hætt yrði við brott­vís­un­ina. 

Að sögn frétta­stofu RÚV kom beiðni innan úr rík­is­stjórn­inni um að eiga sam­tal um mál Yazans áður en hann yrði fluttur úr landi. Dóms­mála­ráð­herra hafi orðið við því.

Engin skylda að senda Yazan til Spánar

Katrín segir hund­rað lög­fræði­legar ástæður fyrir því að vísa Yazani ekki úr landi. „Íslandi ber engin skylda til að senda hann til Spánar. Það er heim­ild en ekki skylda,“ segir hún.

Til dæmis sé ekki búið að ljúka máls­með­ferð hans á Íslandi. „Vegna þess að málið hans klúðr­að­ist á fyrstu stigum, þar sem að ein­hver tals­maður kom ekki sjúkra­gögn­unum hans á fram­færi. Þannig að málið var aldrei rétt afgreitt.“

Þá segir hún að barna­vernd hafi neitað að taka mál hans til skoð­unar þrátt fyrir að for­eldrar drengs­ins, rétt­inda­gæsla fatl­aðs fólks og læknar hafi farið fram á það. „Þannig að það kerfi hefur alfarið brugð­ist. Það er fullt af fólki sem vinnur við það á þessu landi að sjá til þess að lögum sé fram­fylgt. Og það er ekki verið að gera það og það vita það allir.“

Katrín bendir á að rammi Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar til að senda Yazan úr landi renni út 21. sept­em­ber. „Þá hefði ekki lengur mátt senda hann til Spánar.“ Hún gagn­rýnir það einnig að Yazan hafi verið fjar­lægður af sjúkra­húsi. „Það er eng­inn á sjúkra­húsi af gamni sínu. Fólk fer á sjúkra­hús því það þarf þess.“

Hægt að stoppa þetta

Katrín rifjar þá upp þegar hún vann við mál flótta­manns í dóms­mála­ráð­herra­tíð Ögmundar Jón­as­sonar. Búið hefði verið að frels­is­svipta mann­inn og flytja upp á Kefla­vík­ur­flug­völl þegar Ögmundur hringdi í Katrínu um miðja nótt.

„Og spurði hvort eitt­hvað sem ég hefði sagt í fjöl­miðlum um að mál­inu hefði verið klúðrað á fyrri stigum væri rétt. Og ég sagði „já, það er rétt“ og þá stopp­aði hann þetta. Það er ennþá hægt að stoppa þetta og það geta allir lagst á eitt á Íslandi og reynt að koma þessu þannig fyrir að við horfum ekki upp  á þetta mann­rétt­inda­brot í slow-motion eiga sér stað.“

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár