Borga ungum drengjum fyrir að vinna óhæfuverkin

Glæpa­flokkar borga í auknum mæli ungum drengjum fyrir að fremja margs konar óhæfu­verk, jafn­vel morð. Tveir sænskir piltar voru fyrir skömmu hand­teknir í Kaup­manna­höfn eftir morð­til­raun.

Mið­viku­dags­kvöldið 31. júlí sl. var gerð til­raun til að ráða mann af dögum á Blågårds­gade á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Til­raunin mistókst en lög­reglan hefur ekki viljað veita neinar upp­lýs­ingar um þann sem fyrir árásinni varð, eða ástand hans, annað en að hann lifði af.  Daginn eftir hand­tók lög­reglan 16 ára sænskan pilt og degi síðar annan Svía, 17 ára gamlan. Tveimur dögum síðar hand­tók danska lög­reglan 25 ára mann og 31 árs konu, þau eru grunuð um aðild að mál­inu.

11 tilvik á einu ári

Í júní var 19 ára Svíi hand­tek­inn fyrir að kasta hand­sprengju inn í skart­gripa­verslun í Valby í Kaup­manna­höfn og í sama mán­uði voru tveir Svíar, 15 og 16 ára hand­teknir fyrir morð­til­raun í Brøndby skammt frá Kaup­manna­höfn. Þetta eru nýj­ustu til­vikin þar sem ungir sænskir piltar eru fengnir, gegn borgun, til að fremja ódæði, oft­ast morð í Kaup­manna­höfn og nágrenni. Á einu ári hafa sænskir piltar sam­tals 11 sinnum verið keyptir til slíkra verka í Danmörku.

Lengi verið þekkt í Svíþjóð en nýtt í Danmörku

David Sausdal afbrota­fræð­ingur og lektor við Háskól­ann í Lundi í Svíþjóð sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að það sem nú væri að ger­ast í Danmörku væri vel þekkt í Svíþjóð og hefði verið svo um langt skeið. Það sem David Sausdal átti við er að glæpa­gengi „aug­lýsi“ á net­miðlum eftir ungum mönnum til að taka að sér það sem hann kall­aði skíta­djobb gegn greiðslu. Fram hefur komið að fyrir að ráða mann af dögum á Blågårds­gade 31. júlí áttu pilt­arnir að fá 200 þús­und danskar krónur (4 millj­ónir íslenskar) og að sögn lög­regl­unnar gæti upp­hæðin fyrir unnið verk, í mörgum til­vikum, verið mun hærri. 

Ástæðan er einföld

Frá bæj­ar­dyrum glæpa­sam­taka er ástæðan til að ráða unga menn til óhæfu­verka ein­föld. Með því móti sleppa félagar í glæpa­sam­tökum við sektir eða langa fanga­vist. Fyrir ungu menn­ina sem taka slík verk að sér eru það pen­ing­arnir sem freista og ef verkið „heppn­ast“ auð­veldar það kannski aðild að sam­tök­unum.

„Þetta kemur okkur í koll, við skutum okkur í fót­inn“
Henrik Vigh,
pró­fessor í mann­fræði við Hafn­ar­há­skóla

Áður­nefndur David Sausdal sagði að þessi aðferð gæti orðið til að hæna unga menn að sam­tök­unum, menn sem kannski myndu ann­ars ekki kynn­ast þessum félags­skap. Þessi aðferð glæpa­sam­tak­anna gerir lög­regl­unni sömu­leiðis erf­ið­ara fyrir því ungu menn­irnir eru síður í þeim hópi sem hún fylgist með. Ástæða þess að leitað er til ungra manna frá Svíþjóð til að vinna óhæfu­verk í Danmörku er að í Svíþjóð eru glæpa­sam­tökin marg­falt fjöl­menn­ari en í Danmörku og jafn­framt miklu fleiri ungir menn sem eru til í hvað sem er, gegn greiðslu, sagði David Sausdal.

Aukin samvinna nauðsyn

Tilræðið í Blågårds­gade um síð­ast­liðin mán­aða­mót vakti mikla athygli í Danmörku þótt það væri síður en svo hið fyrsta af þessu tagi. Bæði stjórn­mála­menn og lög­regla hafa lýst miklum áhyggjum og segja að koma verði í veg fyrir að í Danmörku skap­ist sama ástand og í Svíþjóð þar sem glæpaklíkur vaða uppi (orða­lag dansks þing­manns) og eru marg­falt fjöl­menn­ari en í Danmörku.

Torben Svarrer sem er yfir­maður þeirrar deildar lög­regl­unnar sem fæst við alvar­leg afbrota­mál, National enhed for Særlig Krim­ina­litet (NSK) sagði i við­tali við danska útvarpið að til­vikum þar sem ung­menni og vopn komi við sögu fari fjölg­andi, án þess að það rati í fjöl­miðla. Þetta sé mikið áhyggju­efni. Torben Svarrer sagði að NSK ætti gott sam­starf við sænsku lög­regl­una, sem hefði meiri og lengri reynslu í þessum málum.

Henrik Vigh pró­fessor í mann­fræði við Hafn­ar­há­skóla telur að stór­aukin sam­vinna við lög­reglu í öðrum löndum sé höf­uð­atriði í bar­átt­unni við glæpaklík­urnar. Einkum sam­vinnu við Europol. Fyr­ir­vari Dana um óhefta og fulla sam­vinnu í málum er varða dóms- og lög­reglu­mál sam­kvæmt Maastricht sam­komu­lag­inu var sam­þykktur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Þetta kemur okkur í koll, við skutum okkur í fót­inn,“ sagði Henrik Vigh. „Óheft og full sam­vinna við miðlun upp­lýs­inga skiptir miklu og fyr­ir­var­inn er okkur nú til trafala.“

Málið verður tekið upp í þinginu

Preben Bang Hen­rik­sen tals­maður þing­flokks Venstre, eins stjórn­ar­flokk­anna, hyggst taka málið upp þegar danska þingið, Fol­ket­inget, kemur saman að loknu sum­ar­leyfi. Peter Hum­melgaard dóms­mála­ráð­herra sagði í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn danska útvarps­ins að allt yrði gert til að koma í veg fyrir að þessi óheilla­þróun nái að fest­ast í sessi. Hann muni fljót­lega boða rík­is­lög­reglu­stjóra og yfir­mann NSK á sinn fund og ef í ljós komi að lög­reglan þurfi auk­inn mann­afla og við­búnað til að bregð­ast við þess­ari teg­und afbrota muni ekki standa á aðstoð stjórn­valda. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár